Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Við bjóðum uppá allar
gerðir merkivéla og
prentara sem henta inná
hvert heimili og fyrirtæki
Komdu við og kíktu
á þetta frábæra úrval
sem við höfum upp
á að bjóða
Tónlistaratriði Isavia
kosta 3,7 milljónir
Ríkisfyrirtækið bókaði Úlf Úlf, Friðrik Dór, Sölku Sól og Sálina hans Jóns míns
H
eildarkostnaður vegna árs
hátíðar Isavia, sem er opin
bert hlutafélag í eigu ríkisins,
nemur 19,5 milljónum króna
og greiðir ríkisfyrirtækið þar
af 3,7 milljónir fyrir átta tónlistar
atriði. Árshátíðin verður haldin á
Hilton Nordicahótelinu og þar boðið
upp á tónlistaratriði frá hljómsveitum
á borð við Sálina hans Jóns míns og
Úlf Úlf og listamönnunum Jóni Jóns
syni, Friðriki Dór, Júníusi Meyvant og
Sölku Sól. Um 1.000 manns hafa boð
að komu sína og greitt 3.000 króna
aðgönguverð og kostnaður Isavia
hefur því lækkað í 16,5 milljónir.
Þrír salir
Árshátíðin verður haldin laugar
daginn næstkomandi í þremur söl
um á Hilton Nordica. Alls starfa
1.200 manns hjá Isavia og dóttur
félögunum Fríhöfninni og Tern.
Samkvæmt svari Isavia við fyrir
spurn DV hefur kostnaður á hvern
árshátíðargest lækkað síðustu ár.
„Starfsfólk Isavia vinnur á yfir 20
stöðum hringinn í kringum landið.
Einu sinni á ári, á árshátíðinni,
koma starfsmenn frá öllum starfs
stöðvum saman og fagna árinu og
kynnast hver öðrum. Síðasta ár var
tekin upp sú nýbreytni að halda árs
hátíð með nýju fyrirkomulagi þar
sem ekki er um hefðbundið sitjandi
borðhald að ræða. Með því var hægt
að lækka kostnað við sal og ákveðið
var að leggja meira í listamenn í
staðinn,“ segir í svari Isavia.
Standandi veisla
DV fjallaði í febrúar í fyrra um árshá
tíðina sem Isavia hélt það árið þegar
ríkisfyrirtækið breytti fyrirkomulagi
hátíðarhaldanna. Í stað hefðbundins
borðhalds með skemmtiatriðum
var ákveðið að bjóða upp á „stand
andi veislu“ þar sem mat og drykk
var að finna víða um hótelið. Isavia
hélt þá úti skráningarsíðu þar sem
starfsmenn gátu boðað komu sína
og kynnt sér dagskrána og matseðil
inn. Síðan var öllum opin og á henni
mátti lesa að „tónlistarveislan“ yrði
haldin í þremur mismunandi söl
um á Hilton Nordica. Það ár stigu
meðal annars tónlistarmennirn
ir Sigríður Thorlacius og Svavar
Knútur á svið ásamt hljómsveitun
um Amabadama og Prins Póló.
Fáeinum dögum áður en árs
hátíðin 2015 var haldin, þegar frétt
DV var skrifuð, stefndi í að hún ætti
eftir að kosta Isavia á milli 15 og 16
milljónir króna. Ríkisfyrirtækið var
rekið með 2,2 milljarða króna hagn
aði árið 2014 og var afkoman rúm
um einum milljarði lakari en árið á
undan. Fyrirtækið, sem annast upp
byggingu og rekstur allra flugvalla
á landinu og stýrir flugumferð í ís
lenska flugstjórnarsvæðinu, hefur
ekki greint frá afkomu síðasta árs.
