Morgunblaðið - 22.12.2016, Side 34

Morgunblaðið - 22.12.2016, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Eiríkur Kristján Að-alsteinsson, iðn-rekstrarfræð- ingur og þjónustustjóri upplýsingatæknisviðs hjá útgerðarfyrirtækinu Sam- herja, á 50 ára afmæli í dag. „Ég verð að viður- kenna að ég lít alltaf á mig sem Akureyring. Ég fædd- ist hér á fjórðungssjúkra- húsinu en var snemma kominn suður yfir heiðar enda foreldrarnir búsettir þar. Alltaf vildi ég þó norður og man varla eftir mér öðruvísi en hér á Ak- ureyri hjá afa og ömmu í öllum fríum. Það kom síð- an aldrei annað til greina en að fara í MA. Ég flutti hingað aftur þegar ég fór í menntaskólann og hef bú- ið hér síðan. Ætli það sé ekki hreyf- ing, flug og tölvur sem eru áhugamál,“ segir Eiríkur aðspurður. „Ég er með einkaflugmannsskírteini sem er reyndar útrunnið í augnablik- inu þó skömm sé frá að segja, en ég hef alltaf haft gaman af flugvélum og flestu því sem tengist flugi. Ég mæti reglulega í þrekþjálfun yfir vetrartímann og stunda strandblakið á sumrin í Kjarnaskógi með óskaplega skemmtilegu fólki. Svo eru það skíðin. Það er alveg skelfi- legt snjóleysið sem er búið að vera hérna. Um þetta er þrasað auðvit- að því sumir vilja snjó og aðrir ekki. Ég er með snjónum. Það birtir svo mikið þegar hann er yfir öllu og mér finnst það yfirgnæfandi rök plús skíðin auðvitað.“ Á afmælisdaginn hefur verið sá háttur á hjá Eiríki að hafa opið hús. „Á virkum degi eins og núna er þetta milli 17 og 23. Þá getur fólk í jólastressi komið heim og fengið sér kaffi og kökur á milli búða. Það er erfitt að fá fólk í partýstand á þessum degi þannig að afmælishófið verður 7. janúar á afmælisdegi frænda míns og uppeldisbróður Júl- íusar Más Larsen. Hann er einnig fimmtugur og við ætlum að halda sameiginlega 100 ára gleði þá.“ Sambýliskona Eiríks er Guðrún Sigurjónsdóttir, þjónustuliði í Verkmenntaskóla Akureyrar, en þau eru nýtrúlofuð eftir 14 ára sam- búð. Synir Eiríks af fyrra sambandi eru Egill Örn, f. 1989, og Atli Freyr, f. 1992 og dóttir Eiríks og Guðrúnar er Sigrún Dalrós, f. 2006. Feðginin Eiríkur og Sigrún Dalrós. Venjan að hafa opið hús á afmælisdaginn Eiríkur K. Aðalsteinsson er fimmtugur í dag Þ orgeir Daníelsson fædd- ist í Reykjavík 22.12. 1946 og ólst þar upp í húsi foreldra sinna að Laugavegi 76. Auk þess var hann mikið hjá afa sínum og ömmu, Þorgeiri nafna sínum og Al- dísi, sem bjuggu í næsta nágrenni, við Lindargötuna: „Það var gott að eiga innhlaup hjá afa og ömmu, en þar gat ég verið með dúfnakofann minn. Á þessum árum var það mikið sport hjá strákum að eiga dúfur. Auk þess var ég með mikla bíladellu á þessum árum og fylgdist náið með nýjum árgerðum af Ford og Chevr- olet og öðrum flottum glæsikerrum frá Bandaríkjunum.“ Þorgeir var í Austurbæjarskóla og lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Austurbæjar. Þorgeir hóf kornungur störf við fjölskyldufyrirtækið Vinnufatabúð- ina, sem alla tíð hefur verið til húsa að Laugavegi 76. Þar vann hann með skóla á lager fyrirtækisins og við afgreiðslustörf. Hann tók síðan við verslunarrekstrinum, ásamt bróður sínum, Daníel, við lát föður þeirra, 1992, en skömmu síðar tóku Þorgeir og eiginkona hans við rekstri fyrirtækisins og hafa verið starfrækt Vinnufatabúðina síðan. „Það var afi minn, hann Þórarinn Kjartansson, sem keypti húsið Laugaveg 76 og flutti þá fyrirtækið sitt Gúmmívinnustofuna þangað. Hann mun hafa verið fyrstur til að setja upp dekkjaviðgerðarverk- stæði hér á landi, sinnti auk þess öðrum gúmmíviðgerðum bjó til gúmmílímið Gretti og framleiddi gúmmískó úr slöngum úr hjól- börðum. Einnig voru í Gúmmí- vinnustofunni framleiddar vatns- heldar svuntur fyrir fiskverkunar- húsin. Vinnufatabúðin var rekin í húsinu frá 1940. Afi stofnaði fyrirtækið sem faðir minn tók síðan við en nú starf- ar þar fjórða kynslóðin. Fyrirtækið hefur ætíð verið að Laugavegi 76 en auk þess á fleiri stöðum um hríð, s.s. á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs. Við höfum alltaf verið stolt af okk- ar fyrirtæki, höfum fyrst og fremst lagt áherslu á að þjónusta vinnandi Þorgeir Daníelsson, eigandi Vinnufatabúðarinnar – 70 ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Traust fyrirtæki Í þessu húsi hóf Vinnufatabúðin rekstur sinn árið 1940 og hefur verið starfrækt þar síðan. Frægt fjölskyldu- fyrirtæki í fjóra ættliði Akureyri Hrafndís Rós Jó- hannsdóttir fæddist 5. októ- ber 2015 kl. 13.06. Hún vó 4.340 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Ragna Kristín Jónsdóttir og Jóhann Rúnar Sigurðsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is Herslulykill 1/2" 18V Hámarks átak 400 Nm, 3 átaksstillingar 1,5 Ah rafhlaða og hleðslutæki fylgir ásamt lofttoppum 17, 19, 21mm. Kemur í tösku RB 5133002476 33.921 Tilboð Áður 37.690.- 10.990 Tilboð Áður 16.900.- Topplyklasett 1/2" 10-36mm Vandað topplyklasett frá RedTex. Toppar 10-36mm, skrall 1/2", framlengingar, átaksskaft og liður. Samtals 23 stk. RT MS423

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.