Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 32
Lena hefur alltaf haft mikinn áhuga á straumum og stefnum í tískuheiminum en hún lærði hárgreiðslu og útskrifaðist
frá Tækniskólanum fyrir tæpum sex árum.
Fljótlega eftir útskrift keppti hún í hár-
greiðslu fyrir hönd Íslands í WorldSkills sem
er heimsmeistarakeppni iðn- og verkgreina
og náði ágætum árangri.
„Mér finnst ekkert eins skemmtilegt og að
búa eitthvað til með höndunum, hvort sem
það tengist hári, fatahönnun eða teiknun.
Hárgreiðslan er mitt aðalstarf en ég var
ákveðin í því strax sem lítil stelpa að verða
hárgreiðslukona. Undanfarið hef ég líka
verið að hanna föt í samstarfi við þrjá aðra.
Fatalínan heitir Riptide en auk mín eru
það Stefán John Turner, Ásgeir Örn Eyjólfs-
son og Arnar Þorri Sigþórsson,“ segir Lena,
sem vinnur á hársnyrtistofunni Blondie í
Mörkinni.
Riptide fatalínan hefur vakið töluverða
athygli og þau hafa selt flíkur til Banda-
ríkjanna og Bretlands og fyrirhugað er að
kynna fatalínuna hérlendis innan skamms.
Vinkonurnar ýmsu vanar
Lena hefur gaman af því að blanda saman alls
konar stíl þegar kemur að fatavali. „Það fer
eftir því í hvernig skapi ég er, hvernig ég klæði
mig. Ég myndi segja að ég hafi minn eigin
stíl, ég er óhrædd við að prófa ýmsar sam-
setningar og hef mjög oft hneykslað vinkonur
mínar sem hrista stundum hausinn yfir mér.
Þær eru þó orðnar ýmsu vanar.“
Hún segir sinn helsta veikleika þegar
kemur að tísku og útliti að hún geti verið
dálítið sein að taka sig til. Henni finnst gaman
að kaupa föt en heldur þó ekki upp á neitt
sérstakt fatamerki. „Ég er ekkert merkjafrík.
Ég kaupi það sem mér finnst fallegt og þægi-
legt, sama hvað það heitir, þannig að það er
allur gangur á því hvar ég kaupi fötin mín.
Ég hef verið mikið úti í London og verslað
aðeins í Primark og H&M eins og hver annar
Íslendingur en uppáhaldsbúðirnar mínar eru
Corner Shop í Smáralind, en ég elska að fara
þangað og fæ hvergi betri þjónustu, Gyllti
kötturinn, Bershka og Topshop í London.“
Uppáhaldsflík Lenu er úlpa úr Gyllta kett-
inum sem er bæði falleg og þægileg og heldur
vel á henni hita yfir kaldan veturinn. Lena
segist ekki nota aðra fylgihluti dagsdaglega
en hringana sína og Marilyn Monroe er efst á
listanum yfir tískufyrirmyndirnar.
Buxurnar eru úr
Topshop, síða, svarta
blússan er keypt í
H&M, hvíta loðpeysan
er úr náttfatadeildinni
í Primark og rauðu
skórnir eru líka úr Pri-
mark. MYND/STEFÁN
Blússan er
úr Primark í
London, her-
mannabuxurnar
úr Topshop í
London, skórnir
eru keyptir í
Skónum þínum
í Smáralind.
MYND/STEFÁN
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Vörunúmer: 00501-0162
Í Danmörk kr 12.851*
Í Svíþjóð kr 11.287*
*Skv. Verðskrá Levi.com og gengistöflu
Íslandsbanka 24.03.17
501 ORIGINAL KR.
11.990
Leví s Kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . m a r S 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-9
1
9
8
1
C
9
2
-9
0
5
C
1
C
9
2
-8
F
2
0
1
C
9
2
-8
D
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K