Langstærstur hluti starfseminnar
fer fram á Keflavíkurflugvelli. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Tónlistarveisla“
Boðið verður upp á alls átta tónlistarat
riði á árshátíð Isavia. Tónlistarmaðurinn
Júníus Meyvant, sem fór frá Íslensku tón
listarverðlaununum 2015 með tvenn verð
laun, fyrir lag ársins og titilinn Bjartasta
vonin, mun spila í veislunni og einnig
Stefán Hilmarsson og aðrir meðlimir Sál
arinnar hans Jóns míns. Rappsveitin Úlfur
Úlfur, ein vinsælasta hljómsveit landsins,
treður einnig upp sem og tónlistar fólkið
Jón Jónsson, Friðrik Dór og Salka Sól.
Isavia bók
aði einnig
hljóm
sveitina
Brimnes og
tónlistar
konuna
Steinunni
Harðardóttur, betur þekkta sem dj. flugvél
og geimskip, og plötusnúðatvíeykið Hits
and Tits.
Troða upp Júníus Meyvant kemur fram á árshátíð Isavia ásamt hljómsveitunum Úlfi Úlfi og
Sálinni hans Jóns míns og tónlistarfólkinu Jóni Jónssyni, Friðriki Dór og Sölku Sól.
MynD ÞorMar ViGnir GunnarSSon
Salka Sól Margir þekktir tónlistarmenn
eru á meðal flytjenda. MynD SiGTryGGur ari
Veisla Bræðurnir Jón og Friðrik Dór stíga á svið.
B
örnin reyndu að breyta
hreimnum svo fólk uppgötv
aði ekki að þau væru frá Sýr
landi,“ segir Fayrouz Abdl
Rahman Nouh í samtali við Akur
eyri vikublað um nöturlega dvöl
fjölskyldu sinnar sem flóttamenn
í Líbanon. Fyrsta tölublað nýs rit
stjóra, Indíönu Ásu Hreinsdóttur, er
komið út fyrir norðan en hún hefur
undanfarinn áratug starfað á DV.
Í viðtalinu ræðir Indíana við hjón
með tvö börn, sem sest eru að á Akur
eyri, eftir að hafa þurft að flýja heim
ili sitt, sem var í borginni Homs í Sýr
landi. Mágur þeirra hjálpaði þeim
í Líbanon en þar eru Sýrlendingar
í stórum stíl og eru ekki velkomnir.
„Eina leiðin til að geta verið þar var
að tala ekki við neinn, fara undan í
flæmingi og láta allt yfir sig ganga.“
Lykilatriði var að fólk uppgötvaði
ekki að þau væru frá Sýrlandi.
Fjölskyldan var farin að íhuga
að reyna að snúa aftur til Sýrlands
þegar þeim bauðst að flytja til Ís
lands. „Þegar maðurinn minn sagði
mér að okkur hefði verið boðið hing
að dansaði ég og hló. Ég vissi ekkert
um landið en var svo ánægð. Börnin
skildu ekkert hvað var í gangi,“ segir
hún í viðtalinu en þau bíða þess enn
að börnin byrji í skóla.
Á Akureyri hafa móttökurnar
verið framar björtustu vonum fjöl
skyldunnar. „Við bjuggumst við að
finna að við værum velkomin en
aldrei datt okkur í hug að móttökurnar
yrðu svona. Við erum heppin og svo
þakklát.“ n baldur@dv.is
Homs Borgin er rústir
einar eftir stríðsátökin.
Oftar en ekki
yfir á rauðu
Oftar en ekki óku ökumenn í
Grafarvogi yfir á rauðu ljósi þegar
VÍS fylgdist með umferð við
gatnamót til móts við Olís á Fjall
konuvegi nýverið. Í 60% tilvika
óku einn eða fleiri bílstjórar yfir á
rauðu, að því er fram kemur á vef
tryggingafélagsins. Fram kemur
að aðstæður hafi ekki verið góðar,
því hálka hafi verið nýtilkomin á
göturnar. Eftir því sem umferðin
jókst fóru fleiri yfir á rauðu.
Síðdegis var fylgst með um
ferð á gatnamótum Grensásvegar
og Miklubrautar. Þar óku öku
menn yfir á rauðu í annað hvert
skipti. Fram kemur að sekt við
slíku broti sé 15 þúsund krónur
en bent er á að það séu smámun
ir samanborið við líkamstjónið
sem hlotist getur af athæfinu.
