Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 15.–18. janúar 2016
Útsalan er hafin
30-50% afsláttur af öllum útsölufatnaði
Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Sími: 571-5464
Stærðir 38-54
Meginorsakir
örorku
Geðrask an ir eru al geng asta
ástæða ör orku hjá körl um og þá
einkum hjá ung um karlmönn-
um. Hlutfallslega fleiri konur eru
öryrkjar hér á landi, eða 60 pró-
sent. Velferðarráðuneytið greinir
frá. Teknar voru saman upplýs-
ingar um þróun örorku á Íslandi
undanfarin ár, bæði fjölda þeirra
sem hafa verið metnir til örorku,
hvernig skipting milli aldurs og
kynja lítur út og hvað það er sem
helst veldur því að fólk er metið
til örorku. Voru niðurstöðurnar
kynntar á fundi ríkisstjórnar fyrir
nokkru.
Meðal annars kemur fram að
frá nóv em ber 2010 til nóv em ber
2015 fjölgaði öryrkjum um 9 pró-
sent. Frá árinu 2005 hefur mest
fjölgun verið á aldursbilinu 65 til
66 ára en nær engin fjölgun hef-
ur verið í aldurshópnum 40 til 49
ára. Í yngsta hópnum, 16 til 19
ára, voru 156 öryrkjar í nóvember
2015 en fækkun hefur þó orðið í
þeim hópi.
Þegar litið er á örorku hjá körlum
þá hefur fjölgað mest í aldurs-
hópnum 20 til 24 ára síðustu
fimm ár, eða um 27 prósent. Hjá
konum fjölgaði mest á aldursbil-
inu 65 til 66 ára, eða um 57 pró-
sent.
Vildarvinir Arion
lausir úr fjötrum
Græddu 343 milljónir króna á bréfum í Símanum sem Arion banki seldi þeim í haust
V
alinn hópur vildarvið-
skiptavina Arion banka
getur við opnun markaða í
dag, föstudag, hagnast um
alls 343 milljónir króna á
hlutabréfum í Símanum sem hann
fékk á lægra verði en almennum
fjárfestum bauðst. Gengi bréfanna
hafði við lokun markaða í gær hækk-
að um 23% miðað við verðið sem
Arion banki úthlutaði vildarvinun-
um í september síðastliðnum en
þeir máttu ekki selja hlutina fyrr en
í dag. Bréf almennra fjárfesta í fjar-
skiptafyrirtækinu höfðu þá hækkað
um 3,6%.
Metin á 1,8 milljarða
Vildarvinirnir fengu að kaupa alls
5% hlut í Símanum á genginu 2,8
krónur á hlut. Nokkrum vikum síðar
eða þann 7. október lauk almennu
hlutafjárútboði Arion banka á bréf-
um í fjarskiptafyrirtækinu og varð
niðurstaðan meðalútboðsgengi upp
á 3,33 krónur á hlut. Eins og Frétta-
blaðið rifjaði upp í gær þá var hlutur
viðskiptavina bankans metinn á 1,49
milljarða króna. Í frétt blaðsins var
miðað við gengi Símabréfanna við
lokun markaða á miðvikudag, 3,57
krónur á hlut. Bréfin höfðu þá hækk-
að um 27% í verði frá skráningu Sím-
ans í Kauphöll þann 15. október í
fyrra, en við opnun markaða í dag,
þegar söluhömlunum sem vildar-
vinirnir gengust undir var lyft, voru
þau metin á 3,45 krónur á hlut. Það
þýðir að verðmæti bréfanna nemur
nú 1,8 milljörðum.
Símabréfin lækkuðu um 3,4%
í verði í gær þegar Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar (OMX18) féll um
3,3%. Gengi allra skráðra félaga á
Aðallista Kauphallarinnar lækkuðu
þá og fylgdu sömu þróun og verð-
bréfamarkaðir erlendis en verðfall-
ið í gær var rekið til áframhaldandi
ólgu á Asíumörkuðum og lækkandi
olíuverðs.
Bankinn lánaði
Forsvarsmenn Arion banka svör-
uðu fyrirspurn DV í lok september
á þann veg að fyrirtækið teldi eðli-
legt að vildarvinirnir hefðu feng-
ið að kaupa bréfin á genginu 2,8.
Ástæðan væri sú að kaup á hluta-
bréfum með söluhömlum fælu í sér
aukna áhættu. Rúmum þremur vik-
um síðar sendi Arion banki, sem er
að 13% hluta í eigu íslenska ríkis-
ins, frá sér tilkynningu þar sem fyr-
irtækið viðurkenndi að ekki hefði
verið rétt að selja viðskiptavinun-
um bréfin svo skömmu fyrir útboð-
ið á „gengi sem svo reyndist nokkuð
lægra en niðurstaða útboðsins“. Í til-
kynningunni kom fram að bankinn
fjármagnaði kaupin að hluta. Stjórn-
endur hans höfðu þá verið harð-
lega gagnrýndir og ekki síður vegna
ákvörðunar um að selja hópi tengd-
um Orra Haukssyni, forstjóra Sím-
ans, 5,5% hlut í fjarskiptafyrirtækinu
á genginu 2,5.
Í frétt DV kom fram að vildarvinir
Arion fengu að kaupa í Símanum fyr-
ir að hámarki 25 milljónir króna. Því
er ljóst að fjöldi þeirra hleypur á tug-
um. Vefmiðillinn Kjarninn greindi
síðar frá því að allir kaupendurnir
væru viðskiptavinir í einkabanka-
þjónustu og markaðsviðskiptum
Arion banka og að fyrirtækið hefði
horft til umsvifa viðskipta þeirra við
val á hinum útvalda hópi. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Umdeild sala Arion banki viðurkenndi að sala á hlutabréfum í Símanum til vildarviðskiptavina bankans, skömmu fyrir hlutafjárútboð
fjarskiptafyrirtækisins, hefði verið misráðin. Mynd SiGtryGGUr Ari
Ætla ekki að kaupa húsið
Bæjarráð vísar til hæstaréttardóms
B
æjarráð Garðabæjar hefur
ákveðið að leggja til við bæj-
arstjórn Garðabæjar að hafna
boði um að kaupa Goðatún
34, hús í eigu eldri konu í bænum.
Samkvæmt hæstaréttardómi sem
kveðinn var upp í nóvember 2014
er bærinn ekki skaðabótaskyld-
ur vegna skemmda sem eigandi
hússins telur að séu tilkomnar vegna
framkvæmda á vegum Garðabæj-
ar við götuna Silfurtún, sem er rétt
hjá Goðatúni. Aðili tengdur málinu
skrifaði bænum og bauð húsið til
sölu á 47 milljónir króna. Bæjarráð
segir að með vísan til dómsins verði
að hafna þessu boði. Þetta kemur
fram í fundargerð bæjarins frá 12.
janúar.
Héraðsdómur Reykjaness hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu
að bærinn væri skaðabótaskyld-
ur þar sem húsið hefði verið við-
kvæmt fyrir öllum umhverfisáhrif-
um og engin raunhæf leið til þess að
aftra því að húsið myndi síga vegna
framkvæmdanna. Konan býr nú í
kjallaraíbúð fyrir aldraða og hefur
málskostnaður reynst henni þung
byrði. n
Ónýtt Húsið
er ónýtt vegna
skemmda sem á því
urðu við fram-
kvæmdir í Silfurtúni.
Mynd SiGtryGGUr Ari