Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 14
salan á búnaðarbankanum ŠKODA Fabia hefur verið valinn bíll ársins þrjú ár í röð af hinu virta breska bílatímariti What car? Það er ekki á hverjum degi sem þú getur fengið annan eins verðlaunagrip á svona frábæru verði og með fimm ára ábyrgð. Komdu við hjá okkur í HEKLU eða skráðu þig á hekla.is/fabia og fáðu Fabiu til reynslu í sólarhring. Hlökkum til að heyra frá þér. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is BÍLL ÁRSINS 2017 ER ÞINN Í HEILAN SÓLARHRING ŠKODA FABIA / MEÐ FIMM ÁRA ÁBYRGÐ Verð frá aðeins 2.220.000 kr. „Niðurstöður skýrslunnar eru studdar þannig gögnum að um þetta verður ekki deilt meir,“ segir Finnur Vilhjálmsson, starfsmaður rann­ sóknarnefndar Alþingis um söluna á Búnaðarbankanum. Sterkur orð­ rómur hefur verið uppi í áraraðir um að þýski bankinn Hauck & Auf­ häuser hafi verið leppur annarra félaga við kaupin á Búnaðarbank­ anum. Fréttablaðið greindi fyrst frá því á mánudag en skýrsla rann­ sóknarnefndarinnar, sem kynnt var í gær, sýndi blekkingarnar sem beittar voru svart á hvítu. Síðastliðið vor fékk Umboðs­ maður Alþingis ábendingu sem þótti svo traust að sett var af stað rannsókn á kaupunum. Eins manns nefnd Kjartans Björgvinssonar var skipuð í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvernig raunverulega var staðið að sölunni. Fjölmennari nefnd hefði getað dregið víðtækari ályktanir um mögulegt glæpsamlegt athæfi en ef lög voru brotin varðandi kaupin, þá eru þau fyrnd í dag. Mennirnir tveir segja að þrátt fyrir tímasetninguna viti þeir ekki til þess að Panamalekinn, sem var opin­ beraður síðastliðið vor, hafi hrint þeirri atburðarás af stað sem leiddi til þessarar niðurstöðu. „Það eru engin gögn sem koma beint þaðan, ekki svo við vitum. Það er auðvitað ákveðinn samhljómur að því leyti að lögmannsstofan Mossack Fon­ seca stofnar Marine Choice Limited, sem er aflandsfélag Ólafs Ólafssonar og nýtur góðs af fjármununum. Og félögin eiga þau sammerkt að vera á Tortóla, en það hefur ekkert með lekann sem slíkan að gera okkur vitanlega,” segir Kjartan. Gögnin sem nefndin vann eftir lágu öll fyrir hjá opinberum aðilum á borð við embætti sérstaks saksókn­ ara, Fjármálaeftirlitið, Ríkisendur­ skoðun, slitastjórn Kaupþings og á fleiri stöðum. Í þessu máli er ekki hægt að tala um einhverja einstaka uppljóstrara, ef frá er talinn einn afar mikilvægur heimildamaður. „Eini heimildarmaðurinn í þeim skilningi er fyrrverandi meðeigandi í Hauck & Aufhäuser sem upplýsti nefndina um að ef þetta hefði verið raunveruleg fjárfesting af hálfu bank­ ans þá hefði hún alltaf verið tekin fyrir í stjórninni, þar sem hann sat. Hann tjáði nefndinni að samkvæmt hans besta minni hefði þetta mál aldrei komið til kastar stjórnar og því hefði bankinn ekki verið fjárfestir," segir Kjartan. Finnur tekur undir þetta. „Þetta voru ansi markverðar upplýsingar að fá því fyrir utan þessa tvo menn sem tengdust þessu innan bankans, það er Peter Gatti sem var einhvers konar framkvæmdastjóri og andlit út á við, og svo Martin Zeil sem vann að bak­ samningnum, er hann eina nafnið sem skrifaði undir þetta umboð.“ Í gær sendi Ólafur Ólafsson frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar niðurstöðu nefndarinnar. „Gögnin sem skýrslan byggir á eru samtímagögn. Gögnin eru ítarleg og greina frá allri atburðarásinni og hvernig var staðið að þessum blekk­ ingum með ítarlegum hætti,“ segir Kjartan. Hann tekur fram að nefndin hafi sýnt mikla varfærni í framsetningu þeirra sönnunargagna sem lágu fyrir. Aðeins þeir starfsmenn Kaupþings sem tóku með beinum hætti þátt í verknaðinum eru nafngreindir, en ekki þeir sem nefndin gat aðeins staðfest að hefðu fengið senda til sín tölvupósta um viðskiptin án þess að svara þeim eða skrifa sjálfir undir einhverja gjörninga. „Þetta er rakið á grundvelli gagnanna. Gögnin tala. Ég held að almenningur viti að auð­ vitað gerist það oft þegar umræða er óþægileg fyrir einhverja aðila að það koma einhverjir og reyna að afvega­ leiða umræðuna. En þá verður fólk bara að standa vaktina og láta ekki afvegaleiða sig.“ snaeros@frettabladid.is Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu Kjartan Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson segja flest gögn um fléttuna á bakvið kaupin á Búnaðarbanka þegar hafa legið fyrir hjá helstu eftirlitsstofnunum ríkisins. Aðeins hafi átt eftir að draga þau saman og rekja punktana, frá aflandsfélagi til aflandsfélags. Finnur Vilhjálmsson og Kjartan Björgvinsson hafa rannsakað kaupin á Bún- aðarbankanum frá því í júlí á síðasta ári. FréttaBlaðið/anton BrinK Hver á Dekhill Advisors Ltd.? Þann 18. janúar 2005 greiddi Hauck & Aufhäuser 46,5 milljónir Bandaríkjadollara, sem samsvarar 2,9 milljörðum íslenskra króna, inn á reikning aflandsfélagsins Dekhill Advisors. Bankareikn- ingurinn er í útibúi svissneska bankans Julius Bär & Co í Zürich. Greiðslan samsvaraði nærri helmingi þess hagnaðar sem félagið Welling & Partner hafði hlotið eftir söluna á bankanum. Félagið Dekhill Advisors Ltd. kemur hvergi annars staðar fyrir í þeim gögnum sem rannsóknar- nefnd Alþingis hafði. Nefndin hafði einungis formlegt skráning- arvottorð félagsins, sem stofnað var á Bresku Jómfrúaeyjum 25. júlí 2005. Rannsóknarnefndin veit hvorki hver eða hverjir standa að baki félaginu og ekki hvað varð um fjármunina. Nefndin dregur þó þær ályktanir miðað við önnur gögn að það hljóti að vera Kaupþing sjálft eða aðilar tengdir Kaupþingi. Restin af bankareikn- ingi Welling & Partners, samtals 58 milljónir dala, var greidd inn á félag Ólafs Ólafssonar, Marine Choice Limited. 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r14 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð 3 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 2 -9 B 7 8 1 C 9 2 -9 A 3 C 1 C 9 2 -9 9 0 0 1 C 9 2 -9 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 2 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.