Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 37
Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Sport 33
Stríð við NorðmeNN í dag
Þessir gætu komið á óvart
DV fékk Loga Geirsson, sem verður í EM-stofunni á RÚV, til að veita upplýsingar um þá leikmenn íslenska liðsins sem hafa gegnt minni
hlutverkum á undanförnum árum. Allir þekkja Aron, Guðjón Val og Snorra Stein en í dag leitar DV svara við því hvað þeir leikmenn sem
hafa spilað 100 landsleiki eða færri, geti fært liðinu á EM.
Arnór Þór Gunnarsson
Aldur: 28 ára
Staða: Hægra horn
Félagslið: Bergischer, Þýskaland
Landsleikir/mörk: 54/115
„Hann hefur þann styrkleika að vera afar
heilsteyptur leikmaður. Hann er góður
í vörn en það fer ekki sérstaklega mikið
fyrir honum á velli. Hann skorar ekki alltaf
mikið. Arnór er örugg vítaskytta og gegnir
flottu hlutverki í liðinu. Hann og Björgvin
ná vel saman enda spila þeir saman í
Bergischer. Arnór verður að eiga gott mót
en hornaspilið undanfarið hjá landsliðinu
hefur verið mjög lélegt. Ég vona að hann
nái sér á strik.“
Guðmundur Hólmar Helgason
Aldur: 23 ára
Staða: Varnarmaður/leikstjórn
Félagslið: Valur, Ísland
Landsleikir/mörk: 7/4
„Gríðarlega heilsteyptur leikmaður.
Guðmundur er bæði góður sóknarmaður
og í miðju varnarinnar. Hann hefur enga
reynslu af stórmóti og það er erfitt. Þeir
eru ekki margir sem koma inn með látum
á fyrsta stórmóti. Hlutverk hans verður
ekki stórt en hann er góð uppfylling því
Guðmundur hefur staðið sig vel með
landsliðinu. Hann er algjör vinnuþjarkur.“
Bjarki Már Gunnarsson
Aldur: 27 ára
Staða: Varnarmaður/lína
Félagslið: Aue, Þýskaland
Landsleikir/mörk: 41/10
„Ég horfði á leik frá því á Ólympíuleikunum
2008 fyrir nokkrum dögum. Það verður að
segjast að í dag er ekki sama fótavinnan
í íslenska landsliðinu. Bjarki hefur í þrjú
eða fjögur ár átt að vera arftaki Sverre í
vörninni og nú er komið að því. Á EM þurfa
menn að vera í standi og ég hef áhyggjur
af því. Hann má ekki klikka. Það mun mikið
mæða á Bjarka á mótinu. Hann er hjartað
í vörninni eins og sakir standa. Það væri
skelfilegt að missa hann út.“
Stefán Rafn Sigurmannsson
Aldur: 25 ára
Staða: Vinstra horn
Félagslið: Rhein-Neckar Löwen, Þýska-
land
Landsleikir/mörk: 49/58
„Reynslan sýnir okkur að þegar Guðjón
Valur spilar þá komast aðrir varla að. Stef-
án Rafn er fáránlega góður íþróttamaður;
getur spilað góða vörn og hefur frábæra
skottækni. Hann er ekkert síðri en Guðjón
Valur, og Bjarki Már [Elísson], sem er ekki
í hópnum, er ekki verri en Stebbi. Allir
þessir þrír leika með bestu liðum í heimi.
Ég myndi láta Stebba spila til jafns á móti
Guðjóni Val en ég er ekki viss um að sú
verði raunin, haldist Guðjón Valur heill.“
Aron Rafn Eðvarðsson
Aldur: 25 ára
Staða: Markvörður
Félagslið: Aalborg, Danmörk
Landsleikir/mörk: 58/4
„Það er ekkert víst að Aron Rafn verði
varamaður fyrir Björgvin á mótinu. Aron
þjálfari lætur þá spila sem eru að finna sig.
Bjöggi hefur fengið meiri tíma hingað til,
en það gæti breyst. Aron Rafn er hávaxinn
markvörður sem les leikinn vel. En hann
er brothættur eins og aldur hans segir
til um. Markverðir toppa yfirleitt upp úr
þrítugu. Hann er á mikilli uppleið og hefur
tekið miklum framförum. Hann gæti stolið
senunni á EM.“
Rúnar Kárason
Aldur: 27 ára
Staða: Hægri skytta
Félagslið: TSV Hannover/Burgdorf,
Þýskaland Landsleikir/mörk: 62/129
„Rúnar er að blása miklu lífi í þetta lið.
Hann er að mínu mati aðal X-factorinn í
þessu liði því hann getur sett fimm eða
sex mörk af tíu metra færi á engum tíma.
Með 60–70% skotnýtingu má hann
puðra af og til út í loftið mín vegna. Hans
Akkilesarhæll er varnarleikurinn. Hann
tekur rangar ákvarðanir í vörn og þarf að
ná meiri ró í leik sínum þar. Ef hann bætir
sig sem varnarmaður þá getur hann orðið
fyrsti maður í skyttustöðuna. Vörnin er
það eina sem hamlar honum og stórir
veikleikar eru ekki í boði á Evrópumóti.“
Ólafur Andrés Guðmundsson
Aldur: 25 ára
Staða: Vinstri skytta
Félagslið: Kristianstad, Svíþjóð
Landsleikir/mörk: 65/63
„Ólafur hefur í einhver sex ár verið að
berjast um að komast inn í þetta lið. Hann
er svakalega góður varnarmaður – líklega
einn af þremur bestu varnarmönnum
liðsins. Með miklu sjálfstrausti er þetta
strákur sem getur gert ótrúlega hluti með
góðu liði. Hann er mjög mikilvægur, þó að
Aron sé aðalmaðurinn í þessari stöðu. Þeir
eru ekki margir í liðinu sem geta skotið fyrir
utan og það gæti reynst afar mikilvægt
þegar liðin pakka í vörn. Við þurfum leik-
mann eins og Óla í þetta lið.“
Arnór Þór
Hornamaðurinn
verður að eiga
gott mót.
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Mynd EPA
Bjartsýnir frændur
Frábært
tilboð í
Reebok
Fitness
Áskrifendum DV býðst nú
sérstakt tilboð á árskorti
Reebok Fitness. Verð aðeins
59.990 kr. og 10.000 kr.
ávísun í GÁP fylgir með.
Áskrifandi sýnir DV-kort sitt
í afgreiðslu Reebok Fitness
til að nýta sér tilboðið.
Gildir til 15. febrúar.
Allir áskrifendur DV, bæði
í prent- og vefáskrift, eru
meðlimir í áskriftarklúbbi
DV. Meðlimir fá frábær
tilboð og fríðindi sem
auglýst verða reglulega.
Kringlan 4-6, 103 Reykjavík - Sími 512 7000 - askrift@dv.is
Tilboðið í Reebok Fitness gildir til
15. febrúar 2016. Klúbbmeðlimir
fá DV-kortið sent heim með
blaði eða í tölvupósti, fer
eftir áskriftarleið.
Áskriftarklúbbur DV