Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 15–18. janúar 2016 Kynningarblað - Heima er best 3
R.B. RÚM sérhæft
á mörgum sviðum
R
.B. RÚM sérhæfir sig í
hönnun á bólstruðum rúm-
göflum, náttborðum og
fleiri fylgihlutum, viðhaldi
á springdýnum og eldri
húsgögnum. „Við höfum framleitt
og selt springdýnur og rúm til þús-
unda ánægðra viðskiptavina úti um
allt land,“ segir Birna Ragnarsdótt-
ir einn eigenda R.B. RÚM. „Við höf-
um í gegnum árin framleitt rúm fyr-
ir hótel, gistiheimili og félagasamtök
og veitt fullkomna þjónustu fyrir
rúmin og dýnurnar. Einnig erum við
með sængur, kodda, dýnuhlífar, lök
og saumum eftir óskum viðskipta-
vina púða og rúmteppi. Auk þess
erum við með Esprit-handklæði í
nokkrum stærðum og mörgum fal-
legum litum,“ segir Birna.
Hafa unnið til
alþjóðlegra verðlauna
„Árið 2010 unnum við til alþjóðlegra
verðlauna á International Quality
Crown Awards í London, fyrir vand-
aða framleiðslu og markaðssetn-
ingu. Þetta eru stór verðlaun en það
er bara eitt fyrirtæki í hverri grein
sem fær þessi verðlaun ár hvert,“ seg-
ir Birna.
Rótgróið fjölskyldufyrirtæki
Að sögn Birnu var R.B.RÚM stofn-
að árið 1943 og verður því 73 ára á
þessu ári. Um er að ræða rótgró-
ið fjölskyldufyrirtæki sem hefur frá
upphafi haft að markmiði að upp-
fylla þarfir viðskiptavina sinna ásamt
því að vera í fararbroddi við þróun og
framleiðslu springdýna. „Vert er að
nefna að fyrirtækið er í heimssam-
tökunum ISPA, sem eru gæðasam-
tök fyrirtækja sem sérhæfa sig í fram-
leiðslu og hönnun á springdýnum,“
bætir Birna við.
Frí heimsending
Birna segir að þau leggja mikla
áherslu á að þjónusta sína viðskipta-
vini eins vel og mögulegt er. „Við
bjóðum því upp á fría heimsendingu
á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu ef við-
skiptavinir kaupa vörur hjá okkur
fyrir 70.000 krónur eða meira,“ seg-
ir Birna.
Eru staðsett í Hafnarfirði
„Við erum staðsett í Dalshrauni 8
í Hafnarfirði og hér erum við með
glæsilega sýningaraðstöðu. Það er
opið hjá okkur alla virka daga frá kl.
09.00 til 18.00 og laugardaga frá kl.
10.00 til 14.00. Við tökum vel á móti
öllum okkar viðskiptavinum,“ seg-
ir Birna. Hægt er að skoða allar vörur
fyrirtækisins á heimasíðu þess rbrum.
is. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á facebooksíðu fyrirtækisins. n