Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Page 25
Helgarblað 15–18. janúar 2016 Kynningarblað - Heima er best 3 R.B. RÚM sérhæft á mörgum sviðum R .B. RÚM sérhæfir sig í hönnun á bólstruðum rúm- göflum, náttborðum og fleiri fylgihlutum, viðhaldi á springdýnum og eldri húsgögnum. „Við höfum framleitt og selt springdýnur og rúm til þús- unda ánægðra viðskiptavina úti um allt land,“ segir Birna Ragnarsdótt- ir einn eigenda R.B. RÚM. „Við höf- um í gegnum árin framleitt rúm fyr- ir hótel, gistiheimili og félagasamtök og veitt fullkomna þjónustu fyrir rúmin og dýnurnar. Einnig erum við með sængur, kodda, dýnuhlífar, lök og saumum eftir óskum viðskipta- vina púða og rúmteppi. Auk þess erum við með Esprit-handklæði í nokkrum stærðum og mörgum fal- legum litum,“ segir Birna. Hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna „Árið 2010 unnum við til alþjóðlegra verðlauna á International Quality Crown Awards í London, fyrir vand- aða framleiðslu og markaðssetn- ingu. Þetta eru stór verðlaun en það er bara eitt fyrirtæki í hverri grein sem fær þessi verðlaun ár hvert,“ seg- ir Birna. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki Að sögn Birnu var R.B.RÚM stofn- að árið 1943 og verður því 73 ára á þessu ári. Um er að ræða rótgró- ið fjölskyldufyrirtæki sem hefur frá upphafi haft að markmiði að upp- fylla þarfir viðskiptavina sinna ásamt því að vera í fararbroddi við þróun og framleiðslu springdýna. „Vert er að nefna að fyrirtækið er í heimssam- tökunum ISPA, sem eru gæðasam- tök fyrirtækja sem sérhæfa sig í fram- leiðslu og hönnun á springdýnum,“ bætir Birna við. Frí heimsending Birna segir að þau leggja mikla áherslu á að þjónusta sína viðskipta- vini eins vel og mögulegt er. „Við bjóðum því upp á fría heimsendingu á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu ef við- skiptavinir kaupa vörur hjá okkur fyrir 70.000 krónur eða meira,“ seg- ir Birna. Eru staðsett í Hafnarfirði „Við erum staðsett í Dalshrauni 8 í Hafnarfirði og hér erum við með glæsilega sýningaraðstöðu. Það er opið hjá okkur alla virka daga frá kl. 09.00 til 18.00 og laugardaga frá kl. 10.00 til 14.00. Við tökum vel á móti öllum okkar viðskiptavinum,“ seg- ir Birna. Hægt er að skoða allar vörur fyrirtækisins á heimasíðu þess rbrum. is. Einnig er hægt að nálgast upplýs- ingar á facebooksíðu fyrirtækisins. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.