Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 27
Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Fólk Viðtal 23 Mun ekki fyrirgefa mig vantaði peninga til að borga honum og um leið og ég kom inn sagði pabbi mér þetta. Ég trylltist og hljóp öskrandi út í bíl til að borga leigubílinn. Leigubílstjórinn hefur haldið að ég væri eitthvað geðveik. Svo var bara algjört ástand – ein­ hver geðbilun – mamma alveg tryllt og henti öllum út sem vildu hjálpa, prestum og öðrum og vildi ekki tala við neinn.“ Missti marga Stundum virðist sem áföllin elti sumar fjölskyldur uppi en Ragn­ heiður hefur misst fleiri náskylda ættingja. „Stundum verð ég reið yfir okkar hlutskipti en ég reyni að komast hjá því. Það bitnar ein­ göngu á manni sjálfum. Þetta er bara svo mikið. Það væri ekki hægt að skálda þetta. Mamma átti fimm systur. Elsta systirin missti son sinn þrítugan úr hvítblæði og árið 1993 dó önnur systir hennar frá fjórum börnum. Einum og hálfum mánuði seinna lést Pési frændi [Pétur Ingi Þorgilsson] en hann féll af þaki húss á Ásvallagötu. Pési var ári yngri en ég. Við vorum mjög náin í upp­ vextinum, vorum saman í skóla og áttum sameiginlega vini. Hann var frábær, svo hæfileikaríkur, fyndinn og öðruvísi en allir. Það er ótrúlega mikill missir að honum.“ Fann föður sinn látinn Faðir Ragnheiðar, Kristjón Haralds­ son, lést svo árið 2011 úr hjartaáfalli en hann hafði áður fengið hjarta­ áfall árið 2008. „Ég hafði talað við pabba í síma á föstudagskvöldinu þar sem hann óskaði mér til ham­ ingju með nýja starfið. Kaldhæðni örlaganna höguðu því þannig að ég var ráðin ritstjóri Séð og heyrt daginn áður en pabbi dó. Á laugar­ deginum hringdi Agnes systir og sagði mér að pabbi svaraði ekki í símann. Þar sem ég bjó í næstu götu við hann og var með lykla fór ég að athuga með hann. Hann svar­ aði ekki þegar ég fór inn og kallaði en svo sá ég hann liggjandi á gólf­ inu. Hann var dáinn.“ Undarleg fyrstu jól Ragnheiður segir hátíðisdaga og þá sér í lagi jólin sérstaklega erfið fyrir þá sem syrgja. „Jólin eru fjölskyldu­ hátíð sem snúast um hefðir og vana. Ég hef misst svo marga að mér hefur bara fundist þetta óþægilegur tími. Fyrstu jólin eftir að Áslaug Perla dó vorum við mamma svo ruglaðar að við gleymdum að kaupa í matinn. Þegar ég mætti í Nóatún var af­ greiðslustelpan að loka en var svo almennileg að leyfa mér að komast inn. Ég hljóp um búðina og tók allt sem ég sá. Jólamaturinn samanstóð af kalkúnabringum og tikkamasala­ sósu – sem var í takt við okkar líð­ an og ástand. Þetta voru undarleg jól. Síðan hefur þessi tími ekki ver­ ið í uppáhaldi en maður hefur reynt að setja sig í gírinn stráksins vegna. Maður reynir að búa til nýjar hefðir og skapa hamingju og það tókst. Jólin í ár voru hin huggulegustu.“ Með algjöra hörmungahyggju Áföllin hafa valdið Ragnheiði kvíða og hún fékk heiftarlegt kvíðakast sama dag og Áslaug Perla var kistu­ lögð. „Ég gat ekki sofnað og hjart­ slátturinn varð æ hraðari og ég hélt að ég væri að fá heilablóðfall. Ég ákvað því að hringja í pabba og fékk hann til að sofa inni í stofu heima hjá mér svo sonur minn væri ekki einn með mér dauðri. Þar sem ég augljóslega dó ekki tókst mér að skríða til læknis um morguninn þar sem ég fékk að vita að ég væri alls ekki að fá heilablóðfall heldur væri þetta kvíðakast. Ég hef verið alveg ofsalega dauðahrædd; fengið dauð­ ann fullkomlega á heilann og óttast svo að deyja frá syninum. Ég sá alltaf það versta fyrir mér, var með algjöra hörmungahyggju og um tíma varð ég að taka heimasímann úr sambandi því ég fór í uppnám í hvert skipti sem hann hringdi. Þetta var orðið skilyrt. Enda hef ég farið í allt of margar jarðarfarir.