Morgunblaðið - 22.12.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
„Íslendingar eru afar hrifnir af partýspilum um
jólin. Spilum sem hægt er að koma auðveldlega í
gang og eru ekki of flókin,“ segir Svanhildur Eva
Stefánsdóttir, annar eigandi verslunarinnar
Spilavinir. Hún segir úrvalið fjölbreytt fyrir jólin
og erfitt sé að benda á eitthvert eitt spil sem jóla-
spilið í ár. „Sjaldan hafa komið jafnmörg stór spil
út eins og fyrir jólin í ár. Þetta eru sannkölluð
spilajól.“
Svanhildur segir greinilegt að framleiðendur
hafi vandað til verka fyrir jólin í ár í vali á spilum
til að þýða og staðfæra á íslensku. „Íslendingar
eru líka mikið fyrir orðaleiki og finnst gaman að
leika sér með tungumálið,“ segir Svanhildur. Nú
fyrir jólin kom út íslenska spilið Fuglafár sem
Svanhildur segir tilvalið fyrir fólk á öllum aldri.
Spilið er fallega myndskreytt með myndum af ís-
lensku fuglunum og spurningum um þá. „Þetta er
fallegt spil sem hægt er að stilla upp á borð sem
skrauti.“ Viðskiptahópur Spilavina er fjölbreyttur
og því seljast jafnt spil fyrir börn og fullorðna.
Partýspilin alltaf vinsæl
„Partýspilin eru vinsæl í jólaboðin en fólk er að
átta sig á því að það er hægt að spila á öðrum
tímum en bara um jólin,“ segir Svanhildur. Hún
segir töluverða aukningu hafa orðið á spilasölu í
ár frá því í fyrra hjá Spilavinum en starfs-
mannafjöldi verslunarinnar er tífaldaður dagana
fyrir jól. „Fólk er farið að spá meira í spil en það
gerði áður og hvað henti þeim sem komi til með
að spila það. Mikilvægast er þó að velja spil þann-
ig að upplifunin verði sem skemmtilegust,“ segir
Svanhildur.
Ágúst Þorvaldsson, starfsmaður verslunar-
innar Nexus, er sammála Svanhildi og segir erfitt
að nefna einhvert eitt spil sem jólaspilið í ár.
Hann segir þó partýspilið Codenames, kortaspilið
7 Wonders og kúrekaspilið Colt Express hafa
verið afar vinsæl fyrir jólin í Nexus. „Spil er vin-
sæl jólagjöf og fólki finnst gaman að spila eftir
jólamatinn í fríinu.“ kristinedda@mbl.is
Íslendingar hrifnir af orðaleikjum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jólaspil Spilaúrvalið er fjölbreytt.
Spilasala eykst með ári hverju Partýspil vinsæl á meðal Íslendinga
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, bendir á að Isavia
loki ekki flugvöllum vegna veðurs
heldur sé það flugmanna og flug-
rekstraraðila að ákveða hvort þeir
lendi á viðkomandi velli eða ekki.
Ekkert sjúkraflug var á suðvest-
urhorni landsins í um sex tíma eftir
hádegi í fyrradag. Ekki var hægt
að lenda í Reykjavík og Keflavík
vegna of mikils hliðarvinds, eins og
fram kom í samtali við Þorkel Ás-
geir Jóhannesson, flugmann í
sjúkraflugi hjá Mýflugi, í Morgun-
blaðinu í gær.
Guðni Sigurðsson leggur áherslu
á að Isavia sjái um rekstur flugvalla
og sjái til þess að búnaður sé í lagi,
sjái um snjóhreinsun og hálku-
varnir, flugumferðarstjórn og
fleira. Flugmenn og flugrekstrar-
aðilar meti aðstæður og sé þar tek-
ið til aðstæðna á brottfararflug-
velli, á flugleiðinni og á
flugvellinum sem lent er á.
Ýmsar ástæður
Eftir að ríkið og Reykjavíkur-
borg sömdu um að loka braut 06/24
er Reykjavíkurflugvöllur tveggja
brauta völlur. „Það er auðvitað
besta þjónustan að vera með flug-
brautir í sem flestar áttir en það er
þó ekki það eina sem veldur því að
ekki er flogið. Stundum hafa flug-
menn kosið að fljúga ekki jafnvel
þegar allar þrjár brautir voru opn-
ar,“ segir Guðni og áréttar að það
sé alltaf ákvörðun flugstjóra og
flugrekstraraðila hvort lent sé eða
ekki út frá þeim aðstæðum sem
skapast hverju sinni.
Loka ekki
vegna veð-
urskilyrða
Isavia svarar
gagnrýni Mýflugs
Morgunblaðið/RAX
Neyðarbrautin Henni hefur verið
lokað á Reykjavíkurflugvelli.
Einn Íslendingur var með allar töl-
urnar réttar í Víkingalottóinu í
gærkvöldi og vann heilar 53,4 millj-
ónir króna. Auk hans var einn
Norðmaður með fyrsta vinning.
Þá fékk einn íslenskur spilari 2.
vinning í Jókernum og fær 100 þús-
und krónur í sinn hlut.
Vinningsmiðinn var keyptur í
Olísbásnum í Keflavík og vænlegri
jólagjöf vart hægt að hugsa sér.
Íslendingur vann
53 milljónir króna