Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Síða 27
Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Fólk Viðtal 23
Mun ekki fyrirgefa
mig vantaði peninga til að borga
honum og um leið og ég kom inn
sagði pabbi mér þetta. Ég trylltist
og hljóp öskrandi út í bíl til að borga
leigubílinn. Leigubílstjórinn hefur
haldið að ég væri eitthvað geðveik.
Svo var bara algjört ástand – ein
hver geðbilun – mamma alveg tryllt
og henti öllum út sem vildu hjálpa,
prestum og öðrum og vildi ekki tala
við neinn.“
Missti marga
Stundum virðist sem áföllin elti
sumar fjölskyldur uppi en Ragn
heiður hefur misst fleiri náskylda
ættingja. „Stundum verð ég reið
yfir okkar hlutskipti en ég reyni
að komast hjá því. Það bitnar ein
göngu á manni sjálfum. Þetta er
bara svo mikið. Það væri ekki hægt
að skálda þetta. Mamma átti fimm
systur. Elsta systirin missti son sinn
þrítugan úr hvítblæði og árið 1993
dó önnur systir hennar frá fjórum
börnum. Einum og hálfum mánuði
seinna lést Pési frændi [Pétur Ingi
Þorgilsson] en hann féll af þaki húss
á Ásvallagötu. Pési var ári yngri en
ég. Við vorum mjög náin í upp
vextinum, vorum saman í skóla og
áttum sameiginlega vini. Hann var
frábær, svo hæfileikaríkur, fyndinn
og öðruvísi en allir. Það er ótrúlega
mikill missir að honum.“
Fann föður sinn látinn
Faðir Ragnheiðar, Kristjón Haralds
son, lést svo árið 2011 úr hjartaáfalli
en hann hafði áður fengið hjarta
áfall árið 2008. „Ég hafði talað við
pabba í síma á föstudagskvöldinu
þar sem hann óskaði mér til ham
ingju með nýja starfið. Kaldhæðni
örlaganna höguðu því þannig að
ég var ráðin ritstjóri Séð og heyrt
daginn áður en pabbi dó. Á laugar
deginum hringdi Agnes systir og
sagði mér að pabbi svaraði ekki
í símann. Þar sem ég bjó í næstu
götu við hann og var með lykla fór
ég að athuga með hann. Hann svar
aði ekki þegar ég fór inn og kallaði
en svo sá ég hann liggjandi á gólf
inu. Hann var dáinn.“
Undarleg fyrstu jól
Ragnheiður segir hátíðisdaga og þá
sér í lagi jólin sérstaklega erfið fyrir
þá sem syrgja. „Jólin eru fjölskyldu
hátíð sem snúast um hefðir og vana.
Ég hef misst svo marga að mér hefur
bara fundist þetta óþægilegur tími.
Fyrstu jólin eftir að Áslaug Perla dó
vorum við mamma svo ruglaðar að
við gleymdum að kaupa í matinn.
Þegar ég mætti í Nóatún var af
greiðslustelpan að loka en var svo
almennileg að leyfa mér að komast
inn. Ég hljóp um búðina og tók allt
sem ég sá. Jólamaturinn samanstóð
af kalkúnabringum og tikkamasala
sósu – sem var í takt við okkar líð
an og ástand. Þetta voru undarleg
jól. Síðan hefur þessi tími ekki ver
ið í uppáhaldi en maður hefur reynt
að setja sig í gírinn stráksins vegna.
Maður reynir að búa til nýjar hefðir
og skapa hamingju og það tókst.
