Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 22
Fyrir skömmu var efnt til sérstakr-ar umræðu á Alþingi um fríversl-unarsamninga, mikilvægi þeirra
og þróun á seinni árum. Málshefjand-
inn, Óli Björn Kárason, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, dásamaði frelsi
í viðskiptum og taldi að stjórnvöld
yrðu ætíð að vera opin fyrir nýjum
tækifærum. Undir þetta tók í öllum
atriðum flokksbróðir hans, Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Íslendingar hafa lifað misjafna
tíma í viðskiptum sínum við önnur
lönd. Á fyrri öldum supum við ýmsa
fjöruna við aðstæður sem hnípin þjóð
réð ekki við. Öldin er nú önnur, enn
erum við þó í nokkrum fjötrum þar
sem ríkja hindranir í framleiðslu og
opnum viðskiptaháttum innanlands
og valda því að neytendur njóta ekki
bestu mögulegu kjara. Það hefði lík-
lega verið nærtækara fyrir málshefj-
anda, Óla Björn Kárason, að gera að
umtalsefni og tala fyrir fríverslun
hér heima í stað þess að leggjast á
árarnar með þeim sem verja með
kjafti og klóm áratuga sérhagsmuna-
vörslu Sjálfstæðisflokksins, til dæmis
í landbúnaðarmálum þar sem bæði
bændur og neytendur þola órétt. Á
þeim bænum ríkir forpokuð stefna
og jafnvel umræðubann um tiltekin
frelsisákvæði í samskiptum við aðrar
Evrópuþjóðir. Sú ráðstjórnarhefð
hefur leitt til þess að hluti flokks-
manna er nú á vergangi í tilvistar-
kreppu í öðru og nýju flokksbroti.
Bylting
Enginn stjórnmálaflokkur hefur
staðið fyrir annarri eins byltingu í við-
skiptum og fríverslun við önnur lönd
og Alþýðuflokkurinn, forveri Sam-
fylkingarinnar, og stuðlað með því
að stórkostlega bættum hag almenn-
ings. Stærstu skrefin voru stigin með
haftalosun Viðreisnarstjórnarinnar
og aðild að EFTA árið 1971 undir for-
ystu Gylfa Þ. Gíslasonar, þáverandi
mennta- og viðskiptamálaráðherra.
Annað risaverkefni sem jafnaðar-
menn áttu frumkvæði að og leiddu í
milliríkjaviðskiptum var EES-samn-
ingurinn sem gekk í gildi árið 1994
eftir mikla baráttu Jóns Baldvins
Hannibalssonar, þáverandi utan-
ríkisráðherra. Fríverslunarsamtök
Evrópu og EES-samningurinn eru
helstu grunnstoðir utanríkisversl-
unar Íslendinga. Með aðildinni að
EES njóta landsmenn að langmestu
leyti sömu viðskiptakjara og meiri-
hluti annarra Evrópuríkja með um
500 milljóna manna markað.
Gæta þarf að hagsmunum okkar til
lengri framtíðar og vinna í anda þeirr-
ar stefnu sem Samfylkingin markaði
um gerð fríverslunarsamninga við
fleiri lönd, t.d. fríverslunarsamnings-
ins við Kína sem Össur Skarphéðins-
son, þáverandi utanríkisráðherra,
leiddi til lykta.
Full þátttaka í sameiginlegum
markaði Evrópuríkja er lykill að enn
betri kjörum neytenda, til að halda
framsæknum fyrirtækjum í landinu,
fjölga störfum og skapa sóknarfæri
fyrir íslenska frumkvöðla og skapandi
greinar. Aðild að ESB og virk þátttaka
fæli í sér mikil sóknarfæri á sviði full-
vinnslu sem gæti líka fjölgað störfum
og skapað mikil verðmæti í sjávar-
byggðum. Tollfrelsi myndi einnig
skapa mikla möguleika fyrir útflutn-
ing á landbúnaðarafurðum og styrkja
greinar eins og sauðfjárrækt og aðra
landbúnaðarframleiðslu.
Í baráttumálum jafnaðarmanna
er fólgið hreyfiafl til framfara. Þann-
ig hefur það verið og baráttumál
jafnaðarmanna verða áfram þau að
gæta hagsmuna fyrir venjulegt fólk,
auka jöfnuð og bæta hag almennra
borgara.
