Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 15–18. janúar 20164 Heima er best - Kynningarblað
BYKO býður gæða-
vörur á góðu verði
B
YKO í Breiddinni er nú með
útsölu í gólfefnadeildinni
þar sem gæðavörur eru á
góðu verði. Anton Kristinn
Stefánsson, deildarstjóri
gólfefnadeildarinnar, segir að mikið
úrval sé á flísum sem viðskiptavinir
geti nýtt sér á janúarútsölunni sem
er í gangi núna og einnig sé hægt að
fá parkett á góðu verði. „Við erum
með afar gott úrval af harðparketti,“
segir Anton. Auk þess segir hann að
viðskiptavinir geti gert góð kaup á
hurðum, blöndunartækjum, inn-
réttingum, baðplötum, hreinlætis-
tækjum, borðplötum og í raun öllu
fyrir heimilið.
Nýr sýningarsalur,
Hólf og Gólf.
„Við opnuðum nýjan og glæsilegan
sýningarsal, Hólf og Gólf, í verslun
okkar í Breiddinni í september síð-
astliðnum en þar er hægt að sjá allar
vörur okkar uppsettar í sínu fallega
umhverfi. Með salnum er mark-
miðið að bæta þjónustuna við við-
skiptavini okkar enn frekar. Bæði
til verktaka og einstaklinga í fram-
kvæmdum. Salurinn er hólfaður frá
öðrum deildum verslunarinnar og
geta því viðskipta vinir notið þess að
skoða sýnishorn í ró og næði og val-
ið sinn stíl við bestu aðstæður,“ seg-
ir Anton.
Í fararbroddi í verði,
gæðum og þjónustu
„Við erum í fararbroddi hvað varð-
ar verð, gæði og þjónustu. Við erum
með mikið magn af lagervöru sem
einfaldar þínar framkvæmdir en
einnig bjóðum við upp á margs kon-
ar sérpantanir,“ segir Anton. BYKO
býður upp á merki sem hafa marg-
sannað sig í gegnum tíðina eins og
til dæmis Gustavsberg, Villeroy &
Boch, Duravit, Svedbergs, Steirer,
E-Stone, Krono Original, Herholz,
Damixa, Grohe og önnur gæðamerki
sem mörg hver hafa fylgt BYKO í ára-
tugi. „Úrval okkar spannar alla verð-
flokka og þú finnur því alltaf eitthvað
hjá okkur til þess að bæta heimili
þitt,“ segir Anton.
Ávallt hlýjar móttökur
og heitt á könnunni.
„Það er alltaf kaffi á könnunni
og gott viðmót hjá okkur hérna í
Breiddinni. Það er ávallt tekið vel á
móti viðskiptavinum,“ segir Anton.
BYKO á Breiddinni er opið alla virka
daga frá kl. 08.00 til 19.00, laugar-
daga frá kl. 10.00 til 18.00 og sunnu-
daga frá kl. 11.00 til 17.00. n