Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 2

Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 majubud.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Jólatré eitt hefur sett sinn svip á Egilsstaði á aðventunni. Þetta er líklega stærsta jólatréð á Héraði og þótt víðar væri leitað. Umrætt tré stendur við Tjarnarbraut en þar reka Ívar Ingimarsson fyrrum knattspyrnukappi og fjölskylda hans tvö gistiheimili, Birtu og Olgu. „Við keyptum þessi hús fyrir stuttu síðan og þá var okkur sagt að við fengjum þau ekki nema við skreyttum tréð. Við létum verða af því nú fyrir jólin,“ segir Ívar. Jólatréð er lifandi tré, sitka- greni, sem plantað var upp úr 1950. „Trjám var plantað víða um bæinn á þessum árum enda taka menn eftir því þegar þeir koma inn í Egilsstaði að það eru ótrúlega falleg tré víða í bænum. Þau voru færð úr trjálundi í Hallormsstað.“ Eftir að serían var sett upp tóku menn fyrst almennilega eftir því hve tréð var hátt og myndarlegt. Hafa margir komið að máli við Ívar og lýst yfir ánægju sinni með þetta fallega og vel skreytta tré. „Ég fékk landfræðing til að mæla tréð og reyndist það vera 19,6 metrar að hæð. Mér er sagt að þessi tré geti orðið allt að 400 ára gömul svo þetta tré er bara ung- lingur,“ segir Ívar. Alls eru 14 herbergi í Olgu og Birtu og hefur aðsókn verið stöðug og jöfn á þessu ári. „Þetta ár hefur verið mjög gott, við höfum verið með gesti alla daga ársins.“ Í forgrunni myndarinnar er listaverk sem vígt var á Vilhjálms- velli í nóvember síðastliðnum í til- efni af því að 60 ár voru liðin frá silfurstökki Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum árið 1956. sisi@mbl.is 20 metra hátt jólatré setur svip á Egilsstaði Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Mikil ánægja með fallegt og vel skreytt lifandi sitkagreni Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Bæjaryfirvöldum í Kópavogsbæ barst nýverið ábending frá bæjarbú- um um að fulltrúi fasteignasölunnar Húseignar hafi gengið milli húsa í Traðarhverfi í Kópabogi og gert íbú- um tilboð í fasteignir þeirra. Um er að ræða göturnar Háveg, Álftröð og Skólatröð. Ekki er vitað hvort íbúar hafi sýnt tilboðum fasteignasölunnar áhuga. Birgir Hlynur Sigurðsson, skipu- lagsstjóri Kópavogsbæjar, staðfestir að ábendingin hafi borist, en að öðru leyti hafi málið ekki komið inn á borð bæjaryfirvalda. Baldvin Ómar Magn- ússon, löggiltur fasteignasali hjá Hús- eign, segist lítið geta tjáð sig um málið en segir fasteignasöluna vinna fyrir fjárfesta sem hafi áhuga á svæðinu. Göturnar sem um ræðir, Hávegur, Álftröð og Skólatröð, eru staðsettar nærri miðbæ Kópavogs, Hamraborg og skrifstofum bæjarins. Menntaskól- inn í Kópavogi og Kópavogsskóli eru einnig í næsta nágrenni. Traðarhverf- ið er eitt það elsta í bænum, en elstu fasteignirnar þar voru byggðar um miðja síðustu öld og eru því margar hverjar um 50-60 ára gamlar. Áhugi á fasteignum í Traðarhverfi  Íbúum gerð tilboð í eignir sínar Hjörtur J. Guðmundsson Þorsteinn Ásgrímsson Laufey Rún Ketilsdóttir Fjárlaganefnd lagði til viðbótarútgjöld upp á 12 milljarða króna en fjárlagafrumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd í gær með stuðningi allra flokka. „Það hefði ekki tekist nema vegna þess að stjórn- málaflokkarnir hafa teygt sig gríðarlega