Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
V ið hittumst í júní og við smullum saman, það er eitthvað sem er svo líkt með okkur að það var bara eins og við hefðum alltaf
þekkst. Ætli það sé ekki sama nörda-
genið í okkur báðum. Ég stakk upp á
því að hún kæmi til íslands, hún er
að læra jarðfræði og hvergi áhuga-
verðara að vera en á Íslandi þegar
kemur að því. Henni leist bara vel á
það, þrátt fyrir að hafa aldrei stigið
upp í flugvél áður,“ segir Brynja
Dan Gunnarsdóttir, spurð út í það
hvernig það kom til að systir hennar,
Dilmi, kom í heimsókn til Íslands.
Brynja fór ásamt Sigrúnu Ósk
Kristjánsdóttur, dagskrárgerðarkonu
á Stöð 2 og umsjónarmanni þáttarins
Leitin að upprunanum, til Srí Lanka í
leit að fjölskyldu sinni í fyrrasumar,
en Brynja var ættleitt til Íslands sem
ungbarn.
„Ég setti mér það markmið dag-
inn sem ég hitti fjölskyldu mína að
halda samskiptunum og fá Dilmi
hingað og helst þau öll einn daginn
og það er svo gott að vera búin að fá
það í gegn,“ segir Brynja og bætir við
að hún láti ekki segja sér hver megi
heimsækja hana og hver ekki.
Það gekk ekki þrautalaust fyrir
Dilmi að komast til landsins því
að þegar hún ætlaði fyrst að koma
hingað í febrúar fékk hún ekki vega-
bréfsáritun.
„Ég tók ekki annað í mál en að hún
kæmi hingað, sama hvað. Ég fékk svo
mikinn stuðning frá fólkinu í kring-
um mig í þeirri baráttu, fyrir það er
ég endalaust þakklát,“ segir hún.
Það er óhætt að segja að systurnar
hafi átt góðar stundir hér á Klak-
anum og Dilmi fékk að upplifa allt
það besta sem Ísland hefur upp á að
bjóða.
„Við fórum í geggjaða vélsleða-
ferð með Mountaineers. Hún var
að sjá og koma við og smakka snjó
í fyrsta sinn og gerði það með stæl á
vélsleða uppi á jökli. Svo fórum við í
Bláa lónið og áttum yndislegan tíma
þar. Hún hefur mikinn áhuga á jarð-
hita og öllu því magnaða sem landið
okkar býr yfir. Síðan fórum við á
Geysi og í bústað þar sem við sáum
norðurljósin og borðuðum íslenskt
lamb. Við kíktum í fjórhjólaferð
og á hestbak, svo áttum við yndis-
legan systratíma, hittum flesta mína
nánustu í kaffi, borðuðum súkkulaði,
settum á okkur maska og hlógum,
og grétum yfir bíómyndum,“ segir
Brynja þakklát.
Brynja er staðráðin í því að halda
áfram góðum samskiptum við fjöl-
skyldu sína á Srí Lanka og segir að
Dilmi eigi eftir að koma aftur í heim-
sókn.
„Við reynum líklegast að skiptast
á, því þetta er ekki ódýrt ferðalag en
hún kemur aftur og vonandi í skóla í
framtíðinni. Svo eru líklega að opn-
ast dyr sem gera mér kleift að vera
eitthvað á Srí Lanka af og til. Ég bíð
bara spennt eftir frekari fregnum af
því verkefni. Svo mun bróðir minn
líklega gifta sig á næstu árum svo það
er ýmislegt sem stendur til á næst-
unni,“ segir Brynja.
Fékkstu að vita eitthvað meira
um fjölskyldu þína úti? „Já, mamma
okkar er ekki alveg til í að deila með
mér hvað pabbi minn heitir, hún og
amma eru þær einu sem vita það.
Dilmi er mjög meðvituð um að það
sé ekki uppi á borðinu og reynir því
að grípa allt sem þær missa út úr sér
varðandi hann og sendir mér það
svo. Hún sagði mér núna að mamma
hefði minnst á að ég væri með sama
bros og hann, sem var gaman að
heyra.
Það er gaman að sjá hvað við erum
líkar, vinkonur mínar tóku eftir því
að við værum með alveg eins takta
og hreyfingar, svo er ég nefnilega
mjög lík hinni systur minni sem er
líka ættleidd, svo það er alveg greini-
legt að bæði gen og umhverfi hafa
mikið að segja,“ segir Brynja.
gudrunjona@frettabladid.is
Smakkaði snjó í fyrsta skipti
Brynja Dan Gunnarsdóttir hafði uppi á líffræðilegri fjölskyldu
sinni í þættinum Leitin að upprunanum og í kjölfarið kom Dilmi,
yngri systir Brynju, í heimsókn til Íslands og naut hverrar mínútu.
Brynja Dan Gunnarsdóttir fékk litlu systur sína frá Srí Lanka í heimsókn, en þær systur hittust fyrst í júní á síðasta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/GvA
Brynja ásamt systur sinni, Dilmi, og
syni sínum, Mána, í Bláa lóninu.
Brynja fór með systur sína í vélsleða-
ferð með Mountaineers.
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r58 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
22.03.17 - 28.03.17
1 2
5 6
7 8
109
43 Örvænting B.A. Paris
Löggan
Jo Nesbø
Svefn
Erla Björnsdóttir
Handan fyrirgefningar
Þórdís Elva & Tom Stranger
Undur Mývatns
Unnur Jökulsdóttir
Iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
Andartak eilífðar
Paul Kalanithi
Stúlkurnar á Enlandsferjunni
Lone Theils
Konan sem hvarf
Anna Ekberg
Sannfæring og rök
Ólafur Páll Jónsson
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-9
B
7
8
1
C
9
2
-9
A
3
C
1
C
9
2
-9
9
0
0
1
C
9
2
-9
7
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K