Rósir í hnappagat
jafnaðarmanna
Síld og fiskur ehf., sem er kjöt-vinnslufyrirtæki í Hafnarfirði, hefur frá því á árinu 2010 átt
í deilum við ríkisskattstjóra um
álagningu búnaðargjalds. Deil-
unum við ríkisskattstjóra lauk með
því að starfsmenn embættisins
mættu í vinnu á gamlársdag 2013
til að leggja á félagið búnaðargjald
upp á rúmlega 13 milljónir króna.
Síðan hefur málið farið fyrir yfir-
skattanefnd og síðan héraðsdóm.
Félagið hefur alla tíð allt frá fyrstu
stigum málsins haldið þeim vörnum
uppi að innheimta búnaðargjalds
sé andstæð félagafrelsisákvæðum
stjórnarskrár Íslands og mannrétt-
indasáttmála Evrópu. Félagið hafi
valið að vera aðili að Samtökum
iðnaðarins og vilji ekki vera aðili
að Bændasamtökum Íslands eða
öðrum félagasamtökum bænda.
Þann 23. mars sl. tók Héraðsdómur
Reykjavíkur undir sjónarmið Síldar
og fisks ehf. og dæmdi álagningu
ríkisskattstjóra ólögmæta og í and-
stöðu við stjórnarskrá Íslands.
Þessi niðurstaða ætti í sjálfu sér
ekki að koma mikið á óvart því árið
2010 dæmdi Mannréttinda dómstóll
Evrópu að álagning iðnaðarmála-
gjalds, sem var sambærilegt gjald og
búnaðargjaldið, væri brot á mann-
réttindasáttmála Evrópu. Hæsti-
réttur Íslands komst einnig nýlega
að þeirri niðurstöðu í máli 250/2016
að álagning búnaðargjalds bryti
gegn stjórnarskránni og mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
Í þessu máli kristallast tvö grund-
vallarálitaefni um lög og rétt á
Íslandi sem snúa að framkvæmda-
valdinu og löggjafarvaldinu. Annars
vegar er það sú afstaða ríkisskatt-
stjóra að hann þurfi ekki að horfa
til ákvæða stjórnarskrár Íslands í
störfum sínum og hins vegar hvort
Alþingi geti setið aðgerðarlaust hjá
eftir að Hæstiréttur hefur dæmt lög
andstæð stjórnarskránni.
Þáttur framkvæmdavaldsins
Í andmælum Síldar og fisks ehf. á
öllum stigum málsins hefur komið
fram sú málsástæða að ákvæði bún-
aðargjaldslaga stæðust ekki félaga-
frelsisákvæði stjórnarskrárinnar.
Ríkisskattstjóri hafnaði í sjálfu sér
ekki þeirri málsástæðu en tók ekki
afstöðu til hennar því hann taldi
sig ekki þurfa að líta til stjórnar-
skrárinnar við úrlausn málsins. Það
væri ekki á hans verksviði að túlka
æðstu réttarheimild íslensks réttar,
það væri á verksviði dómstóla.
Hvernig getur skattstjóri leyft
sér að líta fram hjá stjórnarskránni
þegar hann metur lögmæti ákvarð-
ana sinna? Er það virkilega svo
að stjórnvald þurfi ekki að líta til
ákvæða stjórnarskrár Íslands þegar
það fellir íþyngjandi úrskurði yfir
þegnum þessa lands?
Viðhorf ríkisskattstjóra er því
miður ekki einsdæmi í stjórn-
kerfinu. Það er eins og stjórnkerfið
hafi misst sjónar á meðalhófi og
skilningi á því að miklu valdi fylgir
mikil ábyrgð. Stjórnvöld virðast
oft gefa sér niðurstöðu mála fyrir-
fram og andmælaréttur er virtur í
orði en ekki á borði. Það er gengið
eins langt og hugsast er í beitingu
íþyngjandi úrræða og sú framganga
réttlætt með því að dómstólar
geti þá alltaf undið ofan af ólög-
mætum stjórnvaldsákvörðunum.
Seðlabanka stjóri er t.d. sagður
þeirrar skoðunar að menn eigi að
fagna því að sæta ákæru því þá hafi
þeir tækifæri til að sanna sakleysi
sitt. Forstjóri samkeppniseftirlitsins
hreykir sér helst af því hvað hann
hafi sektað fyrirtæki um háar fjár-
hæðir.
