Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
VIAIR Loftdælur,
Mikið úrval
Tjakkur 2.25T
Viðgerðar-
kollur,
hækkanlegur
Mössunarvél
Viðgerðarbretti
Loftpressa
180L/24L kútur
Multitoppur
9-21mm
frá 7.495
frá 14.995
4.995
19.995
2.485
17.995
7.495
Í aðfararorðum Andvara víkurritstjórinn að frægri fyrirsát
gegn forsætisráðherra landsins:
Íslenskir sjónvarpsáhorfendurhafa aldrei orðið vitni að ann-
arri eins framgöngu gagnvart
stjórnmálamanni og sjá mátti
sunnudaginn 3. apríl. Tveir rann-
sóknarblaðamenn, Svíinn Sven
Bergman og Jóhannes Kr. Krist-
jánsson, eigandi Reykjavik Media
og þarna verktaki hjá Ríkisútvarp-
inu, leiddu forsætisráðherra í
gildru með blekkingum.“
Ritstjórinn lýsir því hvernigkastljósið var einangrað við
Sigmund Davíð og segir svo:
Þá vaknar óhjákvæmilega súspurning hvort markmiðið
með hinni harðvítugu umfjöllun um
Panamaskjölin hérlendis hafi ekki
síst verið að ryðja Sigmundi úr vegi
sem stjórnmálamanni og tilgangur-
inn helgað meðalið í því efni. Hinar
ofsafengnu árásir á Sigmund Davíð
alla hans ráðherratíð ýta undir þá
skoðun.
Það er dapurlegt fyrir mann semhefur alla tíð virt Ríkisút-
varpið mikils og unnið þar mestalla
starfsævina eins og undirritaður,
að verða vitni að þeim aðförum á
þess vegum sem birtust í hinum
fræga Kastljósþætti 3. apríl 2016.
Slíku hefði enginn spáð fyrir
nokkrum árum.“
Þessi áfellisdómur var skrifaðurfyrir kosningar og birtist
þessa daga. Ritstjórinn gat ekki séð
fyrir að aðfararmenn væru enn að.
Hefði enginn spáð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Bolungarvík -3 alskýjað
Akureyri -4 alskýjað
Nuuk -13 skýjað
Þórshöfn 1 skúrir
Ósló 3 rigning
Kaupmannahöfn 3 þoka
Stokkhólmur 2 alskýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 2 þoka
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 4 rigning
London 10 rigning
París 6 skýjað
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 4 léttskýjað
Berlín 1 heiðskírt
Vín -3 skýjað
Moskva 0 alskýjað
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 5 súld
Winnipeg -9 skýjað
Montreal 0 léttskýjað
New York 0 skýjað
Chicago -3 þoka
Orlando 14 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:35
DJÚPIVOGUR 11:02 14:51
Maðurinn sem
stakk konu með
hnífi í Grein-
ingar- og ráðgjaf-
armiðstöð ríkis-
ins í Kópavogi á
mánudag, skildi
eftir sig hníf og
grímu á vett-
vangi. Gríman
sem árásarmað-
urinn klæddist er
lík þeirri sem fræg varð í Scream-
hryllingsmyndunum að því er RÚV
greindi frá í gær.
Lögreglan rannsakar nú munina
og freistar þess að finna vísbend-
ingar um hver árásarmaðurinn er.
Árásin átti sér stað í stigagangi
hússins að Digranesvegi 5 í Kópa-
vogi, á milli jarðhæðar og annarrar
hæðar. Var konan, sem er starfs-
maður við stöðina, á leið upp og
árásarmaðurinn á leið niður. Konan
fékk skurð á handlegg þannig að
blæddi úr.
Að sögn Gríms Grímssonar, yfir-
lögregluþjóns hjá rannsóknardeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
hefur töluverður fjöldi ábendinga
borist lögreglunni vegna málsins.
Skildi eftir
sig hníf og
grímu
Líktist grímu úr
þekktri kvikmynd
Scream Gríman úr
myndinni Scream.
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
„Eimskipafélagið var með svona skip
í rekstri á 8. áratug síðustu aldar,
Eyrarfoss og Álafoss svo dæmi sé
tekið,“ segir Ólafur William Hand,
upplýsingafulltrúi Eimskips.
Í Morgunblaðinu í gær var frá því
greint að færeyska skipafélagið
Smyril Line Cargo væri að hefja sigl-
ingar með ferju, milli Þorlákshafnar
og Rotterdam í Hollandi. Kom jafn-
framt fram að ferjan tæki 90 tengi-
vagna og 500 bíla í hverri ferð. Ferjur
af þessu tagi hafa verið nefndar ekju-
skip. Sömuleiðis kom fram að þriðj-
ungi meira magn kæmist í tengivagn
en hefðbundinn 40 feta gám.
„Á níunda áratugnum tóku menn
ákvörðun um að hætta rekstri þess-
ara skipa því þau hentuðu ekki
rekstrarumhverfi viðskiptavina fé-
lagsins. Eimskip er áætlunar-
siglingafélag sem siglir á margar
hafnir. Þær eru ekki allar útbúnar til
að taka ekjuskipum. En alþjóðlega
eru gámaflutningar algerlega ráðandi
við flutning vara á milli landa.“
Ólafur segir varðandi þann þátt að
meira magn komist í tengivagn en
hefðbundinn 40 feta gám, að það ráð-
ist af þyngd vörunnar sem flutt er.
„Þær vörur sem mest er flutt af frá
landinu eru fiskur, ál og önnur þunga-
vara. Það eru mjög strangar reglur
hér á landi og annars staðar í Evrópu
um hversu þungur flutningabíll má
vera á vegum. Það er því oftar en ekki
að flutningsrými er ekki fullnýtt í gámi
vegna þyngdar farmsins.
Hann segir Eimskipafélagið oft hafa
horft til þessarar flutningaaðferðar í
gegnum tíðina. „Niðurstaðan hefur
ávallt orðið sú að gámar henti betur.“
Leitað var viðbragða Samskipa af
sama tilefni en félagið kaus að tjá sig
ekki um efnið.
Telja gáma hentugri til sjóflutninga
Eimskipafélagið hætti rekstri ekjuskipa snemma á níunda áratug síðustu aldar