Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 124
Það var mikill heiður að fá viðurkenningu sem þessa,“ segir Hildur Ársælsdóttir sem tók við starfi sem almanna-tengill og markaðsstjóri
BIO EFFECT á síðasta ári. „Þessi
viðurkenning hefur verið veitt í
31 ár og er ein elsta viður-
kenning sem veitt er í
þessum bransa. Oft er
vísað til hennar sem
Óskarsverðlaunanna
innan snyrtivöru-
geirans. Ritstjórar
og blaðamenn hjá
fremstu tískutíma-
ritum heims tilnefna
og dæma sjálfir snyrti-
vörurnar sem þeim finnst
bestar, en engum framleiðendum
er boðið að senda sínar snyrtivörur
í keppnina. Þess vegna er þetta
enn meiri heiður,“ útskýrir Hildur
sem er afar stolt af því að vinna hjá
BIOEFFECT en áður vann hún hjá
snyrtivörurisanum L’Oréal.
„Í þau 31 ár sem verðlaunin hafa
verið veitt hafa þau yfirleitt farið
til þekktustu snyrtivörufyrirtækja
heims, en nú kemur lítið snyrti-
vörufyrirtæki frá Íslandi og vinnur.
Það er einstakt. Varan sem um ræðir
er BIOEFFECT 30 Day Treatment
en hún er virkasta varan okkar og
hefur vakið mikla athygli.“
En hver er galdurinn á bak við
velgengni BIOEFFECT? „Fyrst og
fremst erum við með góða
vöru sem virkar. Það er
kjarni árangurs okkar.
Við heyrum mjög oft
frá neytendum að þeir
sjái og finni mun eftir 4-6
daga notkun á vörunum
okkar. Eins leggjum við mikla
áherslu á að stilla vörunni fallega
fram. Fallegar umbúðir gleðja augað
og gefa loforð um gæði auk hinnar
ævintýralegu sögu um uppruna
vörumerkisins á Íslandi sem og
hinn vísindalega bakgrunn þess,“
segir Hildur sem er viss um að BIO-
EFFECT sé búið að stimpla sig inn
á heimskortið en fyrirtækið er með
starfsemi á 28 mörkuðum.
„Sérfræðingar og neytendur um
allan heim eru að að hrósa vör-
unum okkar. Útflutningur á heims-
markaði jókst um 42% á síðasta ári,
þrátt fyrir styrkingu krónunnar,
sem hefur ekki komið íslenskum
útflutningsfyrirtækjum til góða.
Jafnvel á okkar heimamarkaði jókst
salan á vörum okkar um 15% árið
2016 milli ára.“
Það er margt spennandi fram
undan hjá BIOEFFEC. „Það er engin
spurning að við höfum fengið mikla
athygli á nýjum markaðssvæðum
eins og Bandaríkjunum, þar sem við
hófum sölu á vörunum síðasta haust
og einnig Asíu, en Kína var okkar
stærsti markaður á síðasta ári. Nú
höfum við sýnt fram á að varan upp-
fyllir loforðin, það er það sem neyt-
andinn vill. Svo get ég sagt ykkur
að við erum að vinna að nokkrum
nýjum og spennandi verkefnum í
vöruþróun, m.a. nýtt öflugt serum
í haust og hreinsilínu sem kemur á
markað vorið 2018. Það er því um
nóg um að vera hjá BIOEFFECT og
framtíðin er björt.”
gudnyhronn@365.is
Fengu hálfgerð
Óskarsverðlaun
Nýlega hlaut húðvara frá BIOEFFECT verðlaun frá Marie Claire sem
kallast „Prix d'excellence de la beauté“ og þykja afar eftirsótt. Mark-
aðsstjóri BIOEFFECT, Hildur Ársælsdóttir, er að vonum himinlifandi.
Hildur Ársælsdóttir er markaðsstjóri og yfirmaður almannatengsla BIOEFFECT.
FréTTaBlaðIð/STEFÁn
Húðdroparnir umræddu
auka kollagen- og elastín-
magn húðarinnar.
Ármúla 31 - við hliðina á innréttingar og tæki
hjá Varma Dagana 2.-5. febrúar
Verksmiðju
útsala
afsláttur
40-70%
Opið:
Laugard. og sunnud. kl. 12-15
• Lítið útlitsgallaðar vörur
• vörur sem hættar eru í framleiðslu
• tvinnar og efnisbútar
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r80 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
9
-1
A
1
C
1
C
2
9
-1
8
E
0
1
C
2
9
-1
7
A
4
1
C
2
9
-1
6
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K