Morgunblaðið - 22.12.2016, Síða 41

Morgunblaðið - 22.12.2016, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Þegar minna verður meira Langur skuggi bbbbm Kvartettar og septett eftir íslensk tónskáld [allir heimsfrumfluttir]. Atli Heimir Sveinsson: Sjö smá- munir (6:18; ca. 1960/1990). Karól- ína Eiríksdóttir: Sex lög fyrir strengjakvartett (9:29; 1983). John Speight: Strengjakvartett nr. 2 (9:48; 1974). Leifur Þórarinsson: Kvartett nr. 3 (9:58; 1992). Sveinn Lúðvík Björnsson: ...og í augunum blik minninga (13:45; 2006). Hauk- ur Tómasson: Langur skuggi* (17:35; 1999). Félagar úr Kammer- sveit Reykjavíkur: Rut Ingólfsdóttir & Sigurlaug Eðvaldsdóttir f., Þór- unn Ósk Marinósdóttir vla., Hrafn- kell Orri Egilsson s. + [í *] Júlíana Elín Kjartansdóttir f., Sigurður Bjarki Gunnarsson s. og Richard Korn kb. Hljóðritun: Tæknirekstrar- deild Ríkisútvarpsins og Stúdíó Sýrland. Tekið upp í Víðistaðakirkju 2/2006, 2/2007 og 6/2012. Hljóð- meistari: Páll Sveinn Guðmunds- son. Meistrun: Hljóðstafir. Smekk- leysa SMK90, 2015. Heildartími: 67:35. Virtasta grein („genre“) kammertónlistar, allt frá því er Haydn festi hana í sessi á ofan- verðri 18. öld, er vafalítið strengjakvar- tettinn fyrir tvær fiðlur, víólu og selló. Þrátt fyrir árklassískar rætur og 250 ára hefð að baki hefur hún staðið af sér flestar form- og stílbylt- ingar með þvílíkum glæsibrag að enn í dag er greinin jafnvel fram- sæknustu tónsmiðum eftirsótt keppikefli og metnaðarfullur áfangi á sköpunarferlinum. Í stuttri listmúsíksögu Íslands bar framan af lítið á frumsömdum verkum fyrir strengjakvartett og varla nema von. Fagmenntuðum tónskáldum tók fyrst að fjölga upp úr miðri 20. öld, og flytjendur með næga kammerreynslu voru fyrst í stað af skornum skammti. Ef treysta má New Music in Iceland Görans Bergendal gætu verkin fram að því (1991) verið innan við tug að tölu; nánar tiltekið eftir Jón Leifs [2], Helga Pálsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Atla Heimi Sveinsson, Karólínu Eiríksdóttir [Sex lög] og Snorra Sigfús Birgisson. Þótt kvartettsmíðum hafi fjölgað verulega síðan (h.u.b. 60 virðast nú skráð hjá Íslenzkri tónverkamið- stöð), þá hefur enn ekkert strok- fereyki starfað lengur en fáein ár í senn. Jafnvel þótt íslenzkir strengjaleikarar hafi í seinni tíð skilað ótrúlegum árangri nánast í hjáverkum, þá hefur vantað slíkan fastan hóp til frambúðar og hvatn- ingar frumsmíða, líkt og þegar Beethoven gat gengið að Schupp- anzigh vísum – með sögulegum ár- angri. Það er því athyglivert hvað tón- höfundar landsins hafa samt náð að sinna kvartettsmíðum á undan- förnum 2-3 áratugum í ljósi að- stæðna – svo bætist ekki við ötul útþensla dægurtóngreina á ann- arra kostnað í æ stórmarkaðs- væddara framboði. Að skuli þrátt fyrir allt takast að gefa út disk með framsækna nútímatónlist við hæfi líklega fámennasta hlustenda- hóps landsmanna má að sama skapi kalla afrek á mörkum hins mögulega. Veit það vonandi á við- eigandi framhald. Alltjent spillir sízt fyrir frábær upptaka. Hún er í senn skýr og hljómmikil, og samstillt gæðatúlk- un flytjenda sömuleiðis eftirrenn- urum til fyrirmyndar. Það er enda sláandi hvað hugverk höfunda virðast njóta sín vel í þessari tignu umgjörð, og ætti frágang- urinn sízt að letja til frekari dáða síðar meir. Eins og gengur er engu hægt að spá um endingargildi nýrra tónverka, sem birtast að auki í fyrsta sinn í hljóðriti. Viðtaka augnabliksins ræður þá mestu, og bezt í sveit eru jafnan sett þau verk er hvetja til ítrekaðrar hlust- unar, háð forsendum og smekk hvers og eins. Hvað undirritaðan varðar stóð hvað mest upp úr síð- asta og lengsta verkið (raunar ekki kvartett heldur septett fyrir 3 fiðlur, víólu, 2 selló og bassa) eftir Hauk Tómasson, m.a. fyrir að leyfa sér nú sjaldheyrðan en því skemmtilegri bullandi púls- rytma í hröðu þáttunum, auk ör- þáttasyrpna Atla Heimis og Kar- ólínu Eiríksdóttur er sýndu og sönnuðu að ,minna er meira‘ eins og Engilsaxar segja. Þarnæst nokkru vandteknari kvartett Leifs Þórarinssonar heitins. En öll höfðu verkin sinn sjarma á einn eða annan hátt, og er því óhætt að mæla með þessum – innan síns sérgeira – magnaða hljómdiski. Úr liðinni framtíð I call it bbbmn Verk eftir Atla Heimi Sveinsson [öll heimsfrumflutt]. Píanókvintett* (17:07; 1994/2002). Fjórir söngvar við pólsk og íslensk ljóð** (15:22; 1979). I call it*** (24:10; 1974). Anna Guðný Guðmundsdóttir pí- anó, Rut Ingólfsdóttir & Sigurlaug Eðvaldsdóttir f., Þórunn Ósk Mar- inósdóttir vla. og Sigurður Bjarki Gunnarsson s.