Jólin í ár voru hin huggulegustu.“
Með algjöra hörmungahyggju
Áföllin hafa valdið Ragnheiði kvíða
og hún fékk heiftarlegt kvíðakast
sama dag og Áslaug Perla var kistu
lögð. „Ég gat ekki sofnað og hjart
slátturinn varð æ hraðari og ég hélt
að ég væri að fá heilablóðfall. Ég
ákvað því að hringja í pabba og fékk
hann til að sofa inni í stofu heima
hjá mér svo sonur minn væri ekki
einn með mér dauðri. Þar sem ég
augljóslega dó ekki tókst mér að
skríða til læknis um morguninn þar
sem ég fékk að vita að ég væri alls
ekki að fá heilablóðfall heldur væri
þetta kvíðakast. Ég hef verið alveg
ofsalega dauðahrædd; fengið dauð
ann fullkomlega á heilann og óttast
svo að deyja frá syninum. Ég sá
alltaf það versta fyrir mér, var með
algjöra hörmungahyggju og um
tíma varð ég að taka heimasímann
úr sambandi því ég fór í uppnám í
hvert skipti sem hann hringdi. Þetta
var orðið skilyrt. Enda hef ég farið í
allt of margar jarðarfarir.“
Alltaf í megrun
Hún segir áfengi virka eins og eitur
fyrir fólk sem er haldið kvíða. „Ef
fólk langar virkilega til að þjást af
kvíða þá mæli ég með því að það
fái sér í glas og helst reyki með því.
Hjá mér olli áfengið kvíða, þung
lyndi, svefntruflunum og öðrum
óþægindum. Það hentaði mér mjög
illa að drekka,“ segir Ragnheiður
sem hætti að drekka árið 2004. „Ég
er hætt að drekka, hætt að reykja og
hætt að borða mat sem veldur mér
skaða. Ég kýs að vera ekki í því sem
veldur mér vanlíðan. Sú ákvörðun
að leita mér aðstoðar varðandi
mataræðið var mér mjög erfið, en
ég sá að ég gat ekki ráðið við þetta
sjálf. Eftir margítrekaðar tilraunir
varð mér ljóst að ég þurfti hjálp. Ég
var alltaf annaðhvort í megrun eða
einhvers slags ofáti og það gekk ekki
lengur.
Af þessu þrennu, að hætta að
reykja, drekka eða taka til í matnum
er maturinn langerfiðastur. Ég gekk
í gegnum helvíti til að hætta að
reykja og hélt að ég myndi aldrei
geta hætt að nota nikótíntyggjó en
maturinn er langerfiðastur þó svo
að það fylgi því líka mikið frelsi að
sleppa þeim matartegundum sem
vekja hjá mér fíkn. Maður þarf að
borða á hverjum degi og við lifum
í þjóðfélagi þar sem mataráreitið er
stanslaust, sykur og gúmelaði. Það
eru alltaf tveir mánuðir í páska eða
tveir mánuðir í jól og Nói frændi er
alls staðar, nánast að troða upp í þig
súkkulaðinu.“
Hún játar því brosandi að það sé
óréttlát hlutskipti að geta ekki hugg
að sig á erfiðum stundum með smá
konfekti eða rauðvínsglasi. „Mér
finnst það mjög ósanngjarnt en
sjálfsvorkunn er mikill óvinur minn
enda hefur hún aldrei gert neitt fyrir
mig nema komið mér í vandræði.
Ég hef fallið í mataræðinu í sjálfs
vorkunn. Hef kannski verið ótrú
lega dugleg en samt þyngst, orðið
brjáluð og fallið.“
Ósátt við málið
Hún segir móður sína aldrei hafa
jafnað sig á dótturmissinum og að
málið hafi haft mikil áhrif á þeirra
samband. „Rannsókn málsins hefur
valdið mömmu mjög miklu hugar
angri og sjálfri finnst mér ótrúlega
ósmekklegt að hægt sé að afgreiða
málið með nokkrum dómsorðum
þar sem vitnað er í morðingjann. Ég
er mjög ósátt við það. Morðinginn
var einn til frásagnar og neitaði
að útskýra en tókst að ropa úr sér
nokkrum orðum sem voru notuð
í dómsorð. Það er margt við þetta
mál sem hefði mátt fara betur en ég
er hætt að velta mér upp úr því.
„Það tekst ekki
öllum að komast
í gegnum svona og
mömmu minni reyndist
það ofviða að missa
barnið sitt.
Áslaug Perla
með föður
sínum Áslaug
Perla og Kristjón.
Mynd Úr einkAsAFni
systur
Ragnheiður
var sjö ára
þegar Áslaug
Perla fæddist.
Mynd Úr einkAsAFni
Fann ástina
Ragnheiður og
Gunnar Johnson
keyptu sér íbúð
saman fyrir tæpu
ári. Mynd Úr einkAsAFni
Með föður
sínum Ragn-
heiður kom að
föður sínum
látnum.
Mynd Úr einkAsAFni