Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 62
Körfubolti Baráttan um Íslands-
meistaratitilinn í körfubolta
harðnar með hverri vikunni en í
kvöld hefjast undanúrslitin í úrslita-
keppni Domino’s-deildar karla.
Íslands-, bikar- og deildarmeistarar
KR ríða á vaðið á heimavelli í kvöld
gegn sterku liði Keflavíkur sem
hefur bætt sig mikið með hverjum
leik eftir áramót. Í hinni rimmunni,
sem hefst annað kvöld, eigast við lið
Stjörnunnar og Grindavíkur.
Fréttablaðið leitaði til Einars
Árna Jóhannssonar, þjálfara Þórs
Þorlákshafnar, til að fá álit hans á
tveimur undanúrslitaeinvígjunum.
„Fyrsti leikurinn hjá KR og Kefla-
vík mun segja okkur hvernig þessi
rimma verður. Ég tel að það sé sá
leikur sem Keflavík þarf að vinna
til að eiga möguleika í einvíginu,“
segir Einar Árni. Hann bendir á að
síðast þegar Keflavík spilaði í DHL-
höllinni hafi liðið verið nálægt því
að skella KR-ingum og sé því með
sjálfstraustið í lagi.
Keflavík skipti um þjálfara á nýju
ári og réð Friðrik Inga Rúnarsson,
sem hefur styrkt leik liðsins til
muna. Sást það einna helst á því að
Keflavík gerði sér lítið fyrir og sló
sterkt lið Tindastóls úr leik í 8-liða
úrslitum, einmitt eftir að hafa unnið
fyrsta leikinn í rimmunni á Sauðár-
króki.
Jón Arnór erfiður
„Ef KR hins vegar klárar þennan leik
með sannfærandi sigri þá er það það
sem koma skal í seríunni,“ segir
Einar Árni. „Það verður líka alltaf
KR í hag eftir því sem leikirnir verða
fleiri. Keflavík er mun viðkvæmara
fyrir meiðslum og villuvandræðum,
en KR býr við þann munað að eiga
þéttan hóp þar sem vitað er að
ákveðinn átta manna hópur mun
koma við sögu.“
Einar Árni segir að það sé þó
ýmislegt sem geti unnið með Kefla-
vík í þessari rimmu, sérstaklega
hvað varnarleikinn varðar. „Bak-
verðirnir eru hávaxnir og Reggie
Dupree er mjög duglegur. Þá hafa
stóru mennirnir hjá Keflavík skilað
miklu í sóknarleik liðsins í vetur,
sérstaklega Amin Stevens. Hann
ætti að hafa betur gegn samlanda
sínum hjá KR en hann þarf að
vinna þá baráttu á báðum endum
vallarins. Stevens þarf að spila góða
vörn og frákasta vel til að Keflavík
eigi von.“
Hann bendir þó á eins og svo
margir aðrir hafa gert að KR hefur
enn ekki náð að sýna allar sínar
bestu hliðar í vetur. „Jón Arnór
Stefánsson er til dæmis ekki búinn
að sýna okkur hvað hann getur. Það
vita allir hversu erfitt það er að eiga
við hann þegar hann fer á flug.“
Hægt að stöðva Stjörnuna
Einar Árni spáir KR-ingum 3-1 sigri
gegn Keflavík en á erfiðara með að
spá um sigurvegara í hinni rimmu
undanúrslitanna.
„Það er auðvelt að spá Stjörnunni,
liðinu sem varð í öðru sæti og vann
KR tvisvar í vetur, sigri en Stjörnu-
menn hafa ekki alltaf verið sann-
færandi í vetur. Ég reikna með því
að þetta verði dúndureinvígi,“ segir
hann.
Hlynur Bæringsson, miðherji
Stjörnunnar, er einn besti leik-
maður deildarinnar og verður það
lykilatriði fyrir Grindavík að stöðva
hann. Þá hefur Justin Shouse verið
öflugur eftir að hann byrjaði að
spila eftir höfuðmeiðsli.
„Grindavík á sterka menn á móti
Hlyni í frákastabaráttunni og Lewis
Clinch er frábær varnarmaður sem
gæti orðið erfiður viðureignar fyrir
Shouse. Stjarnan hefur þó mikil
gæði, þess vegna til að fara alla leið
og verða meistari.“
Annar jóker í rimmunni verður
framlag Stjörnumannsins Anthony
Odunsi, sem hefur gengið upp og
ofan í vetur. „Maður veit ekkert
hvar maður hefur hann en það er
ljóst að þetta mun velta mikið á
honum. Odunsi þarf að vera stöð-
ugur í þessum leikjum, þó svo að
hann skili ekki endilega 30 stigum
í hverju leik. Stjarnan hefur verið
í basli þegar Odunsi hefur verið í
meðalmennskunni.“
Einar Árni spáir því að heimavöll-
urinn verði mikilvægur í rimmunni.
„Ég held að Grindavík taki sína
heimaleiki. En ég spyr mig hvort
Stjarnan geri það líka. Ég sé fyrir
mér hnífjafnan oddaleik í þessari
rimmu, þar sem dramatískar loka-
mínútur munu ráða úrslitum.“
Viðureign KR og Keflavíkur hefst
klukkan 19.15 og verður í beinni
útsendingu á Stöð 2 Sport. Upp-
hitun hefst með Domino’s-körfu-
boltakvöldi klukkan 19.00.
eirikur@frettabladid.is
Allt undir í fyrsta leik
Undanúrslit Domino’s-deildar karla hefjast í kvöld með viðureign meistara KR
og Keflavíkur. Stjarnan og Grindavík mætast í hinni rimmunni en hún hefst
annað kvöld. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs Þorlákshöfn, spáir í spilin.
Pavel Ermolinskij sækir hér að Reggie Dupree í leik KR og Keflavíkur fyrr í vetur. Það má búast við mikilli baráttu í
fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í kvöld. FRéttAblAðið/Anton bRinK
Ég held að Grinda-
vík taki sína heima-
leiki. En ég spyr mig hvort
Stjarnan geri það líka.
Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari Þórs
Þorlákshöfn
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
JÓLAGJÖFIN í ár?
við kynnum arc-tic Retro
með keðju
Fyrir DÖMUR og HERRA
VERÐ AÐEINS:
34.900,-
VERÐ FRá:
29.900,-
FERMINGARGJÖFIN í ár?
arc-tic Retro
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
3 0 . m a r s 2 0 1 7 f i m m t u D a G u r34 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-B
E
0
8
1
C
9
2
-B
C
C
C
1
C
9
2
-B
B
9
0
1
C
9
2
-B
A
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K