Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 12.–15. febrúar 2016 Kynningarblað - Á skíðum skemmti ég mér 3 G uðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður Hlíðarfjalls, segir glaður í bragði að nægur snjór sé í fjallinu og langtímaspá- in lofi góðu: „Við eigum von á að skíðaáhugafólk komi hingað norð- ur yfir heiðar og nýti sér gott veður til þess að leggja stund á skíðamennsku um helgina. Þar sem vetrarfrí eru nú í mörgum grunnskólum er tilvalið að skella sér með fjölskylduna í skíðaferð til Akureyrar og þeysast um brekkurn- ar í Hlíðafjalli. Þeir sem eru óvanir en áhugasamir um skíðasportið skemmtilega geta notað tækifærið og farið í skíðaskóla hjá okkur og feng- ið úrvals leiðsögn. Við erum líka með brettaskóla sem nýtur sífellt meiri vin- sælda. Hér er ekkert mál að fá leigð- an allan nauðsynlegan búnað svo ekki er nauðsynlegt að græja sig upp fyrir skíðaferðina.“ Skíða- og brettaskóli fyrir börn og fullorðna „Skíða- og brettaskólinn sem við starf- rækjum er með skipulagða tíma fyrir börn á aldrinum 5-12 ára en einnig er hægt að fá einkakennslu við hæfi hvers og eins, ef þess er óskað. Þetta er skóli sem engum leiðist í! Námið í skólanum er frábær kostur fyrir krakka sem vilja læra á skíði og/eða bretti eða bara leika sér með hressum, hæf- um kennurum og öðrum krökkum. Í skíðaskólanum öðlast börn sem eru byrjendur öryggi í brekkunum með því að læra undirstöðuatriðin eins og að stoppa, beygja, stjórna hraðanum og að nota barnalyftuna (Hólabraut). Svo er einnig á boðstólum leiðsögn þá krakka sem hafa náð öryggi í barna- lyftunni en vilja samt aðstoð til að komast áfram, læra á stólalyftuna og jafnvel komast upp úr pizzunni.“ Foreldrar rifja upp gamla takta í brekkunum „Skíða- og brettaskólanum leggjum við mikla áherslu á að allir fari ánægðir heim. Við blöndum saman leik og kennslu og leggjum áherslu á að börnin læri um reglur og um- gengni á skíðasvæðum og að bjarga sér sjálf. Það getur verið skemmtileg tilbreyting fyrir krakkana að renna sér með jafnöldrum sínum og notalegt fyrir foreldrana að fá tækifæri til að renna sér ein í brekkunum stundar- korn og rifja upp gamla takta. Þátt- takendur í Skíða- og brettaskólanum fá svo boðskort á Greifann – einn ást- sælasta veitingastað bæjarins í gegn- um tíðina.“ Hlíðarfjall, Greifinn og leikhúsið „Ef fólk er að leggja drög að fjölskyldu- samveru hér á Akureyri um helgina þá er vert að benda á hina frábæru sýn- ingu Píla Pína sem Leikfélag Akur- eyrar setur upp í samstarfi við Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarhúsið Hof. Píla er ævin týri með söngvum eftir Kristján frá Djúpa- læk með lögum Heiðdísar Norðfjörð. Tónlist Heiðdísar og Ragnhildar Gísla- dóttur, við ljóð Kristjáns um Pílu Pínu, hefur flutt heilar kynslóðir á ævin- týraslóðir. Við mælum með því að sameina hressandi hreyfingu og úti- vist á skíðum í Hlíðarfjalli, njóta góm- sæts málsverðar á Greifanum og nota kvöldið í ljúfa leikhúsferð. Fjölskyldu- skíðaferðin getur ekki orðið betri.“ n Hressleiki og hreysti í brekkum Hlíðarfjalls Myndir Auðunn níelSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.