Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 32
28 Lífsstíll Helgarblað 15.–18. janúar 2016
Draumurinn rætist
í Suður-Afríku
Lilja Marteinsdóttir ætlar að hafa milligöngu um sjálfboðastörf fyrir íslensk ungmenni
É
g held að það sé varla til betri
staður til að vera með börn.
Það er sumar tíu mánuði á ári
og það gerir svo mikið fyrir geð-
heilsuna. Það er reyndar aðeins
of heitt núna,“ segir Lilja Marteins-
dóttir sem hefur búið ásamt fjölskyldu
sinni rétt fyrir utan Höfðaborg í Suður-
Afríku síðastliðin fjögur ár, en maður-
inn hennar er suðurafrískur. Í hennar
huga er Suður-Afríka algjör drauma-
staður að búa á.
„Þetta eru auðvitað tveir heimar
sem mætast. Það er mikil fátækt og
svo býr fólk ótrúlega vel. Það er mikil
stéttaskipting,“ segir Lilja. Millistétta-
og efnafólk á svæðinu býr í frekar
vernduðu umhverfi en verður engu
að síður alltaf vart við fátæktina, enda
búa hundruð þúsunda í fátækra-
hverfum á svæðinu.
Hugmynd verður að veruleika
Lilja er nýfarin að vinna eftir fæðingar-
orlof, en hún starfar sem markaðs-
stjóri hjá verktakafyrirtæki sem sér-
hæfir sig í uppbyggingu þorpa. Þá
hefur hún gengið með hugmynd í
maganum í svolítinn tíma, sem nú er
að verða að veruleika. Hún er að koma
á fót prógrammi fyrir íslensk ung-
menni á aldrinum 15 til 20 ára sem
felur í sér störf með sjálfboðasamtök-
um í Höfðaborg.
Um er að ræða fjögurra vikna pró-
gramm en meðan á því stendur munu
ungmennin dvelja á heimili Lilju og
fjölskyldu hennar, sem samanstendur
af henni, manninum hennar og þrem-
ur börnum á aldrinum 6 mánaða til 12
ára. Þá verður einnig boðið upp á ferð-
ir þar sem þátttakendur fá að kynn-
ast ýmsum hliðum Suður-Afríku. „Ég
ætla að sjá hvernig þetta fer af stað og
ef verkefnið vindur upp á sig þá væri
frábært að geta bara starfað við þetta.“
Enginn valsar um á eigin vegum
Lilju hefur lengi dreymt um að geta
starfað í tengslum við sjálfboðastörf
og hefur verið dugleg að taka þátt í
sjálfboðastarfi í Höfðaborg. „Fyrst
þegar ég kom hingað þá byrjaði ég
á því að vinna í súpueldhúsum og
fleiri sjálfboðastörf. Það er gríðarleg
þörf á sjálfboðaliðum, til dæmis á
barnaheimilum. Ég var líka dugleg að
fara í skiptinám þegar ég var í námi
og kynntist þannig öðrum menn-
ingarheimum. Ég hef alltaf haft áhuga
á því að tengja þetta einhvern veg-
inn saman og fannst þetta vera besti
tíminn og staðurinn til að láta á það
reyna.“
Það styrkti Lilju enn frekar í trú
sinni á verkefninu að íslenskar vin-
konur hennar sem eiga börn á ung-
lingsaldri höfðu rætt að það væri
lítið í boði fyrir þennan aldursflokk.
„Kosturinn við þetta verkefni er að ég
er auðvitað íslensk og hef gert þetta
sjálf. Ég þekki það eftir að hafa farið í
skiptinám að það það fylgir því áhætta
og óöryggi að fara út, sérstaklega
þegar um sjálfboðastörf er að ræða. Þá
er oft gist á gistiheimilum eða heima
hjá fjölskyldum sem maður veit ekkert
um. Ég held að það sé kostur að geta
verið undir verndarvæng íslenskr-
ar fjölskyldu. Þátttakendur taka þátt
í daglegu lífi okkar. Um helgar förum
við til dæmis á ströndina þar sem
hægt er að læra á brimbretti og ýmis-
legt fleira. Það mun enginn valsa um á
eigin vegum.“
Víkkar sjóndeildarhringinn
Lilja segist hafa fengið fjölda fyrir-
spurna um verkefnið og það er von
á fyrstu þátttakendunum á næstu
vikum. „Ég veit að nokkrir hafa dottið
út úr skóla. Það er svolítið vandamál á
Íslandi ef krakkar detta út úr skóla eft-
ir tíunda bekk þá er afar lítið fyrir þau
að gera. Það er kannski sniðugt á þeim
tímapunkti að
staldra aðeins við
og kynnast heim-
inum. Sjá að hann
er aðeins stærri en
Ísland. Víkka sjón-
deildarhringinn aðeins
og læra eitthvað nýtt.“
Lilja segir skólakrakka líka hafa
sýnt verkefninu mikinn áhuga en þeir
vilji helst koma yfir sumartímann,
þegar frí er í skólanum. Þá er reyndar
vetur í Suður-Afríku og hitastigið
töluvert lægra, þó að það fari sjald-
an niður fyrir 16 til 17 gráður. En það
rignir töluvert yfir vetrartímann og
upplifunin því kannski alveg sú sama.
Stefnan er engu að síður að taka á
móti hópum flesta mánuði ársins.
„Við tökum samt eingöngu á móti
fjórum í einu, því krakkarnir verða
auðvitað inni á heimilinu hjá okkur.
Það er líka betra að hafa litla hópa svo
við getum haldið betur utan um þá,“
segir Lilja sem er orðin spennt að taka
á móti fyrstu þátttakendunum. Hægt
að er að kynna sér prógrammið frekar
á heimasíðunni nordursudur.org. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Draumur í Suður-Afríku
Lilja segir gott að búa í
Suður-Afríku, sérstaklega með börn.
„Ég held
að það sé
kostur að geta verið
undir verndarvæng ís-
lenskrar fjölskyldu.
Með börnum
Lilja segir mikla
þörf á sjálfboðalið-
um á barnaheimili í
Suður-Afríku.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
M.BENZ C 180 CDI
07/2014, ekinn 39 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
5.490.000 kr. Raðnr.254586
BMW 520D XDRIVE M-PACK F10
04/2015, ekinn 5 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
8.750.000 kr. Raðnr.254416
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel,
sjálfskiptur, gríðarlega vel búinn!
Verð: 7.980.000 kr. Raðnr.254356
M.BENZ E 200CDI T BLUETEC
AVANTGARDE 11/2014, ekinn
28 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.
Verð: 6.990.000 kr. Raðnr.254418
AUDI A6 2.0 TDI
05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
6.290.000 kr. Raðnr.254089