Í búnaðargjaldsmáli Síldar og
fisks ehf. vaknar sú spurning hvort
það eigi ekki að vera nein eftirmál af
því þegar stjórnvald brýtur stjórnar-
skrárvarin réttindi borgaranna. Eru
t.d. líkur til þess að Síld og fiskur ehf.
fái afsökunarbeiðni frá ríkisskatt-
stjóra eða fjármálaráðherra?
Þáttur löggjafans
Alþingi felldi lög um búnaðargjald
úr gildi í desember 2016. Það er
fróðlegt að skoða röksemdir fjár-
málaráðherra fyrir því að fella bún-
aðargjaldslögin úr gildi. Ástæðan
er ekki sú að búnaðargjaldið brjóti
í bága við félagafrelsisákvæði stjórn-
arskrárinnar heldur er ástæðan
sögð sú að Bændasamtök Íslands
hafi ákveðið að taka upp almennt
félagsgjald sem komi í stað bún-
aðargjaldsins! Það er varla hægt
að segja með skýrari hætti hvernig
búnaðargjaldið var hugsað, verst
að þessi hugsun er í andstöðu við
félagafrelsisákvæði stjórnarskrár-
innar. Það er svo merkilegt að þrátt
fyrir að búnaðargjaldslögin hafi
verið felld úr gildi í desember 2016
er óréttlætinu enn viðhaldið því
lögin halda enn gildi vegna álagn-
ingar búnaðargjalds á þessu ári og
vegna endurákvarðana fyrri ára.
Stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd Alþingis hlýtur í framhaldi
af þessum dómi sem hér er til
umfjöllunar og dómi Hæstaréttar í
máli 250/2016 að hafa frumkvæði
að því taka til endurskoðunar að
ólögin um búnaðargjald, sem Hæsti-
réttur hefur sagt vera í andstöðu við
stjórnarskrá, haldi gildi sínu á árinu
2017 og vegna endurákvörðunar
fyrri ára. Annað væri óvirðing við
stjórnarskrá Íslands.
Stjórnarskrárbrot skattstjóra
Ég heiti Davíð Örn og er 10 ára. Ég get ekki sofið, ég vil ekki fara í skólann, ég er þreytt-
ur og langar að vera heima hjá
mömmu. Ég er hættur í skólanum!“
Þetta eru venjubundnar lýsingar
Davíðs Arnar á tilfinningum sínum
og líðan í íslensku skólakerfi. Davíð
Örn er yndislegur drengur með
Downs-heilkenni. Hann er á ein-
hverfurófi og er líka greindur með
ADHD, ofvirkni með athyglisbrest.
Lyfin sem hann tekur gera lítið
gagn.
Á hverju kvöldi er öll fjölskyldan,
að honum meðtöldum, kvíðin yfir
því að hann muni sofna seint og
vakna um nóttina. Á eins og hálfs
árs tímabili svaf Davíð aðeins aðra
hverja nótt en var annars vakandi.
Á hverjum morgni er Davíð
sendur í skólann þreyttur, pirraður
og reiður. Hann mætir reglulega of
seint og glatar dýrmætum tíma sem
annars hefði verið nýttur í lærdóm.
Davíð gengur í Klettaskóla en
það er sérskóli fyrir fötluð börn.
Klettaskóli er að mörgu leyti mjög
góður skóli og jafnvel frábær skóli
fyrir marga. Hins vegar hentar
Klettaskóli ekki Davíð meðal ann-
ars vegna þess hvernig hann er
uppbyggður og skipulagður. Skóla-
dagurinn í Klettaskóla er líkt og í
öðrum grunnskólum landsins frá
klukkan 08:00 til 13:00. Klukkan
13:00 til 17:00 tekur skólafrístund
við.
Þar sem Davíð glímir við mikla
svefnörðugleika og hegðunar-
vanda nýtist honum skólavistin
takmarkað til náms. Núverandi
skólaumhverfi hentar honum ekki
og Davíð býr ekki yfir getu til að
aðlagast skólakerfinu. Þetta leiðir
til þess að réttur hans til mennt-
unar í íslensku samfélagi er í reynd
skertur.
