Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 19
Maður er nefndur Andrey Krutskikh. Hann er ráð-gjafi ríkisstjórnar Rúss-
lands um öryggis- og upplýsinga-
mál. Hann hélt ræðu á ráðstefnu í
Moskvu í febrúar 2016 þegar bar-
áttan um forsetaembættið í Banda-
ríkjunum var nýhafin. Í ræðu sinni
sem hann hélt á rússnesku sagði
Krutskikh að stórveldin tvö stæðu
nú í sömu sporum og 1948, þ.e.
árið áður en Rússar byggðu fyrstu
kjarnorkusprengju sína fjórum
árum á eftir Bandaríkjamönnum.
Eftir það gátu Rússar staðið jafn-
fætis kananum í hernaðarlegu
tilliti. Það flýtti fyrir Rússum að
austur-þýzkur kommúnisti, Klaus
Fuchs, lak upplýsingum til þeirra.
Fuchs hafði unnið í Los Alamos
þar sem bandarísku bomburnar
tvær sem var varpað á Hiroshima
og Nagasaki 1945 voru búnar til.
Enginn vissi þá nema Truman
Bandaríkjaforseti og menn hans að
þriðja sprengjan var ekki til.
Ég vara ykkur við, sagði Krutsk-
ikh í ræðu sinni í Moskvu, við
erum að ná slíku valdi á upp-
lýsingahernaði að við getum
aftur talað við Bandaríkjamenn
sem jafningjar. Sterkt Rússland
getur sagt Vesturlöndum fyrir
verkum, bætti hann við skv. frá-
sögn Washington Post, sjónvarps-
stöðvarinnar CNBC o.fl. miðla.
Frá grun til vissu
Fyrr höfðu vaknað grunsemdir
sem jaðra við fullvissu um að Rúss-
ar hafi gert tölvuárás á Eistland
2007 og síðan einnig Georgíu 2008
áður en Rússar réðust þangað inn
með vopnavaldi. Tölvuárásirnar
fólust í að láta vefsetur stjórnvalda
kikna undan álagi, brjótast inn í
þau til að breyta innihaldinu o.fl.
Þannig birtist t.d. mynd af Hitler á
vefsetri forsætisráðherra Georgíu.
Í þessu ljósi hlaut grunur að
beinast að Rússum þegar stolnir
tölvupóstar demókrata tóku
að birtast á vefsetri Wikileaks í
aðdraganda forsetakjörsins vestra
í haust leið. Upplýsingar um skipu-
legar lygaherferðir á vefnum og
samfélagsmiðlum lögðust á sömu
sveif. Þessi grunur hefur nú breytzt
í fullvissu yfirvalda í Bandaríkjun-
um enda verður ekki séð að Rússar
reyni að hylja sporin, ekki frekar
„Ég vara ykkur við“
Ósvífnasta „dópingsvindl“ sem þú veist um. Með þessari dæmalausu ósvífni
endaði nýjasta greinin þín sem
þú skrifaðir þann 16. mars síðast-
liðinn. Það er óþolandi að sitja
stöðugt undir ásökunum þínum,
nú síðast nærri 16 árum eftir að ég
var sýknuð af Lyfjadómstóli ÍSÍ. Svo
virðist sem þú hafir aldrei áttað þig
á kjarna þessa máls, eða það sem
verra er, viljir ekki gera það and-
stætt betri vitund.
Ég er körfuknattleikskonan sem
fékk árið 1997 greiningu hjá bæði
heimilislækni og lungnasérfræð-
ingi um astma og áreynsluastma og
uppáskrift um viðeigandi innönd-
unarlyf í framhaldinu. Í lyfjapróf-
inu umrædda árið 2001, eins barns-
lega og það hljómar, láðist mér að
taka fram að ég væri á umræddu
astmalyfi. Það voru mistök sem
samkvæmt ströngustu reglum var
samt sem áður ekki nægjanlega
alvarlegt brot til að gert væri ráð
fyrir viðurlögum samkvæmt laga-
bókstafnum sem um málið gilti. Því
var ég sýknuð af dómstólnum sem í
sat mikilsmetið fagfólk með þekk-
ingu á svið lífvísinda og lögfræði.
