Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 16
Öryggishnappinn er hægt að fá sem armband eða hálsmen!
Nánar á oryggi.isÖryggismiðstöðin | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 – Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
71
48
4
ÖRYGGISHNAPPUR
Það er mikilvægt að við gætum vel hvert að öðru. Öryggishnappurinn getur verið dýrmætt
öryggistæki fyrir okkar nánustu. Þegar þrýst er á hnappinn berast boð til stjórnstöðvar,
talsamband opnast og jafnframt er öryggisvörður sendur strax af stað í útkall.
Reykskynjari
tengdur stjórnstöð
fylgir frítt með
Bretland Donald Tusk, forseti leið-
togaráðs Evrópusambandsins, tók í
gær við bréfi frá Theresu May, for-
sætisráðherra Bretlands, þar sem
hún óskar formlega eftir úrsögn
Bretlands úr ESB.
„Hvað get ég sagt?“ sagði hann.
„Við söknum ykkar nú þegar.“
Hann sagðist ekki geta verið
ánægður á þessum degi, en tók þó
fram að útganga Bretlands, Brexit,
hefði sitthvað jákvætt í för með sér:
„Brexit hefur gert okkur ákveðnari
og samhentari en áður,“ sagði hann.
Fram undan er tveggja ára ferli
með flóknum samningaviðræðum,
en Tusk sagði markmið viðræðn-
anna vera að lágmarka allan kostn-
að fyrir íbúa Evrópusambandsins,
fyrirtæki þess og aðildarríkin.
„Við áttum okkur á því að það
hefur afleiðingar að Bretland segi
skilið við ESB,“ sagði hún í bréfi
sínu til Evrópusambandsins. „Við
vitum að við munum missa áhrif
á þær reglur sem móta efnahagslíf
Evrópu. Við vitum að bresk fyrir-
tæki sem eiga í viðskiptum við ESB
munu þurfa að laga sig að reglum
sem settar eru af stofnunum sem við
eigum ekki lengur aðild að, rétt eins
og við gerum á markaðssvæðum
annars staðar. Við föllumst á það.“
Hún sagði Breta ekki óska eftir
aðild að Evrópska efnahagssvæðinu
og tók fram að hún skildi vel að ESB
gæfi engan afslátt af fjórfrelsinu.
Hins vegar vonist hún til þess að
eftir aðskilnaðinn verði samband
Bretlands og Evrópusambandsins
„djúpt og sérstakt“, eins og hún
orðar það. Meðal annars vonast hún
til þess að Bretland og ESB geti gert
„djarfan og metnaðarfullan“ samn-
ing um frjáls viðskipti: „Hann ætti að
verða víðtækari og metnaðarmeiri
en nokkur slíkur samningur sem
áður hefur verið gerður.“
Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi
UKIP-flokksins og um árabil helsti
baráttumaðurinn fyrir útgöngu
Bretlands úr ESB, sagðist vera himin-
lifandi: „Í dag er draumurinn um hið
ómögulega að rætast.“
Michel Barnier, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakklands, verður
aðalsamningamaður Evrópusam-
bandsins í viðræðunum við Bretland.
Breska dagblaðið The Independent
fullyrðir, en vitnar í ónafngreindan
heimildarmann, að Barnier hafi kraf-
ist þess að viðræðurnar við Breta fari
fram á móðurmáli hans, frönsku, og
jafnframt verði öll skjöl í tengslum
við þessar viðræður á frönsku.