langt til þess að ná samkomulagi og unnið af miklum heil- indum í nefndarstarfinu,“ segir Haraldur Bene- diktsson, formaður fjárlaganefndar, við mbl.is og telur sáttina að mörgu leyti merkilega. Framlög verða m.a. aukin um 4,6 milljarða króna til samgöngumála, til viðbótar við það sem áður var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Einnig er lagt til að hálfur milljarður til viðbótar fari til löggæslu- mála og 1,7 milljarðar í menntamál. Þá verða settir 5,2 milljarðar til viðbótar í heil- brigðiskerfið. Þar er áherslan, að sögn Haraldar, að bæta rekstrarstöðu heilbrigðisstofnana um allt land, átak í biðlistum og aðgerðir til þess að létta á fráflæðivanda Landspítalans og rekstri og upp- byggingu hjúkrunarheimila. Fjármunir settir í Dýrafjarðargöng Haraldur segir að á móti komi m.a. ýmsar van- taldar tekjur þannig að þrátt fyrir útgjaldaaukn- inguna upp á um 12 milljarða verði eftir sem áður afgangur af rekstri ríkissjóðs upp á 24 milljarða króna. Hann segir rétt að halda því til haga að gríð- arleg útgjaldaaukning hafi verið í frumvarpinu áð- ur en til þessara breytinga hafi komið. „Það er gríðarlega ánægjulegt að þetta hafi farið í gegn. Þetta er stórt fyrir sunnanverða Vestfirði,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða, en gert er ráð fyr- ir fjármunum í Dýrafjarðargöng sem tengja saman Dýrafjörð og Arnarfjörð. Nefndin ákvað einnig að hækka tóbaksgjald á hvert gramm neftóbaks umtalsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir í frumvarpinu. Hækkunin mun hafa allt að 500 milljóna kr. jákvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs á árinu 2017. Þá mun hún hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis lagði einnig til í gær að 31 einstaklingi yrði veittur ís- lenskur ríkisborgararéttur. „Fólk vinnur þvert á flokka“ „Þetta hefur gengið vel og fólk vinnur vel þvert á flokka og ég er bjartsýnn á að þetta geti klárast annað kvöld [í kvöld],“ segir Guðlaugur Þór Þórð- arson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurður um möguleg þinglok fyrir jól. 12 milljarðar til viðbótar  Framlög aukin til heilbrigðiskerfis og menntakerfis  Fjárlagafrumvarp af- greitt úr nefnd í sátt allra flokka  Guðlaugur Þór bjartsýnn á þinglok í kvöld Morgunblaðið/Golli Sátt Fjárlagafrumvarpið boðar 5,2 milljarða til viðbótar í heilbrigðiskerfi og hækkun tóbaksgjalds. Forsvarsmenn BSRB, SFR og BHM létu sjá sig á Alþingi í gær, en þá lauk 2. umræðu um frum- varp til laga um breytingu á A- deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Í yfirlýsingu frá BHM frá því á þriðjudag sagði að efnahags- og viðskiptanefnd hefði haft að engu athugasemdir félagsins við frumvarpið fyrir aðra um- ræðu, um að það væri ekki í samræmi við samkomulag um jöfnun lífeyrisréttinda frá 19. september. Meirihluti nefndarinnar, auk þriggja minnihluta, skiluðu nefndarálitum á þriðjudag áður en önnur umræða hófst. Í kjöl- far hennar gekk málið til nefnd- arinnar aftur og var afgreitt þaðan nær óbreytt. Málið var þó ekki tekið fyrir á dagskrá þingsins í gærkvöldi og má því búast við því að þriðja umræða fari fram í dag. LÍFEYRISSJÓÐSMÁL Morgunblaðið/Golli Alþingi Forystumenn BSRB, SFR og BHM mættu á þingpalla í gær. Ósátt með frumvarpið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.