Morgunblaðið - 22.12.2016, Síða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er fædd og uppalin áBarðaströndinni, á bæn-um Seftjörn, en ég fluttiað heiman þegar ég var
fimmtán ára, af því ég þurfti að
fara í skóla, burt frá sveitinni.
Fyrst fór ég í Héraðsskólann í
Reykholti í Borgarfirði, síðan í
Menntaskólann á Ísafirði, þá í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
og þaðan í Háskóla
Íslands í Reykjavík til
að nema guðfræði. Ég
bætti svo við mig námi
í Kennaraháskóla Ís-
lands og fór svo aftur í
háskólann til að læra
mannfræði. Seinna
fluttist ég til Patreks-
fjarðar og enn seinna
til Noregs, og þar vant-
aði mig rætur. Ég fann mig knúna
til að fara til heimahaganna, svo ég
skellti mér í einu sumarfríinu á Ís-
landi heim á Barðaströndina í
gönguferð og í framhaldinu fór að
ganga meira um þetta svæði. Ég
gekk það eiginlega í mig að eiga
heima þarna, gat staðsett mig í
heiminum,“ segir Elva Björg Ein-
arsdóttir, höfundur bókarinnar
Barðastrandahreppur, göngubók.
„Eftir að ég flutti heim frá
Noregi fyrir tólf árum fór ég að
ganga meira fyrir vestan og ég átt-
aði mig á að það var ekkert minna
að sjá á Barðaströnd en víða
annarsstaðar þar sem ég hafði
gengið. Upp úr því kviknaði þessi
hugmynd að segja frá því. Bókin
hefur því verið í vinnslu í áratug.“
Talaði við heimafólk
Elva Björg segir að hún og
yngsta dóttir hennar, Þuríður, hafi
markvisst byrjað að ganga um
Barðaströndina fyrir átta árum, en
þá með það í huga að gera bók um
barnagönguleiðir.
„Þuríður hefur gengið flestar
þessar leiðir sem eru í bókinni, frá
því hún var sex ára, sem er yndis-
legt, því samvera með barni í
gönguferðum er mjög gefandi,“
segir Elva Björg sem stúderaði
Ég þurfti að stað-
setja mig í heiminum
Fyrir um áratug fór Elva Björg Einarsdóttir markvisst að ganga um
æskuslóðir sínar, Barðaströndina, með dóttur sinni, með það í huga að
gera bók um barnagönguleiðir. En á leiðinni breyttist bókin í göngubók
fyrir alla aldurshópa með hugleiðingum höfundar, fróðleik um jarðfræði,
fornleifar, örnefni og sögur á bak við þau.
Göngugarpur Elva Björg á leiðinni á Auðnaöxl sem er á Hjarðarnesi.
Svalar þorsta Þuríður dóttir Elvu og göngufélagi við upptök Miðhlíðarár.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Besta aðferðin til að geyma brauð er
við stofuhita í óemeleruðum leirpotti.
Aðrir möguleikar eru brauðkassar,
vaxhúðaðir brauðpokar eða pappírs-
pokinn sem bakarinn pakkaði brauðinu
í. Á vefsíðu Landssambands bakara-
meistara, www.labak.is, er ýmis fróð-
leikur um brauð og geymslu þeirra. Þar
segir m.a. að í leirpotti sé lítil hætta á
að mygla myndist og sama eigi við um
brauðkassa sem lokast ekki loftþétt.
Þá er ráðlagt að strjúka yfir brauð-
geymsluna með klút vættum ediki til
að hindra myglumyndun.
Best er að geyma skorin brauð
þannig að skurðarflöturinn snúi niður
því þá þornar brauðið hægar.
Brauð með háu hlutfalli af rúg, heil-
korni eða súrdeigi geymast best. Með
réttri meðhöndlun má geyma hvít
brauð í allt að 2 daga, hveitibrauð
blönduð með rúg í 2 til 4 daga, rúg-
brauð blönduð með hveiti í 3 til 4
daga, rúgbrauð í 4 til 6 daga og
kjarnarúgbrauð í 7 til 9 daga.
Vefsíðan www.labak.is
Morgunblaðið/Ómar
Brauðmeti Fátt bragðast betur en nýbakað brauð. Hin stökka sæla varir þó ekki.
Kanntu brauð að geyma?
Á jólatónleikunum KEXMas á KEX
Hostel, sem hefjast kl. 21 í kvöld,
fimmtudag 22. desember, á KEX
Hostel koma m.a. fram tónlistar-
mennirnir góðkunnu Salka Sól,
Snorri Helga og Valdimar.
Þegar blóðþrýstingurinn fer yfir
heilbrigð mörk í jólastressinu get-
ur verið afslappandi að koma sér
fyrir á notalegum stað og njóta
tónleika húsbandsins á KEX við
tólgarkertaljós í rólegheitum. Um
leið má gæða sér á eggjapúnsi,
jólabjór, möndlum og því sem er á
jólamatseðli Sæmundar í spari-
fötunum.
Húsbandið skipa þau Andri Ólafs-
son, Magnús Magnússon, Salka Sól
Eyfeld, Snorri Helgason, Valdimar
Guðmundsson og Örn Eldjárn. Þau
hafa getið sér gott orð í hljóm-
sveitum á borð við Moses Hightower,
Ylja, Valdimar, Tilbury, AmabAdamA
og Snorri Helgason. Á dagskránni eru
sígræn íslensk jólalög í bland við
nokkur erlend, t.d. Líða fer að jólum,
Fyrir jól og Little Christmas.
Aðgangur er ókeypis.
KEXMas stemning á KEX Hosteli í kvöld
Sígræn íslensk og erlend jólalög
Húsbandið Örn Eldjárn, Snorri Helgason og Salka Sól í fremri röð. Fyrir aftan
þau standa f.v. Andri Ólafsson, Magnús Magnússon og Valdimar Guðmundsson.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12 s: 551-4007, Meba, Kringlunni s: 553-1199,
Meba - Rhodium, Smáralind s: 555-7711 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554 4320
Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úr-
smiður, Hafnargötu 49 s: 421-575 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi s: 462-2509
RAYMOND WEIL söluaðilar