Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Fólk Viðtal 27 „Það var geggjað. Ég eignaðist vini úti um allan heim og er enn í sam- bandi við fullt af fólki. Þegar ég kom heim ákvað ég svo að fara í FG og kláraði stúdentinn þaðan. Þegar ég kom fyrst til Reykjavíkur var ég einn hérna úr árganginum mínum og það var svolítið erfitt. En þegar ég kom frá Kanada voru fleiri komnir í bæinn og þetta var mjög heimilislegt í FG.“ Fordómar að telja aðra fordómafulla Bjarni var svolítið að leita að sjálfum sér á unglingsárunum. Hann varð snemma meðvitaður um að hann væri samkynhneigður en átti í mik- illi innri baráttu við tilfinningarnar sem fylgdu. „Ég upplifði aldrei neina fordóma þegar ég kom loksins út úr skápnum. Þeir voru bara í hausnum á mér. Ég held að það sé oftast mál- ið. Þegar ég var 12 eða 13 ára þá vissi ég ekki um neinn sem var eins og ég, en þegar ég kom út úr skápnum hafði mjög mikið breyst.“ Hann var ekki tilbúinn til að tak- ast á við þessar tilfinningar sínar strax og eignaðist meira að segja kærustu þegar hann var 17 ára, í skiptinám- inu. „Við erum góðir vinir í dag. Og þá vorum við eiginlega bara vinir sem fórum rosalega mikið í sleik,“ segir Bjarni og skellir upp úr. „ Ómeðvitað var hún kannski yfirvaraskeggið mitt,“ bætir hann við. Blaðamaður hváir og Bjarni útskýrir hugtakið: „Í gamla daga þegar samkynhneigðir karl- menn komu með konur á ball þá var talað um þær sem yfirvaraskegg. Kon- an átti að vera sönnun þess að karl- maðurinn væri gagnkynhneigður.“ Hann segist finna fyrir því í starfi sínu með ungu fólki í dag að það sé enn sama krísan að koma út úr skápnum þótt landslagið sé allt ann- að. „Samfélagið er allt í lagi. For- dómarnir eru bara í hausnum á fólki. Maður er alltaf að búast við því versta þegar maður kemur út. Held- ur að þá muni allir hata mann. En það gerðist aldrei hjá mér. Hvergi. Ég var mjög þakklátur fyrir það. Það eru líka fordómar að halda að fólk sé for- dómafullt. Að gera ráð fyrir því. Það er ömurlegt að hugsa þannig. Maður á frekar að hugsa að fólk sé æðislegt þangað til annað kemur í ljós. Það er miklu skemmtilegra.“ Varð að ræða bleika fílinn Bjarni var orðinn 19 ára gamall þegar hann kom út úr skápnum. Þá var hann kominn með nóg af því að ljúga að fólkinu í kringum sig og lifa í blekkingu. Þá grunaði reyndar marga að svona væri í pottinn búið. „Ég vissi alveg að aðra grunaði þetta. Það þurfti bara að tala um bleika fíl- inn í herberginu. Það tók mig alveg tvö ár að segja öllum. Ég byrjaði á tveimur vinkonum og svo öðrum tveimur, svo fylgdu mamma og pabbi og öll fjölskyldan í kjölfarið.“ Eftir að hafa komið út úr skápnum gat hann loksins farið að vera hann sjálfur. Hann gaf sér smá tíma til að vera með sjálfum sér og finna sig. „Mér fannst ég ekki tilbúinn til að fara í nám eða neitt slíkt. Mér fannst ég þurfa að vita meira hvað ég vildi og hver ég væri.