Bretar þurfa því að styðjast við
skjalaþýðingar og túlka, sem ESB
greiðir að vísu kostnaðinn af.
gudsteinn@frettabladid.is
Vonast eftir góðum samningi
© GRAPHIC NEWSHeimild: Financial Times, Bloomberg Myndir: Associated Press
29. mars, 2017: Theresa May, forsætisráðherra Bretlands,
virkjar 50. grein Lissabonsamningsins með því að tilkynna
ESB formlega um uppsögn aðildar Bretlands
2017
2017
2017
2017
2018 2018 2019
Mars-Apríl: Hin 27 ESB-ríkin koma sér saman um
meginmarkmið sín fyrir samningaviðræðurnar
29. apríl: Leiðtogafundur aðildarríkjanna 27 staðfestir meginmarkmið
samningaviðæðnanna og ákveðin „rauð strik“ sem verða ófrávíkjan-
leg. Michel Barnier verður aðalsamningamaður ESB
Maí, London: Stóra ógildingarfrumvarpið lagt
fram á breska þinginu. Það nemur úr gildi bresku
Evrópusambandslöggjöna og þar með 80
þúsund reglugerðir frá ESB. Jafnframt verður
Evrópudómstóllinn sviptur lögsögu í Bretlandi.
Maí-sept: Framkvæmdastjórn ESB þróar samningsumboð
sem aðildarríkin 27 þurfa að samþykkja áður en viðræður við
Bretland geta hast. Þetta ferli gæti tekið allt að hálfu ári.
Des: Barnier vill semja fyrst um aðskilnað en bíða með viðræður
um viðskiptasamning þangað til Bretland fellst á að greiða 60
milljarða evra fyrir útgönguna, tryggja réttindi 3,3 milljóna
ríkisborgara annarra ESB-ríkja sem búa í Bretlandi, og ganga frá
landamærum Norður-Írlands og stöðu Gíbraltar.
Mars 2018: Breska stjórnin
vonast til að þá liggi fyrir
samkomulag um fyrirkomulag
brotthvarfsins úr ESB. Því lengur
sem það dregst því meiri hætta
þykir á því að fyrirtæki ytji
árfestingar sínar frá Bretlandi.
Október: Lokafrestur
Barniers til að ná samkomu-
lagi. Takist það fá aðildarríki
ESB, Evrópuþingið og
ráðherraráðið mm mánuði
til að staðfesta samninginn.
Mars 2019:
Reiknað með
staðfestingu
samningsins ljúki.
Breska þingið
kjósi jafnframt
um samninginn.
✿ tveggja ára ferli hafiðVill ekki aðild að Evr-
ópska efnahagssvæðinu
en vonast til að ná frí-
verslunarsamningi við
ESB. Forseti leiðtogaráðs
ESB segist strax byrjaður
að sakna Bretlands.
Nigel Farage, fyrrverandi
leiðtogi UKIP, er himin-
lifandi.
tækni Samsung kynnti í gær nýjustu
snjallsímana í Galaxy-línu sinni,
Samsung Galaxy S8 og S8+.
Þrátt fyrir að innvolsið sé nýrra og
öflugra er stærsti munurinn fólginn
í hönnun símanna. Í stað hinna
hefðbundnu ramma í kringum skjá
símans nær skjárinn nærri út á allar
brúnir framhliðarinnar. Einungis
mjó ræma er skilin eftir auð neðst á
símanum og þá fá hátalari og sjálfu-
myndavél pláss efst.
Þetta veldur því að enginn heima-
takki er sjáanlegur á símanum.
Hann er í staðinn falinn undir
snertiskjánum.
Samsung kallar hönnunina
„Endalausan skjá“ og gerir nýja
hönnunin það að verkum að skjár-
inn er mun stærri en á símum sömu
stærðar.
Þannig er skjárinn á S8 alls 5,8
tommur samanborið við 4,7 tommu
skjáinn á iPhone 7. Skjárinn á S8+
er 6,2 tommur samanborið við 5,5
tommu skjá iPhone 7 Plus. – þea
Endalaus skjár á
Galaxy S8
Samsung Galaxy S8. NordicphotoS/AFp
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F i m m t U d a G U r16 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-8
7
B
8
1
C
9
2
-8
6
7
C
1
C
9
2
-8
5
4
0
1
C
9
2
-8
4
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K