Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 23
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
15. janúar 2016
Heima er best
Dún og fiður leiðandi
á sínu sviði á Íslandi
D
ún og fiður sérhæfir sig og
er leiðandi á Íslandi í endur
nýjun og hreinsun á koddum,
púðum, pullum og skyldum
vörum úr náttúrulegum dún
og fiðri óháð því hvar viðkomandi
vara er framleidd. Vörur sem fyrir
tækið endurnýjar fá nýjan ársstimpil.
Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi versl
unarinnar, nefnir að hún bjóði einnig
upp á sér stærðir á sængum og fylling
um en verslunin hefur gert það síðan
árið 1959. „Dún og fiður byggir á um
55 ára gömlum merg og hefur verið
í eigu fjölskyldunnar allan tímann.
Á þessum tíma hefur safnast saman
mjög mikilvæg þekking og reynsla á
öllu sem lýtur að dún og fiðri, efnum
því tengdu og meðhöndlun sængur
fatnaðar,“ segir Anna.
Er í framleiðslu sjálf
„Við framleiðum einnig sjálf sængur
og kodda. Við erum í dúni með allt
frá ungbarnasængum og upp í full
orðinssængur. Auk þess erum við
meðal annars með dúnkerrupoka
fyrir ungbörn,“ segir Anna. Öll fram
leiðslan er merkt Dún og fiður og árs
stimpluð þannig að sjá megi fram
leiðsluárið þegar komið er með
vöruna í hreinsun eða endurnýjun.
Við endurnýjun á framleiðsluvöru
Dún og fiðurhreinsunarinnar er
vörunni gefinn nýr ársstimpill. „Við
framleiðum vörur okkar úr mismun
andi dún og fiðri: æðardún, snjó
gæsadún, svanadún og andardún
og eru gæðin í þeirri röð sem hér er
talið,“ segir Anna. Hún bætir við að
viðskiptavinir geti gert sérpöntun á
sængum og koddum ef þeir kjósi að
kaupa stærðir sem eru ekki staðlaðar.
Rótgróið fyrirtæki
Dún og fiður er staðsett á Laugavegi
86 og hefur með áratuga langri starf
semi skapað sér fastan sess í hugum
borgarbúa og annarra landsmanna.
Því hefur það verið stefna fyrirtækis
ins að breyta engu þar um né að vera
með útsölur eða útibú á öðrum stöð
um. Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 09.00 til 18 00 og á laugardög
um frá kl. 11.00 til 16.00. n