“ Bjarni fór því í tveggja ára heims- hornaflakk, bjó meðal annars í Ástralíu og starfaði í sumarbúðum í Ameríku. Heimsótti Taíland og Japan. Þegar heim var komið skráði hann sig í Háskóla Íslands í málvís- indi og ensku, en það blundaði alltaf í honum að vilja leika. Hann var orðinn 24 ára þegar hann loksins þorði að sækja um á leiklistarbraut Listaháskólans og komst inn í fyrstu tilraun. „Þetta var gamall draumur. Frænka mín er leik- kona – Jóhanna Jónas. Hún var að leika mikið þegar ég var yngri og var átrúnaðargoðið mitt. Ég var mikið búinn að hugsa um það að sækja um í skólanum en gerði aldrei neitt í því. Ég fór jú einu sinni inn í skólann til að forvitnast aðeins og rakst þá á hjörð af hressum leiklistarnemum í bún- ingum. Þau voru ofboðslega hávær og ég hrökklaðist út í feimniskasti. Ég er nefnilega mjög feiminn, nema ég sé í öruggum félagsskap. Svo fékk ég skyndilega þá flugu í hausinn, þegar ég var að sofna eitt kvöldið, að ég ætti að sækja um. Ég hringdi strax daginn eftir til að athuga hvenær umsóknar- fresturinn rynni út. Það var á föstu- degi og umsóknarfresturinn rann út mánudaginn eftir. Ég dreif því bara í þessu. Það var geggjað gaman í pruf- unum og allt í einu var ég kominn í leiklistarnám.“ Bjarni segist ennþá vera hissa á því að hann hafi kom- ist inn í fyrstu tilraun, en hann lenti í frábærum bekk og bekkjarfélagarnir eru allir góðir vinir hans í dag. Finnst harkið æði Bjarni þróaði karakterana Viggó og Víolettu, hið konunglega söngleikjapar, ásamt söngkon- unni Siggu Eyrúnu, skömmu eftir að hann kláraði leiklistarnámið, en Viggó er eiginlega orðið hans hliðar- sjálf í dag. „Við vorum brjálæðislega vinsæl á tímabili, á skemmtunum og árshátíðum. Svo gerðum við lítinn söngleik saman. Ég er mjög stoltur af því.“ Viggó er eiginlega hans stærsta hlutverk í gegnum tíðina, enda hefur hann lengst dvalið í þeim karakter, fyrir utan sinn eigin. Að leika Bjarna Ben í Skaupinu er reyndar líka stórt í hans huga. Það er allavega hlut- verkið sem hefur vakið hvað mesta athygli. „Annars er ég eiginlega búinn að vera í hálfgerðu harki síðan ég útskrifaðist og mér finnst það æði. Ég hugsa að ég gæti aldrei verið eingöngu í einu starfi. Það hentar mér ekki,“ segir Bjarni. Hann segist þó alls ekki vera ofvirkur. Hann sé alltaf mjög rólegur, þótt það sé brjál- að að gera. „Ég er búinn að koma mér þannig fyrir í lífinu að það er aldrei logn- molla í kringum mig. Ég er að læra að slaka aðeins á til að hafa orku í allt það skemmtilega sem ég er að gera,“ segir Bjarni, en ásamt því að sinna mörgum fjölbreyttum verkefnum bæði í leiklist og söng kennir hann leiklist við Fjölbrautaskólann í Garða- bæ. Þar hefur hann í samstarfi við fleiri verið að byggja upp öfluga leik- listarbraut á síðustu árum. „Ég finn gott jafnvægi í því að vera bæði leikari og kennari, en um leið og kennslan verður of stór hluti þá finnst mér ég verða að minnka aðeins við mig. Ég er til dæmis lítið að kenna á þessari önn. Ég er samt rosalega ánægður þarna. Þetta eru svo skemmtilegir krakkar og starfsfólk. Og ég hef frelsi til að þrosk- ast áfram sem listamaður. Það er tekið tillit til þess að ég sé að sinna öðrum verkefnum.“ Finnur sjálfan sig upp á nýtt Bjarni er að ganga í gegnum tímabil töluverðra breytinga um þessar mundir. Hann og bráðum fyrrverandi eiginmaður hans slitu samvistir seint á síðasta ári og til stendur að ganga frá skilnaðinum á næstu vikum. Þeir voru saman í ellefu ár, en giftu sig árið 2008 og héldu í kjölfarið tveggja daga partí. Um er að ræða fyrsta og eina alvöru sambandið sem Bjarni hefur verið í. Þeir skilja í góðu en Bjarni segir svona ferli samt alltaf erfitt. Það eru líka mikil viðbrigði fyrir hann að fara allt í einu að búa einn. „Þetta var sameiginleg ákvörðun hjá okkur. Við ákváðum það í nóvember að ljúka sambandinu og það er búið að vera mjög erfitt. Ég veit samt að þetta er rétt ákvörðun. Það eru auðvitað alltaf einhverjir bakþankar en ég held að þeir séu hluti af ferlinu. Það eru bara spennandi tímar framundan. Ég þarf svolítið að finna sjálfan mig upp á nýtt. Ég er orðinn 37 ára og þegar ég lít í kringum mig sé ég að mjög margir vinir mínir eru einhleypir. Hvort sem þeir hafa verið í sambandi eða ekki. Landslagið er öðruvísi en það var,“ segir Bjarni einlægur og brosir. „Frímann, minn fyrrverandi, er alveg magnaður einstaklingur. Hann á rosalega stóran þátt í þroska mínum og framþróun í gegnum árin. Og það er ekkert búið því við erum ennþá vinir.“ Saknar ömmu sinnar Bjarni segist alltaf hafa verið bæði já- kvæður og lífsglaður. Það hjálpar honum að takast á við erfiðleika í líf- inu. „Það er miklu skemmtilegra. Það getur reyndar líka verið galli því ég á auðvelt með að sópa hlutum undir teppið. Sem getur verið kostur þegar maður er leikari. Þegar maður þarf að fara á svið. En flest sem hefur drifið á daga mína er mjög skemmtilegt. Mér finnst margt svo skemmtilegt og ég á erfitt með að segja nei. Það getur verið alveg banvæn blanda,“ segir hann kíminn. „Amma mín, sem lést á síðasta ári, tókst á við allt með jákvæðu hugarfari og ákvað að njóta lífsins sama hvað bjátaði á. Það koma alltaf upp einhverjir erfiðleikar í lífinu og maður verður bara að takast á við þá. Ég hef reynt að tileinka mér hennar lífsspeki. Horfa ekki í baksýnisspegil- inn heldur lifa í núinu.“ Bjarni saknar ömmu sinnar mikið, enda voru þau góðir vinir. Hann segir fráfall hennar eitt það erfiðasta sem hann hefur þurft að takast á við, fyrir utan skiln- aðinn. „Annars hef ég verið mjög heppinn í lífinu. Með fólkið í kring- um mig og vinnu.“ Það er margt að gerast á næstu vikum hjá Bjarna sem hann getur hlakkað til. Hann er bæði meðlimur og í stjórn spunaleikhópsins Improv Ísland sem byrjar með fastar sýn- ingar í Þjóðleikhúskjallaranum í byrjun febrúar. „Það eru svo miklir töfrar í þessum spuna. Þetta hefur al- veg bjargað geðheilsu minni. Hópur- inn samanstendur af svo flottum og skemmtilegum einstaklingum. Við erum að spinna heilu söngleikina á staðnum. Uppfull af húmor, kærleika og leikgleði.“ Svo ætlar Bjarni að halda tónleika á Rósenberg þann 22. janúar næst- komandi, ásamt Siggu Eyrúnu vin- konu sinni. „Við ætlum að vera við að mestu leyti, en tökum eitthvað frá Viggó og Víólettu. Þetta verða söngleikjatónleikar með húmor og gleðilögum. Við ætlum að rífa fólk upp úr janúarþunglyndinu. Við erum algjörir söngleikjanördar,“ segir Bjarni stoltur og með bros á vör. n „Ég veit ekkert hvernig Bjarni Ben er í svefn- herberginu eða í matarboði heima hjá sér Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 www.kemi.is - kemi@kemi.is Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn m y n d þ o r m a r V ig n ir g u n n a r SS o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.