Reyndu að
lokka börn
Reynt var að lokka drengi
í þriðja bekk í Laugarnes
skóla upp í bíl á fimmtudags
morgun, með því að bjóða
þeim sælgæti. Í tölvupósti
frá skólastjóra skólans til for
eldra nemenda við skólann
kemur fram að drengirnir hafi
brugðist rétt við; sagt nei og
sótt starfsmann. Drengirnir
tóku eftir tegund bílsins og lit
og náðu að leggja á minnið
hluta af númerinu. Málið
hefur verið tilkynnt til lög
reglu en auk þess hefur vakt á
bílaumferð við skólann verið
aukin. Í tölvupósti sínum til
foreldra segir skólastjóri að
starfsfólk skólans hafi hugfast
að vekja ekki óþarfa ótta hjá
nemendum en fræða þá um
hvað þeir eigi að gera í að
stæðum sem þessum.
Kraftbílar ehf. // Draupnisgötu 6
// 603 Akureyri // Sími 464 0000
// kraftbilar@kraftbilar.is
www.kraftbilar.is
Hjólastillingar á bílum af
öllum stærðum og gerðum
Framrúðuskipti
Allar almennar bíla
og vélaviðgerðir
Vetrarskoðun
Himnasending?
Ný Happaþrenna er komin
á næsta sölustað.
• Íslensk framleiðsla, smíði og samse
tning.
• Allar hurðir smíðaðar samkvæmt m
áli.
• Áratuga reynsla starfsmanna í hurð
um.
• Hágæða hráefni.
• Þolir íslenskt veðurfar.
• Stuttur afgreiðslutími.
IS Hurðir | Sími 564 0013 | www.ishurd
ir.is | ishurdir@ishurdir.is
IÐNAÐARHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
Vetrartími frá
29. ágúst – 31. maí:
Mánud. til föstud. kl. 06:45 – 21:00
Laugard. til sunnud. kl. 9:00 – 18:30
SUNDLAUG AKUREYRAR
TUDOR RAFGEYMAR
Jötunn-vélar ehf - Lónsbakki – 601 Akureyri – sími:
4800 440 – www.jotunn.is
MIKIÐ ÚRVAL - TRAUST OG GÓÐ ÞJÓNUSTA
TUDOR 35 ÁR Á ÍSLANDI
- 95Ah, 800 Amper
- 30% meiri ræsikraftur
- Alveg lokaðir og viðhaldsfríir
- Örugg ræsing í miklum kulda
- Endurhlaðast allt að 50% hraðar“ (Car
bon Boost)
- Nýjar og endurbættar blýgrindur (3DX
)
- Góðir fyrir jeppa með miklum auka raf
búnaði
Frí ástandsskoðun á rafgeymum
Öflugir TUDOR
High Tech rafgeymar
11. febrúar 2016 • 1. tölublað 6. árgangur
VI
KU
BL
AÐ
Fayrouz Nouh er frá Homs í Sýrlandi:
„Ég mun aldrei gleyma“
Fayrouz Abdl Rahman Nouh kom hingað til lands í janúar ásamt hópi sýrlenskra flóttamanna.
Fayrouz og fjölskylda hennar flúði
stríðið í Sýrlandi fyrir rúmum þremur
árum og settist að í Líbanon við illan
kost. Þegar eiginmaður hennar sagði
henni að þeim byðist að setjast að á Ís-
landi dansaði hún og söng þrátt fyrir að
vita ekkert um landið. Fayrouz ræðir
hér um hörmungar stríðsins, flóttann,
Assad forseta, lífið í Homs fyrir átökin og
þakklætið í garð Akureyringa sem hún
segir taka fjölskyldunni opnum örmum.
Viðtal á bls. 12-13.
Ísland eins og draumur
Fayrouz abdl rahman nouh lýsir veruleika flóttamanna