Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 32
28 Lífsstíll Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Draumurinn rætist í Suður-Afríku Lilja Marteinsdóttir ætlar að hafa milligöngu um sjálfboðastörf fyrir íslensk ungmenni É g held að það sé varla til betri staður til að vera með börn. Það er sumar tíu mánuði á ári og það gerir svo mikið fyrir geð- heilsuna. Það er reyndar aðeins of heitt núna,“ segir Lilja Marteins- dóttir sem hefur búið ásamt fjölskyldu sinni rétt fyrir utan Höfðaborg í Suður- Afríku síðastliðin fjögur ár, en maður- inn hennar er suðurafrískur. Í hennar huga er Suður-Afríka algjör drauma- staður að búa á. „Þetta eru auðvitað tveir heimar sem mætast. Það er mikil fátækt og svo býr fólk ótrúlega vel. Það er mikil stéttaskipting,“ segir Lilja. Millistétta- og efnafólk á svæðinu býr í frekar vernduðu umhverfi en verður engu að síður alltaf vart við fátæktina, enda búa hundruð þúsunda í fátækra- hverfum á svæðinu. Hugmynd verður að veruleika Lilja er nýfarin að vinna eftir fæðingar- orlof, en hún starfar sem markaðs- stjóri hjá verktakafyrirtæki sem sér- hæfir sig í uppbyggingu þorpa. Þá hefur hún gengið með hugmynd í maganum í svolítinn tíma, sem nú er að verða að veruleika. Hún er að koma á fót prógrammi fyrir íslensk ung- menni á aldrinum 15 til 20 ára sem felur í sér störf með sjálfboðasamtök- um í Höfðaborg. Um er að ræða fjögurra vikna pró- gramm en meðan á því stendur munu ungmennin dvelja á heimili Lilju og fjölskyldu hennar, sem samanstendur af henni, manninum hennar og þrem- ur börnum á aldrinum 6 mánaða til 12 ára. Þá verður einnig boðið upp á ferð- ir þar sem þátttakendur fá að kynn- ast ýmsum hliðum Suður-Afríku. „Ég ætla að sjá hvernig þetta fer af stað og ef verkefnið vindur upp á sig þá væri frábært að geta bara starfað við þetta.“ Enginn valsar um á eigin vegum Lilju hefur lengi dreymt um að geta starfað í tengslum við sjálfboðastörf og hefur verið dugleg að taka þátt í sjálfboðastarfi í Höfðaborg. „Fyrst þegar ég kom hingað þá byrjaði ég á því að vinna í súpueldhúsum og fleiri sjálfboðastörf. Það er gríðarleg þörf á sjálfboðaliðum, til dæmis á barnaheimilum. Ég var líka dugleg að fara í skiptinám þegar ég var í námi og kynntist þannig öðrum menn- ingarheimum. Ég hef alltaf haft áhuga á því að tengja þetta einhvern veg- inn saman og fannst þetta vera besti tíminn og staðurinn til að láta á það reyna.“ Það styrkti Lilju enn frekar í trú sinni á verkefninu að íslenskar vin- konur hennar sem eiga börn á ung- lingsaldri höfðu rætt að það væri lítið í boði fyrir þennan aldursflokk. „Kosturinn við þetta verkefni er að ég er auðvitað íslensk og hef gert þetta sjálf. Ég þekki það eftir að hafa farið í skiptinám að það það fylgir því áhætta og óöryggi að fara út, sérstaklega þegar um sjálfboðastörf er að ræða. Þá er oft gist á gistiheimilum eða heima hjá fjölskyldum sem maður veit ekkert um. Ég held að það sé kostur að geta verið undir verndarvæng íslenskr- ar fjölskyldu. Þátttakendur taka þátt í daglegu lífi okkar. Um helgar förum við til dæmis á ströndina þar sem hægt er að læra á brimbretti og ýmis- legt fleira. Það mun enginn valsa um á eigin vegum.“ Víkkar sjóndeildarhringinn Lilja segist hafa fengið fjölda fyrir- spurna um verkefnið og það er von á fyrstu þátttakendunum á næstu vikum. „Ég veit að nokkrir hafa dottið út úr skóla. Það er svolítið vandamál á Íslandi ef krakkar detta út úr skóla eft- ir tíunda bekk þá er afar lítið fyrir þau að gera. Það er kannski sniðugt á þeim tímapunkti að staldra aðeins við og kynnast heim- inum. Sjá að hann er aðeins stærri en Ísland. Víkka sjón- deildarhringinn aðeins og læra eitthvað nýtt.“ Lilja segir skólakrakka líka hafa sýnt verkefninu mikinn áhuga en þeir vilji helst koma yfir sumartímann, þegar frí er í skólanum. Þá er reyndar vetur í Suður-Afríku og hitastigið töluvert lægra, þó að það fari sjald- an niður fyrir 16 til 17 gráður. En það rignir töluvert yfir vetrartímann og upplifunin því kannski alveg sú sama. Stefnan er engu að síður að taka á móti hópum flesta mánuði ársins. „Við tökum samt eingöngu á móti fjórum í einu, því krakkarnir verða auðvitað inni á heimilinu hjá okkur. Það er líka betra að hafa litla hópa svo við getum haldið betur utan um þá,“ segir Lilja sem er orðin spennt að taka á móti fyrstu þátttakendunum. Hægt að er að kynna sér prógrammið frekar á heimasíðunni nordursudur.org. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Draumur í Suður-Afríku Lilja segir gott að búa í Suður-Afríku, sérstaklega með börn. „Ég held að það sé kostur að geta verið undir verndarvæng ís- lenskrar fjölskyldu. Með börnum Lilja segir mikla þörf á sjálfboðalið- um á barnaheimili í Suður-Afríku. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is M.BENZ C 180 CDI 07/2014, ekinn 39 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ 5.490.000 kr. Raðnr.254586 BMW 520D XDRIVE M-PACK F10 04/2015, ekinn 5 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ 8.750.000 kr. Raðnr.254416 AUDI A6 2.0 TDI S-LINE 08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel, sjálfskiptur, gríðarlega vel búinn! Verð: 7.980.000 kr. Raðnr.254356 M.BENZ E 200CDI T BLUETEC AVANTGARDE 11/2014, ekinn 28 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Verð: 6.990.000 kr. Raðnr.254418 AUDI A6 2.0 TDI 05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ 6.290.000 kr. Raðnr.254089

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.