* – Rannveig Braga- dóttir MS, Einar Jóhannesson klar., Rut Ingólfsdóttir f., Þórunn Ósk Marinósdóttir vla. og Inga Rós Ing- ólfsdóttir s.** – Signý Sæmunds- dóttir S, Hrafnkell Orri Egilsson s., Eggert Pálsson & Árni Áskelsson slagverk, Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanó.; stjórnandi: Bern- harður Wilkinson.*** Hljóðritað í Víðistaðakirkju 6/2002 og 2/ 2005. Hljóðmeistari: Páll Sveinn Guðmundsson. Smekkleysa SMK87, 2015. Heildartími: 59:25. Fjölbreytninni sem birtist í tón- verkum Atla Heimis Sveinssonar er við brugðið; jafnvel svo að gár- ungar hafa líkt honum við marg- lita kameljón. En eins og Atli Ing- ólfsson tónskáld skrifar í disk- bæklingi á óvenjuþjálu og auð- skildu máli var þessi fyrr- verandi enfant terrible nýrr- ar íslenzkrar tónsköpunar í rauninni aldr- ei neinn upp- reisnarseggur per se heldur aðeins þjónn list- rænna þarfa hvers verks og ávallt reiðubúinn að sniðganga módern- íska tízku tímans þegar með þurfti, án þess að gera sér neitt að reglu – þótt hafi flestum fremur fylgzt með straumum og stefnum á löngum ferli. Með undangengnum fyrirvara mynda mörg verk hans því jafn- framt furðunæm tímahylki úr lið- inni framtíð ef svo má kalla. Verk- in þrjú á þessum diski eru í öfugri tilurðarröð, og vill svo skemmti- lega til að hið yngsta, þríþætti Píanókvintettinn frá 1994/2002, er á sinn hátt n.k. síðbúin ,brúkunar- músík‘ í 60 ára eldri anda Hindem- iths, enda upphaflega saminn fyrir flinkustu nemendur Tónlistarskól- ans í Reykjavík. Bráðskemmtilegt stykki með stöðuga tilvísun í Eng- inn grætur Íslending (alías Yfir kaldan eyðisand) í hæga Elegie miðþættinum og gáskafullan drop- ótt skoppandi lokaþátt að hætti franskra miðaldadansa. Næst fylgja Fjórir söngvar við pólsk og íslenzk ljóð (2+2) í dún- þýðri söngtúlkun Rannveigar Fríðu Bragadóttur er lýsa mikilli textainnlifun höfundar. Að því loknu kemur svo I call it, ,kantata‘ að hætti postexpressjónískra radd- tækniþróuða 8. áratugar sem Ruth Little Magnússon frumflutti á sín- um tíma en hér í glampandi með- ferð Signýjar Sæmundsdóttur, er spannar allt frá talsöng Schön- bergs í fjölbarkabeitta nálgun Ber- ios og Cathy Berberian. Síðasta verkið er að minni vit- und hlutfallslega tormeltast í með- töku, en dulrómantísku pólsk- íslenzku söngvarnir kváðu hins vegar hafa fagnað óvenjumiklum vinsældum þegar í upphafi. Hvað sem því annars líður er túlkun flytjenda þar sem fyrr með mikl- um ágætum. Stutt saga – en í stöðugri sókn Yfirlit yfir nýjar íslenskar klassískar plötur Ríkarður Ö. Pálsson rikardur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn I call it „Með undangengnum fyrirvara mynda mörg verk [Atla Heimis] því jafnframt furðunæm tímahylki úr liðinni framtíð ef svo má kalla.“ ATH: Sýningartíma dagsins í dag (22.des), má finna inná midi.is eða laugarasbio.is LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI á allar myndir allan daginn, á morgun.* Jólin byrja í Laugarásbíói 750 kr á morgun, þorláksmessu *Nammipoki frá Nóa Síríus ásamt Svala eða kók frá Vífilfelli fylgir öllum miðum á allar sýningar fyrir kl. 19:00 GUNTER FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AULINN ÉG Skötuveisla Veislumiðstöðvarinnar Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6 Þorláksmessu 23. desember 2016 frá kl. 11-15 Pantanir í síma 517 0102 Yfirforinginn Sveinn Valtýsson býður ykkur uppá: Vel kæsta skötu Mildari skötu Tindabykkju Saltfisk Úrvals síldarétti Gratineraðan plokkfisk Hamsatólgur Feiti Rófustappa Hnoðmör Kartöflur Rúgbrauð og flatkökur Verð kr. 3990.- Hrímaðir snapsar og kaldir bjórar á tilboði veislumidstodin.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.