Fréttablaðið - 30.03.2017, Side 14
salan á búnaðarbankanum
ŠKODA Fabia hefur verið valinn bíll ársins þrjú ár í röð af hinu virta breska bílatímariti What car? Það er ekki á hverjum degi
sem þú getur fengið annan eins verðlaunagrip á svona frábæru verði og með fimm ára ábyrgð. Komdu við hjá okkur í HEKLU
eða skráðu þig á hekla.is/fabia og fáðu Fabiu til reynslu í sólarhring. Hlökkum til að heyra frá þér.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
BÍLL ÁRSINS 2017
ER ÞINN Í HEILAN
SÓLARHRING
ŠKODA FABIA / MEÐ FIMM ÁRA ÁBYRGÐ
Verð frá aðeins 2.220.000 kr.
„Niðurstöður skýrslunnar eru
studdar þannig gögnum að um þetta
verður ekki deilt meir,“ segir Finnur
Vilhjálmsson, starfsmaður rann
sóknarnefndar Alþingis um söluna
á Búnaðarbankanum. Sterkur orð
rómur hefur verið uppi í áraraðir
um að þýski bankinn Hauck & Auf
häuser hafi verið leppur annarra
félaga við kaupin á Búnaðarbank
anum. Fréttablaðið greindi fyrst
frá því á mánudag en skýrsla rann
sóknarnefndarinnar, sem kynnt var í
gær, sýndi blekkingarnar sem beittar
voru svart á hvítu.
Síðastliðið vor fékk Umboðs
maður Alþingis ábendingu sem
þótti svo traust að sett var af stað
rannsókn á kaupunum. Eins manns
nefnd Kjartans Björgvinssonar var
skipuð í þeim tilgangi að varpa ljósi
á hvernig raunverulega var staðið að
sölunni. Fjölmennari nefnd hefði
getað dregið víðtækari ályktanir um
mögulegt glæpsamlegt athæfi en ef
lög voru brotin varðandi kaupin, þá
eru þau fyrnd í dag.
Mennirnir tveir segja að þrátt fyrir
tímasetninguna viti þeir ekki til þess
að Panamalekinn, sem var opin
beraður síðastliðið vor, hafi hrint
þeirri atburðarás af stað sem leiddi
til þessarar niðurstöðu. „Það eru
engin gögn sem koma beint þaðan,
ekki svo við vitum. Það er auðvitað
ákveðinn samhljómur að því leyti
að lögmannsstofan Mossack Fon
seca stofnar Marine Choice Limited,
sem er aflandsfélag Ólafs Ólafssonar
og nýtur góðs af fjármununum. Og
félögin eiga þau sammerkt að vera
á Tortóla, en það hefur ekkert með
lekann sem slíkan að gera okkur
vitanlega,” segir Kjartan.
Gögnin sem nefndin vann eftir
lágu öll fyrir hjá opinberum aðilum
á borð við embætti sérstaks saksókn
ara, Fjármálaeftirlitið, Ríkisendur
skoðun, slitastjórn Kaupþings og
á fleiri stöðum. Í þessu máli er ekki
hægt að tala um einhverja einstaka
uppljóstrara, ef frá er talinn einn afar
mikilvægur heimildamaður.
„Eini heimildarmaðurinn í þeim
skilningi er fyrrverandi meðeigandi
í Hauck & Aufhäuser sem upplýsti
nefndina um að ef þetta hefði verið
raunveruleg fjárfesting af hálfu bank
ans þá hefði hún alltaf verið tekin
fyrir í stjórninni, þar sem hann sat.
Hann tjáði nefndinni að samkvæmt
hans besta minni hefði þetta mál
aldrei komið til kastar stjórnar og því
hefði bankinn ekki verið fjárfestir,"
segir Kjartan.
Finnur tekur undir þetta. „Þetta
voru ansi markverðar upplýsingar að
fá því fyrir utan þessa tvo menn sem
tengdust þessu innan bankans, það
er Peter Gatti sem var einhvers konar
framkvæmdastjóri og andlit út á við,
og svo Martin Zeil sem vann að bak
samningnum, er hann eina nafnið
sem skrifaði undir þetta umboð.“
Í gær sendi Ólafur Ólafsson frá
sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar
niðurstöðu nefndarinnar.
„Gögnin sem skýrslan byggir á eru
samtímagögn. Gögnin eru ítarleg
og greina frá allri atburðarásinni og
hvernig var staðið að þessum blekk
ingum með ítarlegum hætti,“ segir
Kjartan.
Hann tekur fram að nefndin hafi
sýnt mikla varfærni í framsetningu
þeirra sönnunargagna sem lágu fyrir.
Aðeins þeir starfsmenn Kaupþings
sem tóku með beinum hætti þátt í
verknaðinum eru nafngreindir, en
ekki þeir sem nefndin gat aðeins
staðfest að hefðu fengið senda til sín
tölvupósta um viðskiptin án þess að
svara þeim eða skrifa sjálfir undir
einhverja gjörninga. „Þetta er rakið
á grundvelli gagnanna. Gögnin tala.
Ég held að almenningur viti að auð
vitað gerist það oft þegar umræða er
óþægileg fyrir einhverja aðila að það
koma einhverjir og reyna að afvega
leiða umræðuna. En þá verður fólk
bara að standa vaktina og láta ekki
afvegaleiða sig.“ snaeros@frettabladid.is
Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu
Kjartan Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson segja flest gögn um fléttuna á bakvið kaupin á Búnaðarbanka þegar hafa legið fyrir hjá
helstu eftirlitsstofnunum ríkisins. Aðeins hafi átt eftir að draga þau saman og rekja punktana, frá aflandsfélagi til aflandsfélags.
Finnur Vilhjálmsson og Kjartan Björgvinsson hafa rannsakað kaupin á Bún-
aðarbankanum frá því í júlí á síðasta ári. FréttaBlaðið/anton BrinK
Hver á Dekhill
Advisors Ltd.?
Þann 18. janúar 2005 greiddi
Hauck & Aufhäuser 46,5 milljónir
Bandaríkjadollara, sem samsvarar
2,9 milljörðum íslenskra króna,
inn á reikning aflandsfélagsins
Dekhill Advisors. Bankareikn-
ingurinn er í útibúi svissneska
bankans Julius Bär & Co í Zürich.
Greiðslan samsvaraði nærri
helmingi þess hagnaðar sem
félagið Welling & Partner hafði
hlotið eftir söluna á bankanum.
Félagið Dekhill Advisors Ltd.
kemur hvergi annars staðar fyrir
í þeim gögnum sem rannsóknar-
nefnd Alþingis hafði. Nefndin
hafði einungis formlegt skráning-
arvottorð félagsins, sem stofnað
var á Bresku Jómfrúaeyjum 25.
júlí 2005. Rannsóknarnefndin veit
hvorki hver eða hverjir standa að
baki félaginu og ekki hvað varð
um fjármunina. Nefndin dregur
þó þær ályktanir miðað við
önnur gögn að það hljóti að vera
Kaupþing sjálft eða aðilar tengdir
Kaupþingi. Restin af bankareikn-
ingi Welling & Partners, samtals
58 milljónir dala, var greidd inn
á félag Ólafs Ólafssonar, Marine
Choice Limited.
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r14 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-9
B
7
8
1
C
9
2
-9
A
3
C
1
C
9
2
-9
9
0
0
1
C
9
2
-9
7
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K