Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2017, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 30.03.2017, Qupperneq 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is V ið hittumst í júní og við smullum saman, það er eitthvað sem er svo líkt með okkur að það var bara eins og við hefðum alltaf þekkst. Ætli það sé ekki sama nörda- genið í okkur báðum. Ég stakk upp á því að hún kæmi til íslands, hún er að læra jarðfræði og hvergi áhuga- verðara að vera en á Íslandi þegar kemur að því. Henni leist bara vel á það, þrátt fyrir að hafa aldrei stigið upp í flugvél áður,“ segir Brynja Dan Gunnarsdóttir, spurð út í það hvernig það kom til að systir hennar, Dilmi, kom í heimsókn til Íslands. Brynja fór ásamt Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, dagskrárgerðarkonu á Stöð 2 og umsjónarmanni þáttarins Leitin að upprunanum, til Srí Lanka í leit að fjölskyldu sinni í fyrrasumar, en Brynja var ættleitt til Íslands sem ungbarn. „Ég setti mér það markmið dag- inn sem ég hitti fjölskyldu mína að halda samskiptunum og fá Dilmi hingað og helst þau öll einn daginn og það er svo gott að vera búin að fá það í gegn,“ segir Brynja og bætir við að hún láti ekki segja sér hver megi heimsækja hana og hver ekki. Það gekk ekki þrautalaust fyrir Dilmi að komast til landsins því að þegar hún ætlaði fyrst að koma hingað í febrúar fékk hún ekki vega- bréfsáritun. „Ég tók ekki annað í mál en að hún kæmi hingað, sama hvað. Ég fékk svo mikinn stuðning frá fólkinu í kring- um mig í þeirri baráttu, fyrir það er ég endalaust þakklát,“ segir hún. Það er óhætt að segja að systurnar hafi átt góðar stundir hér á Klak- anum og Dilmi fékk að upplifa allt það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða. „Við fórum í geggjaða vélsleða- ferð með Mountaineers. Hún var að sjá og koma við og smakka snjó í fyrsta sinn og gerði það með stæl á vélsleða uppi á jökli. Svo fórum við í Bláa lónið og áttum yndislegan tíma þar. Hún hefur mikinn áhuga á jarð- hita og öllu því magnaða sem landið okkar býr yfir. Síðan fórum við á Geysi og í bústað þar sem við sáum norðurljósin og borðuðum íslenskt lamb. Við kíktum í fjórhjólaferð og á hestbak, svo áttum við yndis- legan systratíma, hittum flesta mína nánustu í kaffi, borðuðum súkkulaði, settum á okkur maska og hlógum, og grétum yfir bíómyndum,“ segir Brynja þakklát. Brynja er staðráðin í því að halda áfram góðum samskiptum við fjöl- skyldu sína á Srí Lanka og segir að Dilmi eigi eftir að koma aftur í heim- sókn. „Við reynum líklegast að skiptast á, því þetta er ekki ódýrt ferðalag en hún kemur aftur og vonandi í skóla í framtíðinni. Svo eru líklega að opn- ast dyr sem gera mér kleift að vera eitthvað á Srí Lanka af og til. Ég bíð bara spennt eftir frekari fregnum af því verkefni. Svo mun bróðir minn líklega gifta sig á næstu árum svo það er ýmislegt sem stendur til á næst- unni,“ segir Brynja. Fékkstu að vita eitthvað meira um fjölskyldu þína úti? „Já, mamma okkar er ekki alveg til í að deila með mér hvað pabbi minn heitir, hún og amma eru þær einu sem vita það. Dilmi er mjög meðvituð um að það sé ekki uppi á borðinu og reynir því að grípa allt sem þær missa út úr sér varðandi hann og sendir mér það svo. Hún sagði mér núna að mamma hefði minnst á að ég væri með sama bros og hann, sem var gaman að heyra. Það er gaman að sjá hvað við erum líkar, vinkonur mínar tóku eftir því að við værum með alveg eins takta og hreyfingar, svo er ég nefnilega mjög lík hinni systur minni sem er líka ættleidd, svo það er alveg greini- legt að bæði gen og umhverfi hafa mikið að segja,“ segir Brynja. gudrunjona@frettabladid.is Smakkaði snjó í fyrsta skipti Brynja Dan Gunnarsdóttir hafði uppi á líffræðilegri fjölskyldu sinni í þættinum Leitin að upprunanum og í kjölfarið kom Dilmi, yngri systir Brynju, í heimsókn til Íslands og naut hverrar mínútu. Brynja Dan Gunnarsdóttir fékk litlu systur sína frá Srí Lanka í heimsókn, en þær systur hittust fyrst í júní á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GvA Brynja ásamt systur sinni, Dilmi, og syni sínum, Mána, í Bláa lóninu. Brynja fór með systur sína í vélsleða- ferð með Mountaineers. 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r58 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 22.03.17 - 28.03.17 1 2 5 6 7 8 109 43 Örvænting B.A. Paris Löggan Jo Nesbø Svefn Erla Björnsdóttir Handan fyrirgefningar Þórdís Elva & Tom Stranger Undur Mývatns Unnur Jökulsdóttir Iceland in a Bag Ýmsir höfundar Andartak eilífðar Paul Kalanithi Stúlkurnar á Enlandsferjunni Lone Theils Konan sem hvarf Anna Ekberg Sannfæring og rök Ólafur Páll Jónsson 3 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 2 -9 B 7 8 1 C 9 2 -9 A 3 C 1 C 9 2 -9 9 0 0 1 C 9 2 -9 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 2 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.