Í málinu var ljóst að mér höfðu
orðið á mistök sem enginn ásetn-
ingur lá á bak við en þau var sem
betur fer hægt að útskýra með ein-
földum hætti. Læknaskýrslur um
greiningu mína voru lagðar fram
ásamt álitsgerð prófessors um að
lyfið væri ekki árangursbætandi
en gott til að meðhöndla áreynslu-
astma. Hefur einhver einhvern tím-
ann heyrt um að körfuboltamaður
hafi notað astmapúst til að bæta
árangur í íþrótt sinni? Þannig var
óvart framið brot á formsatriðum
sem voru leiðrétt og báru ekki
með sér nein refsiákvæði. Það kom
einnig skýrt fram í yfirlýsingu frá
alþjóða körfuknattleikssamband-
inu FIBA sem var að finna í máls-
gögnunum en þú reyndir að stinga
undir stól á einstaklega óheiðar-
legan hátt.
Ef lyfið væri árangursbætandi
eða ef ég hefði verið að taka það án
ávísunar læknis skildi ég kannski
heift þína. Miðað við staðreyndir
málsins er hins vegar óskiljanlegt
hvernig þú virðist hafa bitið þetta
mál í þig eins og raun ber vitni. Ef
það er vegna gremju út í tengda-
föður minn út af alls óskyldum
málum bið ég þig að láta af þessari
vindmylluorrustu sem lýsir sér sem
ítrekuð og fólskuleg árás á mig og
íþróttaferil minn. Einbeittu þér þá
frekar að honum einum, hann er
alveg maður til þess að svara sjálfur
fyrir sig.
Ég var fyrirliði míns félagsliðs
og landsliðsleikmaður og tók þau
hlutverk alvarlega. Ég hefði aldr-
ei reynt að ná mér í forskot með
óheiðarlegum hætti. Hver sem
kynnir sér málið sér að það snerist
ekki um firnaflókið samsæri til að
tryggja að tengdadóttir Kára Stef-
ánssonar kæmist upp með að gera
sig að ofurhetju með pústi af leyfðu
en tilkynningarskyldu astma lyfi
sem hún var með læknaávísun
fyrir, heldur er hér á ferðinni árátta
sorgmædds einstaklings sem virð-
ist ekki sætta sig við staðreyndir og
dómsniðurstöðu.
Dæmalaus ósvífni
Kristín Björk
Jónsdóttir
fyrrverandi
landsliðskona í
körfubolta Ef það er vegna gremju út í
tengdaföður minn út af alls
óskyldum málum bið ég
þig að láta af þessari vind-
mylluorrustu sem lýsir sér
sem ítrekuð og fólskuleg árás
að mér og mínum íþrótta-
ferli. Einbeittu þér þá frekar
að honum einum, hann er
alveg maður til þess að svara
sjálfur fyrir sig.
Þorvaldur
Gylfason
Í dag en þeir sáu ástæðu til að þegja um fyrstu atómbombu sína 1949, þvert
á móti. Sumir telja að með þessu
hafi Rússar e.t.v. ráðið úrslitum for-
setakosninganna í Bandaríkjunum.
Grunur um landráð
Vísbendingar hrannast nú upp
um að Trump forseti og menn
hans kunni að hafa haft samráð
við Rússa m.a. um tölvuhernaðinn
gegn Bandaríkjunum. Fyrst tóku
menn eftir því að menn Trumps
báðu um aðeins eina breytingu á
stefnuskrá Repúblikanaflokksins
á flokksþinginu í sumar leið: þeir
báðu um að gagnrýni á hernað
Rússa gegn Úkraínu yrði numin
burt. Þeim var alveg sama um allt
hitt. Skömmu síðar, í lok júlí 2016,
hóf alríkislögreglan FBI rannsókn
á meintu samneyti Trumps og
manna hans við Rússa eins og nú
er komið á daginn. Forstjóri FBI
greindi í tvígang fyrir kosningar frá
rannsókn lögreglunnar á tölvu-
póstum Clintons, frambjóðanda
demókrata, en sagði ekki orð um
hina rannsóknina sem snýst þó
að því er virðist um hugsanleg
landráð.
