Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 11
Fréttir 11Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 Bætiefni www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland BENSÍN BÆTIEFNI Fyrir allar bensínvélar með eða án hvarfakúts · Hreinsar bensíndælu, leiðslur · Kemur í veg fyrir botnfall í soggrein, túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun · Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnisskynjara. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í elds- · · Bætir útblásturinn og minnkar DÍSEL BÆTIEFNI Fyrir allar díselvélar þ.m.t. common rail og önnur olíuverk · · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í · Kemur í veg fyrir botnfall í túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í eldsneytisgeymi. · Minnkar bank í mótor. tæringar- og ryðvörn. tæringar- og ryðvörn. SÓTAGNASÍUHREINSIR Hreinsiefni til að hreinsa kolefni og sótagnir úr sótagnasíum. · Losar um og arlægir kolefn - isagnir úr sótagnasíu. · Ekki þarf að taka kút úr við hreinsun. · Sparar peninga þar sem ekki þarf að skipta um sótagnasíu. (þetta fer eftir ástandi á sótagnasíu) · · Málm- og öskulaus formúla · Gufar upp án þess að skilja eftir sig óhreinindi fyrir allar vélar Íslandi og Íslendingum, sérstak- lega elski hann kuldann. „Þetta loftslag hentar mér vel,“ segir hann brosandi og upplýsir blaðamann um að hann hafi sótt grunnnám- skeið í íslensku og vilji gjarnan fara í frekara nám. „Það er mikilvægt að tala tungumálið til þess að að- lagast samfélaginu. Það viljum við gjarnan gera og helst vil ég byrja að vinna sem fyrst til þess að skila mínu,“ segir Jetmir, sem er mennt- aður smiður og umferðartæknir (e. traffic technician). Forboðin ást Í sömu andrá kemur unnusta hans fram úr svefnherberginu, hún heitir Idajet Zahiri. Þau skötuhjúin lögðu á flótta út af forboðinni ást. „Ég er fráskilinn og á þrjú börn með barns- móður minni. Það var ekki vel séð þegar við Idajet urðum ástfangin,“ segir Jetmir. Hann segir að þau hafi neyðst til þess að flýja land af ótta við hefndar aðgerðir fjölskyldu fyrrverandi eiginkonu Jetmir. „Við eigum von á barni saman,“ segir Jetmir og ljómar af gleði. „Það er ekki mikið annað við að vera í þessari endalausu bið,“ segir hann og brosir kankvís. Líkurnar eru hins vegar hinum verðandi foreldrum ekki í hag, hælisleitendum frá Makedóníu, sem voru um 7% þeirra sem sóttu um hæli á síðasta ári, er nánast í öllum tilvikum snúið við til síns heima. Óttast myndatöku Á móti Jetmir og Idajet býr par frá Íran. Þau koma glaðleg til dyra og koma færandi hendi með rúsínur og valhnetur. Þau tala aðeins persnesku og því fara samskiptin fram með brosum og fingrabendingum. Þau ná að koma blaðamanni í skilning um að þau hafi dvalið hérlendis í þrjá mánuði og ástæða þess að þau sækja hér um hæli er einnig sú að samband þeirra er forboðið. Þeim þykir auðsýnilega leitt að neita myndatöku en af látbragði þeirra má skilja að slíkt gæti haft afleiðingar fyrir þau. Miðað við forsendur Útlendingastofnunar er einnig ólíklegt að þau hljóti náð fyrir augum stofnunarinnar. Flúðu ISIS Á efstu hæð fjölbýlishússins býr stórfjölskylda frá Kúrdistan í Írak sem dvalið hefur hér á landi í eitt ár. Heimili þeirra er ákaflega fallegt og þau hafa komið sér merkilega vel fyrir. Fjölskyldufaðirinn, Ha- ssan Abdullah, var lögreglumað- ur í heimalandi sínu og sýnir okk- ur hróðugur mynd af sér í fullum skrúða. Hann talar aðeins móður- mál sitt. Hann kemur þó því til skila að hann hafi flúið land af ótta við hryðjuverkasamtökin ISIS og það- an hafi fjölskyldan hrakist til Ítalíu og þaðan til Íslands. Hassan og eig- inkona hans eiga fjögur börn og öll eru þau sest á skólabekk hérlendis, nánar tiltekið í Myllubakkaskóla. Lærði góða íslensku á tæpu ári Sá yngsti heitir Fallah og er níu ára gamall. Hann er veikur heima þennan daginn og kemur fram á náttfötunum og fylgist forvitinn með hinum óvæntu gestum. Í ljós kemur að hann talar ótrúlega góða íslensku eftir svo stuttan tíma hér- lendis. „Það er mjög gaman í skól- anum og ég er búinn að eignast þar vini,“ segir sá stutti með blik í auga. „Það er miklu betra að vera á Ís- landi en á Ítalíu,“ segir Fallah og faðir hans kinkar alvarlegur kolli því til staðfestingar. Þeir segja erfitt að venjast kuldanum en þótt þeim líði vel hér segjast feðgarnir báðir sakna heimahaganna. Blaðamaður gerir tilraun til þess að fá Fallah til að túlka fyrir sig hver staða fjöl- skyldunnar er gagnvart Útlendinga- stofnun en fer þar með út fyrir ís- lenskukunnáttu drengsins sem horfir spurnaraugum á blaðamann. Hassan nær þó að koma því til skila að hann sé bjartsýnn á að fá dvalar- leyfi hérlendis. Þar sem -fjölskyldan kemur frá stríðshrjáðu svæði þá eru þau líklegust af viðmælendum DV þennan daginn til þess að hljóta náð fyrir augum yfirvalda. Húsmóð- irin ber fram rjúkandi kaffi sem við drekkum saman í kyrrð og ró áður en komið er að kveðjustund. n Feðgar Hassan og Fallah eru ánægðir með dvöl sína hérlendis þótt þeir sakni heimahaganna. Mynd ÞorMar VIgnIr gunnarSSon Fallah Hefur náð ótrú- lega góðum tökum á ís- lenskunni á stuttum tíma. Mynd ÞorMar VIgnIr gunnarSSon„Það er mjög gaman í skól- anum og ég er búinn að eignast þar vini

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.