Davíð býr svo sannarlega yfir
getu og færni til að tileinka sér nýja
þekkingu ef skapaðar eru réttar
aðstæður fyrir hann en allar breyt-
ingar og uppbrot reynist honum
erfitt hvort heldur sem er heima
eða í skólanum.
Á leikskólaárunum naut Davíð
dagvistunar allan daginn og fékk
einstaklingsmiðaða þjálfun á öllum
sviðum daglegs lífs. Hann lærði
með íhlutun atferlisfræði sem hent-
aði honum mjög vel og ýtti undir
aukinn þroska og framfarir.
Eykur lífsgæðin
Hópur foreldra fatlaðra barna, auk
þriggja atferlisfræðinga og leik-
skólastýru, leiddu saman hesta sína
fyrir nokkru og ræddu þann vanda
sem er til staðar í skólakerfinu fyrir
ákveðinn hóp barna. Ákveðið var
að ráðast í stofnun Arnarskóla sem
er ætlaður fyrir fötluð börn með
fjölþættan vanda.
Það sem Arnarskóli hefur upp
á að bjóða fyrir Davíð er að hann
er byggður upp á heildrænan hátt.
Annars vegar með því að flétta
saman skóla- og frístundatíman-
um, sem skapar Davíð þannig það
svigrúm sem hann þarfnast vegna
svefnvandamála sem hann glímir
við. Þannig er hægt að tryggja að
hann fái nægilega margar klukku-
stundir til náms þrátt fyrir sína
fötlun og sínar sérþarfir. Hins vegar
með þeirri heildrænu þjónustu sem
verður innan Arnarskóla. Heildræn
þjónusta mun felast í því að sjúkra-
þjálfarar, iðjuþjálfar og talmeina-
fræðingar munu koma inn í skóla-
starfið með ráðgjöf og íhlutun. Með
þessu verður því minna uppbrot og
meiri samfella í lífi Davíðs sem auð-
veldar honum athafnir daglegs lífs.
Í Arnarskóla verða starfandi
atferlisfræðingar sem hafa mikla
þekkingu og reynslu af starfi með
fötluðum börnum. Allt starfsfólk
skólans mun vinna eftir sömu
aðferðafræði og tryggja þannig
samfellu í vinnu með börnin hvort
heldur sem er í skóla- eða frí-
stundastarfi. Arnarskóli mun veita
börnum skólavist alla virka daga
ársins ásamt því að sinna sumar-
frístundum.
Sem móðir Davíðs tel ég stofnun
Arnarskóla vera þarft úrræði sem
muni auka lífsgæði hans og fjöl-
skyldunnar. Þetta snýst ekki ein-
ungis um réttindi Davíðs og ann-
arra barna í hans stöðu heldur
snýst þetta mikið um lífsgæði fjöl-
skyldna fatlaðra barna í heild sinni.
Af hverju Arnarskóli?
Sem móðir Davíðs tel ég
stofnun Arnarskóla vera
þarft úrræði sem muni auka
lífsgæði hans og fjölskyld-
unnar. Þetta snýst ekki ein-
ungis um réttindi Davíðs og
annarra barna í hans stöðu
heldur snýst þetta mikið um
lífsgæði fjölskyldna fatlaðra
barna í heild sinni.
Full þátttaka í sameigin-
legum markaði Evrópuríkja
er lykill að enn betri kjörum
neytenda.
Gunnar Þór
Gíslason
fyrrum fram-
kvæmdastjóri
Síldar og fisks
ehf.
Í búnaðargjaldsmáli Síldar
og fisks ehf. vaknar upp
sú spurning hvort það eigi
ekki að vera nein eftirmál af
því þegar stjórnvald brýtur
stjórnarskrárvarin réttindi
borgaranna. Eru t.d. líkur til
þess að Síld og fiskur ehf. fái
afsökunarbeiðni frá ríkis-
skattstjóra eða fjármálaráð-
herra?
Guðjón S.
Brjánsson
alþingismaður
Sóley Ósk
Geirsdóttir
hjúkrunarfræð-
ingur og móðir
Davíðs Arnar
GLAMOUR fylgir nú með
Stóra- og Risapakkanum
Kynntu þér málið á 365.is
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-B
E
0
8
1
C
9
2
-B
C
C
C
1
C
9
2
-B
B
9
0
1
C
9
2
-B
A
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K