Menn tóku einnig eftir því að
Trump hallaði hvergi orðinu á
Pútín forseta og stjórnarhætti
hans, öðru nær, ólíkt nær öllum
repúblikönum á þingi. Nú er
komið í ljós að kosningastjóri
Trumps, Paul Manafort, var
launaður leynilegur erindreki
ríkisstjórnar Pútíns auk annarra
ávirðinga. Áður hafði nýr dóms-
málaráðherra í ríkisstjórn Trumps,
Jeff Sessions frá Alabama, þurft að
segja sig frá rannsókn á Rússa-
tengslum Trumps og manna hans
vegna funda sem hann átti með
Rússum. Nýskipaður öryggismála-
ráðgjafi forsetans, Michael Flynn,
var staðinn að lygum um samtöl
við Rússa og neyddist til að segja af
sér. Tengdasonur og helzti ráðgjafi
forsetans, Jared Kushner, átti fund
með bankastjóra sem er hand-
genginn Pútín forseta; bankinn
er á svörtum lista bandarískra
yfirvalda, þ.e. háður lögbundnu
viðskiptabanni.
Rannsókn þingsins í uppnámi
Báðar deildir Bandaríkjaþings
hófu rannsókn á málinu, hvor í
sínu lagi. Repúblikanar hika og
hafa meiri hluta í báðum deildum
en demókratar heimta rannsókn
og engar refjar enda snýst málið
um hugsanleg landráð. Enginn
veit nú hvort nefndir þingsins
reynast vandanum vaxnar. Enginn
veit heldur hvort rannsókn lög-
reglunnar fær að renna sitt skeið
eða ekki. Óháð rannsókn er trúlega
eina vitið ásamt skipun sérstaks
saksóknara ef nauðsyn krefur en
slík rannsókn verður ekki sett í
gang nema fyrir tilstilli þingsins.
Enn hallar á bandarískt lýðræði
eins og margir Bandaríkjamenn
viðurkenna nú opinberlega, þ. á m.
Steven Hall sem fór með málefni
Rússlands í leyniþjónustunni CIA
1985-2015.
Það veit þó kannski á gott að
margir bandarískir þingmenn
og aðrir vilja komast til botns í
málinu. Það er meira en hægt er að
segja um viðbrögðin sem fyrir-
spurnir á Alþingi um meint Rússa-
tengsl íslenzkra banka hafa fengið.
Það veit þó kannski á gott
að margir bandarískir þing-
menn og aðrir vilja komast
til botns í málinu. Það er
meira en hægt er að segja um
viðbrögðin sem fyrirspurnir
á Alþingi um meint Rússa-
tengsl íslenzkra banka hafa
fengið.
Dagskrá
Krafa um hagkvæmni við
úthlutun stofnframlaga
Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir,
markaðsstjóri Íbúðalánasjóðs
Lóðaframboð og lóðaverð
Almar Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins
Byggingarkostnaður
Guðmundur Sigfinnsson,
hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði
Færanleg snjallhús til að leysa
bráðavanda í Stokkhólmi
Claes Eliasson, Junior Living
Bygging hagkvæmra íbúða
Hagkvæmar íbúðir í Urriðaholti
Þórarinn Ævarsson, IKEA
Forsteyptar einingalausnir
Guðjón Jónsson, Loftorka
Snjallhús
Óskar Jónasson, EcoAtlas
Treaeiningar
Haraldur Ingvarsson, Fibra-hús
Málþing um
hagkvæmar
íbúðir
569 6900 8–16www.ils.is
Leitast verður við að svara því hvernig byggja megi sem flestar íbúðir
með þeim ármunum sem ríkið leggur til í stofnframlög.
Forsmíðaðar einingar
Berta Gunnarsdóttir og Jakob Helgi
Bjarnason, Modulus
Hagkvæm íbúðarhús úr steinullar-
einingum og límtré
Dennis Davíð Jóhannesson og Hjördís
Sigurgísladóttir, arkitektar FAÍ
Snjallar lausnir
Þorvaldur Gissurarson, ÞG verktakar
Lokaorð
Hannes Frímann Sigurðsson,
verkefnisstjóri Byggingarvettvangs
Fundarstjóri er Una Jónsdóttir,
hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði
•
•
•
•
•
•
•
Staður
Íbúðalánasjóður, Borgartúni 21.
Stund
Fimmtudaginn, 30. mars, kl. 13–16.
Skráning á ils.is.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 3 0 . M a R S 2 0 1 7
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-A
5
5
8
1
C
9
2
-A
4
1
C
1
C
9
2
-A
2
E
0
1
C
9
2
-A
1
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K