“ Alltaf í megrun Hún segir áfengi virka eins og eitur fyrir fólk sem er haldið kvíða. „Ef fólk langar virkilega til að þjást af kvíða þá mæli ég með því að það fái sér í glas og helst reyki með því. Hjá mér olli áfengið kvíða, þung­ lyndi, svefntruflunum og öðrum óþægindum. Það hentaði mér mjög illa að drekka,“ segir Ragnheiður sem hætti að drekka árið 2004. „Ég er hætt að drekka, hætt að reykja og hætt að borða mat sem veldur mér skaða. Ég kýs að vera ekki í því sem veldur mér vanlíðan. Sú ákvörðun að leita mér aðstoðar varðandi mataræðið var mér mjög erfið, en ég sá að ég gat ekki ráðið við þetta sjálf. Eftir margítrekaðar tilraunir varð mér ljóst að ég þurfti hjálp. Ég var alltaf annaðhvort í megrun eða einhvers slags ofáti og það gekk ekki lengur. Af þessu þrennu, að hætta að reykja, drekka eða taka til í matnum er maturinn langerfiðastur. Ég gekk í gegnum helvíti til að hætta að reykja og hélt að ég myndi aldrei geta hætt að nota nikótíntyggjó en maturinn er langerfiðastur þó svo að það fylgi því líka mikið frelsi að sleppa þeim matartegundum sem vekja hjá mér fíkn. Maður þarf að borða á hverjum degi og við lifum í þjóðfélagi þar sem mataráreitið er stanslaust, sykur og gúmelaði. Það eru alltaf tveir mánuðir í páska eða tveir mánuðir í jól og Nói frændi er alls staðar, nánast að troða upp í þig súkkulaðinu.“ Hún játar því brosandi að það sé óréttlát hlutskipti að geta ekki hugg­ að sig á erfiðum stundum með smá konfekti eða rauðvínsglasi. „Mér finnst það mjög ósanngjarnt en sjálfsvorkunn er mikill óvinur minn enda hefur hún aldrei gert neitt fyrir mig nema komið mér í vandræði. Ég hef fallið í mataræðinu í sjálfs­ vorkunn. Hef kannski verið ótrú­ lega dugleg en samt þyngst, orðið brjáluð og fallið.“ Ósátt við málið Hún segir móður sína aldrei hafa jafnað sig á dótturmissinum og að málið hafi haft mikil áhrif á þeirra samband. „Rannsókn málsins hefur valdið mömmu mjög miklu hugar­ angri og sjálfri finnst mér ótrúlega ósmekklegt að hægt sé að afgreiða málið með nokkrum dómsorðum þar sem vitnað er í morðingjann. Ég er mjög ósátt við það. Morðinginn var einn til frásagnar og neitaði að útskýra en tókst að ropa úr sér nokkrum orðum sem voru notuð í dómsorð. Það er margt við þetta mál sem hefði mátt fara betur en ég er hætt að velta mér upp úr því. „Það tekst ekki öllum að komast í gegnum svona og mömmu minni reyndist það ofviða að missa barnið sitt. Áslaug Perla með föður sínum Áslaug Perla og Kristjón. Mynd Úr einkAsAFni systur Ragnheiður var sjö ára þegar Áslaug Perla fæddist. Mynd Úr einkAsAFni Fann ástina Ragnheiður og Gunnar Johnson keyptu sér íbúð saman fyrir tæpu ári. Mynd Úr einkAsAFni Með föður sínum Ragn- heiður kom að föður sínum látnum. Mynd Úr einkAsAFni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.