Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 36
Helgarblað 15.–18. janúar 201632 Sport
Stríð við NorðmeNN í dag
n Logi er óvenju bjartsýnn n Innkoma Óla Stef hefur breytt miklu n Enginn dauðariðill
É
g er mjög bjartsýnn fyrir
þetta mót. Ég hef satt að
segja ekki verið svona bjart-
sýnn frá Ólympíuleikun-
um 2012, þegar ég hélt við
myndum komast á pall aftur,“ segir
Logi Geirsson, fyrrverandi lands-
liðsmaður í handknattleik. Ísland
hefur leik á EM í Póllandi í dag.
Andstæðingarnir eru Norðmenn,
sem lengi hafa staðið í skugganum.
Logi segir í samtali við DV að hann
eigi von á hörkuleik í dag, föstu-
dag. Kynslóðaskipti hafa orðið í
norska landsliðinu og Logi segir að
Norðmenn muni veita okkur harða
keppni. Hann á þó von á tveggja til
fjögurra marka sigri Íslands.
„Okkur var skítsama“
Logi er í nánu sambandi við nokkra
leikmenn íslenska liðsins. Hann
segist skynja tiltrú leikmanna á
liðinu, eftir lægð undanfarinna
missera. „Mér hefur fundist vanta
íslensku geðveikina – þetta viðhorf
að við séum að fara að vinna hvern
einasta leik,“ segir Logi og vís-
ar til Ólympíuleikana 2008 og
Evrópumótsins 2010, þegar Ísland
vann til verðlauna. „Okkur var skít-
sama þegar við gengum út á völlinn
– við vissum að við myndum vinna
hvern sem er.“
Innkoma Ólafs verðmæt
Logi segir að innkoma Ólafs
Stefáns sonar hafi verið liðinu ákaf-
lega mikilvæg. Það heyri hann á
þeim leikmönnum sem hann talar
við. Þó að Ólafur hafi ekki náð ár-
angri með kornungt lið Vals í Olís-
deildinni, þá sé hann afburða-
maður. Enginn skilji leikinn betur.
Mikil verðmæti séu fólgin í því að
hafa aðgang að reynslubanka Ólafs
Stefáns sonar. „Ég held að hann sé
að koma með frábæra strauma inn í
þetta og er að gera ofboðslega góða
hluti.“
Enginn dauðariðill
Ísland er í riðli með Noregi,
Króatíu og Hvíta-Rússlandi. Logi
bendir á að engu þessara liða sé
spáð verðlaunasæti. Króötum sé
spáð 5.–6. sæti en bæði Noregi og
Hvíta-Rússlandi sé spáð sæti neðar
en íslenska landsliðinu. Riðillinn
ætti því ekki að vera óyfirstíganleg
hindrun, en þrjú lið af fjórum
komast áfram í milliriðil. Þar muni
íslenska landsliðið, komist það
áfram, mæta þremur liðum úr riðli
Frakka, Pólverja, Makedóníumanna
og Serba. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Þjóðverjar lagðir
Arnór Atlason skýtur að
marki Þjóðverja í sigri Ís-
lands á lærisveinum Dags
Sigurðssonar, þann 10.
janúar síðastliðinn. Mynd EPA
Bjartsýnir frændur
Norðmenn telja að þeir lendi í öðru sæti í riðlinum
É
g er á því að Noregur lendi í
öðru sæti í riðlinum og vinni
bæði Ísland og Hvíta-Rúss-
land,“ segir Bent Svele, sér-
fræðingur hjá TV 2 í Noregi.
Hann telur að Norðmenn muni eft-
ir milliriðla leika um sjöunda sætið.
„Ég vonast eftir eldmóði og stöð-
ugleika. Í okkar besta formi getum
við unnið mörg sterk lið.“
Norðmenn eru bjartsýnir fyrri
EM í handbolta en þeir hafa ekki
riðið feitum hesti í viðureignum
sínum gegn Íslandi á stórmótum.
Liðin hafa mæst á síðustu tveim-
ur Evrópumótum þar sem Ís-
lendingar hafa haft betur. Þá unnu
Íslendingar Norðmenn í nóvem-
ber síðastliðnum, með minnsta
mun.
Á vefsíðu VG er rætt við
sérfræðinga um möguleika Noregs.
Haft er eftir þjálfaranum Øystein
Havang að hann reikni með að
Norðmenn nái öðru sæti riðilsins
en að allt sé opið í þeim efnum.
„Það væri mjög gott ef landsliðið
hafnaði í fimmta til átt unda sæti á
mót inu,“ seg ir Havang.
Þá er rætt við fyrrverandi lands-
liðsmann, Frode Scheie, sem telur
að allir leikir Noregs geti jafnt unn-
ist sem tapast. Hann metur líkurn-
ar á sigri Noregs gegn Íslandi 55 á
móti 45, Norðmönnum í vil. „Þetta
verða jafnir leikir.“
norsari Erlend
Mamelund, leikmaður
Kiel, er lykilmaður í
norska liðinu.og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR