Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 18

Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Efnahagsleg endurreisn Íslands hefur gengið vonum framar eins og flestir mælikvarðar bera með sér. Hins vegar tekur lengri tíma að endurvekja fullt traust í samfélaginu. Nýjar fréttir af sölu Búnaðarbankans á sínum tíma eru ekki til þess fallnar að flýta því ferli og minna okkur svo sannar- lega á að vanda þarf til verka. Bankar eru í miðju hagkerfisins og við eigum öll snertifleti við banka í daglegu lífi okkar á einn eða annan hátt. Þess vegna skiptir máli að fjármálakerfið njóti trausts. Fyrsta stig endurreisnar fjármálakerfisins snerist um að halda greiðslumiðlun gangandi og stofna nýja banka á grunni þeirra föllnu. Annað stig snerist um fjárhagslega endurskipulagningu. Vanskil voru há, skuldir heimila og fyrirtækja þurfti að endurskipu- leggja auk þess sem vinna þurfti úr ýmsum eignum sem ekki tengdust kjarnastarfsemi bankanna. Þessu verkefni er nú lokið. Næsta stig endurreisnar fjár- málakerfisins snýst um stefnumörkun til framtíðar. Hvaða starfsemi bankarnir ætla að bjóða upp á, hvernig efnahagsreikningurinn á að líta út og að þeir þjóni almenningi og atvinnulífi á hagkvæman hátt. Regluverk og umgjörð almennt um fjármálakerfið hefur verið stórbætt á síðustu árum og tekur mið af alþjóðlegri þróun. Að sumu leyti eru fjármála- starfsemi meiri skorður settar hér á landi en annars staðar. Stjórnvöld þurfa á hverjum tíma að meta hvort þörf sé á breytingum. Að sama skapi þurfa þau að móta sýn um framtíð fjármálakerfisins. Frá stofnun bankanna þriggja hafa virkir fjárfestar ekki komið að þeim. Hluthafar hafa annaðhvort ekki mátt skipta sér af rekstri þeirra, eins og í tilfelli kröfu- hafa, eða ekki viljað það sökum armslengdarsjónar- miða. Til lengri tíma litið er það óheppilegt. Það þarf virka fjárfesta að bönkum sem og að öðrum fyrirtækj- um. Hluthafa sem láta sig rekstur banka og framtíð þeirra varða. Fjárfesta sem vilja taka þátt í næsta stigi endurreisnar fjármálakerfisins, byggja upp traust og spila eftir settum reglum. Gagnsæi er forsenda trú- verðugleika – og traust forsenda viðskipta. Það gildir meðal annars um eignarhald og fyrirætlanir eigenda. Næsta stig endurreisnar Sigurður Hannesson framkvæmda- stjóri hjá Kviku banka Það þarf virka fjárfesta að bönkum sem og að öðrum fyrirtækjum. Hluthafa sem láta sig rekstur banka og framtíð þeirra varða. Á milli steins og sleggju Krafa útgerðarmanna um lækkun veiðileyfagjalda er háværari nú en nokkru sinni áður. Beitir eitt fyrirtækjanna, HB Grandi, saklausum fisk- verkamönnum á Akranesi fyrir sig, en þeir missa vinnuna ef landvinnslu á botnfiski á Akra- nesi verður hætt. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmda- stjóri SFS, er á milli steins og sleggju. Hún gætir hagsmuna útgerðarinnar og fær ríkulega launað. Á hinn bóginn er hún innfæddur Akurnesingur og sveitungar hennar hljóta að hugsa henni þegjandi þörfina vegna hótana HB Granda. Lítið land Íslendingar eru fámenn þjóð, um það er engum blöðum að fletta. Það sýndi sig síðan rækilega í gær þegar fjallað var um ótrúlega fléttu sem Ólafur Ólafsson, kenndur við Sam- skip, beitti til að sölsa undir sig Kaupþing. Einn af meðreiðar- sveinum Ólafs var Bjarki Diego, eins og rannsóknarnefndin lýsti ítrekað á fundinum. Þegar rann- sóknarnefndin sat fyrir svörum hjá stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis í gær tók þar á móti þeim formaður nefndar- innar. Sá heitir Brynjar Níelsson og var verjandi Bjarka Diego þegar hann hafði réttarstöðu sakbornings á rannsóknarstigi í málum er vörðuðu hrun Kaup- þings. jonhakon@frettabladid.isOPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS Aðkoma þýska bankans Hauck & Auf-häuser að einkavæðingu Búnaðar-bankans var fullkomið sjónarspil og blekking. Þetta má lesa í skýrslu rann-sóknarnefndar Alþingis um málið sem kynnt var í gær. Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósenta hlutur ríkisins í bankanum var seldur í janúar 2003 ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. Ekkert bendir til þess að ráðherrar eða fulltrúar stjórnvalda hafi haft vitn- eskju um raunverulega aðkomu þýska bankans. Það er afdráttarlaus niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis að stjórnvöld hafi skipulega verið blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar. Gögn nefndarinnar sýna að dagana áður en skrifað var undir kaupsamninginn 16. janúar 2003 stóð hópur manna að gerð leynilegra baksamninga við Hauck & Aufhäuser um hlut bankans í Eglu hf. Baksamning- arnir fólu í sér að þýski bankinn var í reynd aðeins að nafninu til meðal kaupenda að hlut ríkisins í Bún- aðarbankanum. Með fjölda leynilegra samninga og millifærslum á fjármunum var þýska bankanum tryggt skaðleysi af viðskiptunum. Helsti hvatamaður og leiðtogi að kaupum S-hópsins í Búnaðarbankanum var Ólafur Ólafsson. Það er niður- staða rannsóknarnefndar Alþingis að ekkert bendi til að aðrir hafi átt þátt í eða vitað af baksamningunum. Ólafur hagnaðist líka með beinum hætti fjárhagslega á fléttu um aðkomu Hauck & Aufhäuser að kaupum á Búnaðarbankanum, eins og rakið er í skýrslu nefndar- innar. Af 100 milljóna dollara hagnaði sem myndaðist í fléttunni runnu 57,5 milljónir dollara á endanum til félags sem var í eigu Ólafs, Marine Choice Limited, og stofnað af lög fræði stof unni Moss ack Fon seca í Panama en skráð á Tortóla á Jómfrúaeyjum. Fjárhæðinni var síðan ráðstafað til dreifðra fjárfestinga í erlendum verð- bréfum. Það þarf mjög frjóa hugsun til að skálda svona ævintýraskap og því enn dapurlegra að hann sé sannur. Ólafur vildi ekki svara spurningum rannsóknar- nefndarinnar og var á endanum skyldaður til þess af dómstólum. Þegar Ólafur gaf loksins skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gat hann ómögulega munað neitt um viðskiptin sem skiptir máli. „Ég, þú getur ekki ætlast til þess að ég sé hérna, 15 árum síðar, að svara getgátum fjölmiðla. Bara I’m sorry,“ sagði hann. Þræðir Ólafs Ólafssonar eru alltumlykjandi í málinu. Rétt eins og í Al-Thani málinu sem hann hlaut þungan fangelsisdóm fyrir. Hér var um að ræða fléttu af sama meiði. Erlendur fjárfestir var fenginn til að ljá málinu trúverðugleika í þeim tilgangi að blekkja stjórnvöld og almenning. Tilraunir Ólafs til að hreinsa mannorð sitt eftir dóminn í Al-Thani málinu verða dálítið aumk- unarverðar þegar aðrir umdeildir samningar hans eru settir í samhengi. Hann, lögmenn hans, PR-fulltrúar og nánustu aðstandendur hafa ítrekað reynt að kasta rýrð á störf dómstóla í fjölmiðlaherferð um ætlað sakleysi hans. Það verður verkefni sagnfræðinga framtíðarinn- ar að gera upp viðskiptaferil hans á Íslandi og komast að því hversu stór hluti auðæfa hans er ávöxtur leyni- makks og blekkinga. Blekking Þræðir Ólafs Ólafssonar eru alltum- lykjandi í málinu. Rétt eins og í Al-Thani málinu sem hann hlut þungan fangelsisdóm fyrir. 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð SKOÐUN 3 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 2 -9 6 8 8 1 C 9 2 -9 5 4 C 1 C 9 2 -9 4 1 0 1 C 9 2 -9 2 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 2 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.