Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 36
Ég hef mjög gaman
af því að klippa mig
sjálf en vinkona mín litar
á mér hárið. Það fer alltaf
mjög skemmtilegt ferli í
gang þegar við förum í
hárið á mér. Við erum
alveg óhræddar við
tilraunir. Ása Bríet Brattaberg
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Ása Bríet Brattaberg Ingólfsdóttir klæðskeri stefnir á að ganga bara í sérsaumuðu í árslok. mynd/Anton BrInk
Sjálfsmynd unnin með hátískuperlu-
saumi.
Ása lærði perlusauminn í St. martins
í London.
Þennan kjól hannaði Ása og vinkona
hennar saumaði.
Ef mig vantar nýja flík korter í djamm sauma ég eitthvað eða bæti einhverju við eldri
flík. Markmiðið er að vera bara í
sérsaumuðu í lok árs,“ segir Ása
Bríet Brattaberg Ingólfsdóttir,
klæðskeri og nemandi í textíldeild
Myndlistaskólans í Reykjavík en
hún saumar á sig föt fyrir öll tæki-
færi.
„Ef ég ætti að lýsa eigin stíl
væri kannski hægt að segja „stíl-
hreinn rokkari“. Ég set mitt tvist á
hlutina. Er oftast í svörtu, bara af
því það er svo þægilegur litur, en
poppa útlitið upp með útsaumi úr
perlum eða glingri,“ segir hún.
„Útsaumur er róandi og þægi-
legt að grípa í hann á kvöldin. Ég
fór á námskeið hjá St. Martins
í London í „haute couture“
útsaumi en hann er unninn á
sérstakan ramma með sérstakri
nál, bæði með perlum og með
útsaumsþræði. Ég vinn mikið
með afstraktform en svo gerði
ég sjálfsmynd í perlusaum sem
kom skemmtilega út. Ég setti þá
mynd á kápuna mína. Mér finnst
skemmtileg pæling að gera „selfie“
með útsaumi.“
Sjálfsmyndin vakti athygli enda
fer hárlitur Ásu ekki framhjá
neinum.
„Ég er með eldrautt, áberandi
hár og sérstaka klippingu. Ég hef
mjög gaman af því að klippa mig
sjálf en vinkona mín litar á mér
hárið. Það fer alltaf mjög skemmti-
legt ferli í gang þegar við förum
í hárið á mér. Við erum alveg
óhræddar við tilraunir,“ segir Ása
hlæjandi og segist í gamni vera að
byggja upp ákveðna ímynd fyrir
framtíðina í tískubransanum.
„Fólk man eftir þessu hári. Ég verð
bara eins og Karl Lagerfeld með
köttinn.
Ég vissi strax hvað það var sem
ég vildi læra. Ég stunda núna nám
í textíldeild Myndlistaskólans í
Reykjavík en ég útskrifaðist sem
klæðskeri frá Tækniskólanum
síðasta vor. Mig langaði að byggja
upp meiri grunn og kynnast
efnum í undirbúningi fyrir fata-
hönnun. Stefnan er að klára BA
úti í Glasgow og fara svo í fram-
haldsnám í fatahönnun, annað-
hvort í London eða París. Ég fór í
starfsnám fyrir tveimur sumrum
til London, hjá fatahönnuðinum
Todd Lynn og er að fara núna til
Parísar til fyrirtækis sem sérhæfir
sig í textíl. Maður öðlast mikla
reynslu í slíku starfsnámi, meira
en að vera bara í skólanum.“
Stílhreint og rokkað
Ása Bríet Brattaberg Ingólfsdóttir hefur einsett sér að
eiga bara sérsaumaðar flíkur í fataskápnum í lok árs. Hún
saumar sjálf og hannar og lærði perlusaum í London.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Nýjar vörur
Fréttablaðið eykur þjónustu sína
við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
www.likamioglifsstill.is
6 kynnInGArBLAÐ FÓLk 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m mt U dAG U r
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-E
F
6
8
1
C
9
2
-E
E
2
C
1
C
9
2
-E
C
F
0
1
C
9
2
-E
B
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K