Fréttablaðið - 30.03.2017, Síða 48
• Plöntur plumma sig best í réttu
umhverfi. Það margborgar sig
að fá ráðgjöf um hvað hentar
þínum aðstæðum.
• Það er gott að gera áætlun út
frá líklegum vexti plantna. Best
er að kynna sér hversu mikið
tilteknar plöntur koma til með
að vaxa. Þannig má reikna út
hæfilega fjarlægð þegar þeim er
stungið niður.
• Það getur verið gott að halda
dagbók yfir garðstörfin. Þar er
hægt að skrá gróðursetningu,
garðslátt, trjáklippingar,
hreinsun beða og annað í þeim
dúr. Þá getur þú reiknað út
hvenær er kominn tími á næstu
umferð. Að ári getur þú auðveld-
lega rifjað upp hvenær þú fórst
í tiltekin verk og komist þannig
hjá óþarfa grufli.
• Með því að sá og planta ólíkum
tegundum hverri í námunda við
aðra bætir þú jarðveginn. Víða
í garðyrkjubókum og á netinu
er að finna ítarlega lista yfir
plöntur sem er gott að planta
saman. Sumar plöntur sjúga upp
tiltekin næringarefni og þá er
gott að planta öðrum á móti sem
bæta tapið upp. Sumar sam-
setningar koma líka í veg fyrir að
óværa nái sér á strik.
• Ekki láta grænmeti ofþroskast í
moldinni. Þá eru líkur á því að
ýmis óværa geri vart við sig. Best
er að fjarlægja ofþroskað græn-
meti um leið og þess verður vart.
• Ofvökvun er verri en of lítil
vökvun. Það er með öðrum
orðum auðveldara að koma lífi
í þurra plöntu en að þurrka upp
gegnsósa rætur.
• Prófaðu að bæta handfylli af
moltu við moldina þegar þú
plantar blóma- eða grænmetis-
afleggjara. Það gefur aukainn-
spýtingu.
• Það getur sparað þér ómælt
ergelsi með því að velja litrík
garðverkfæri sem týnast síður í
moldinni. Ef þú átt litlaus eldri
verkfæri er ráð að mála hand-
föngin í skærum lit.
Litrík
verkfæri
týnast síður
Garðyrkjustörf eru að margra
mati gefandi og tilvalin til
að auka við sig útiveru. Fátt
er líka fallegra en vel hirtur
garður. Það er þó að ýmsu
að hyggja við garðstörfin.
Hér eru nokkur vel valin ráð
héðan og þaðan.
Ef verkfærin eiga það til að týnast í garðinum er ráð að mála þau í skærum lit.
• Ef þú vilt losna við að burðast
með skítug garðverkfæri inn í
geymslu er ráð að koma fyrir
litlum póstkassa eða annarri
hirslu í garðinum og geyma
þau þar. Þannig týnast þau líka
síður.
• Til að losna við svartar sorgar-
rendur undir nöglunum eftir
garðstörf er gott að klóra í sápu-
stykki áður en hafist er handa.
Neglurnar eru svo skrúbbaðar
með naglabursta á eftir og verða
samstundis hreinar.
Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · www.normx.is
LAGERSALA á kamínumtil 15. apríl
Vantar þig kamínu til að hita upp sumarbústaðinn
eða bara til að skapa notalegt umhverfi?
Vönduð smáhýsi
Kynntu þér þær kamínur sem við
bjóðum uppá á vefnum www.normx.is
eða íttu við hjá okkur í Auðbrekku 6.
Diana 10 KW
Verð aðeins 39.500 m. vsk
NormX framleiðir hér
innanlands vinsæl og
vönduð smáhýsi sem nýtast
við allskonar aðstæður.
Verið velkomin í heimsókn til
okkar og kynnið ykkur málið.
Frá 8-14,9m2.
• Gistihús á tjaldstæðum
• Gestahús við sumarbústaði
• Sumarhús
• Geymsluhús fyrir vélsleðann og fjórhjólið
• Sæluhús
• Skíðakofi
• Bátaskýli
• Kvenna- og karla salerni
á ferðamannastaði
• Garðhús
• Golfbílahús fyrir tvo bíla
• Miðasöluhús á íþróttavelli og ferðamannastaði
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLAFYRIR ÍSLENSKT VEÐUR Bandaríska arkitektastofan Studio
Libeskind hefur verið valin til
að hanna 150 metra háan turn
sem þakinn er trjám og öðrum
plöntum. Turninn, sem ber nafnið
Occitanie, á að standa í hjarta
viðskiptahverfis Toulouse í Frakk-
landi.
Studio Libeskind hannaði Occi-
tanie-turninn fyrir fasteignaverk-
takann Compagnie de Phalsbourg
en verkefnið var kynnt á MIPIM
fasteignaráðstefnunni í Cannes
nýverið.
Turninn verður fyrsti skýja-
kljúfur hinnar frönsku borgar en
áætlað er að hann verði um 40
hæðir. Í honum verða 120 íbúðir,
Hilton hótel, rými fyrir verslanir
og veitingastaði með víðáttumiklu
útsýni yfir borgina. Einnig er gert
ráð fyrir 11 þúsund fermetra skrif-
stofuhúsnæði.
Lögun turnsins verður æði sér-
stök en snúningur á byggingunni
á að minna á vatnsfarveg Canal du
Midi sem rennur um borgina.
Turninn mun breyta um ásýnd
eftir árstíðum. Bæði breytist
gróðurinn auk þess sem silfurlitt
yfirborðið breytist eftir birtu og
sólargangi.
Skýjakljúfur með lóðréttum garði
6 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-F
4
5
8
1
C
9
2
-F
3
1
C
1
C
9
2
-F
1
E
0
1
C
9
2
-F
0
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K