Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Page 25
Helgarblað 12.–15. febrúar 2016 Kynningarblað - Á skíðum skemmti ég mér 3
G
uðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður Hlíðarfjalls, segir
glaður í bragði að nægur snjór
sé í fjallinu og langtímaspá-
in lofi góðu: „Við eigum von á
að skíðaáhugafólk komi hingað norð-
ur yfir heiðar og nýti sér gott veður til
þess að leggja stund á skíðamennsku
um helgina. Þar sem vetrarfrí eru nú
í mörgum grunnskólum er tilvalið að
skella sér með fjölskylduna í skíðaferð
til Akureyrar og þeysast um brekkurn-
ar í Hlíðafjalli. Þeir sem eru óvanir
en áhugasamir um skíðasportið
skemmtilega geta notað tækifærið og
farið í skíðaskóla hjá okkur og feng-
ið úrvals leiðsögn. Við erum líka með
brettaskóla sem nýtur sífellt meiri vin-
sælda. Hér er ekkert mál að fá leigð-
an allan nauðsynlegan búnað svo ekki
er nauðsynlegt að græja sig upp fyrir
skíðaferðina.“
Skíða- og brettaskóli
fyrir börn og fullorðna
„Skíða- og brettaskólinn sem við starf-
rækjum er með skipulagða tíma fyrir
börn á aldrinum 5-12 ára en einnig
er hægt að fá einkakennslu við hæfi
hvers og eins, ef þess er óskað. Þetta
er skóli sem engum leiðist í! Námið í
skólanum er frábær kostur fyrir krakka
sem vilja læra á skíði og/eða bretti
eða bara leika sér með hressum, hæf-
um kennurum og öðrum krökkum. Í
skíðaskólanum öðlast börn sem eru
byrjendur öryggi í brekkunum með
því að læra undirstöðuatriðin eins og
að stoppa, beygja, stjórna hraðanum
og að nota barnalyftuna (Hólabraut).
Svo er einnig á boðstólum leiðsögn þá
krakka sem hafa náð öryggi í barna-
lyftunni en vilja samt aðstoð til að
komast áfram, læra á stólalyftuna og
jafnvel komast upp úr pizzunni.“
Foreldrar rifja upp
gamla takta í brekkunum
„Skíða- og brettaskólanum leggjum
við mikla áherslu á að allir fari
ánægðir heim. Við blöndum saman
leik og kennslu og leggjum áherslu
á að börnin læri um reglur og um-
gengni á skíðasvæðum og að bjarga
sér sjálf. Það getur verið skemmtileg
tilbreyting fyrir krakkana að renna sér
með jafnöldrum sínum og notalegt
fyrir foreldrana að fá tækifæri til að
renna sér ein í brekkunum stundar-
korn og rifja upp gamla takta. Þátt-
takendur í Skíða- og brettaskólanum
fá svo boðskort á Greifann – einn ást-
sælasta veitingastað bæjarins í gegn-
um tíðina.“
Hlíðarfjall, Greifinn og leikhúsið
„Ef fólk er að leggja drög að fjölskyldu-
samveru hér á Akureyri um helgina þá
er vert að benda á hina frábæru sýn-
ingu Píla Pína sem Leikfélag Akur-
eyrar setur upp í samstarfi við Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands og
Menningarhúsið Hof. Píla er ævin týri
með söngvum eftir Kristján frá Djúpa-
læk með lögum Heiðdísar Norðfjörð.
Tónlist Heiðdísar og Ragnhildar Gísla-
dóttur, við ljóð Kristjáns um Pílu Pínu,
hefur flutt heilar kynslóðir á ævin-
týraslóðir. Við mælum með því að
sameina hressandi hreyfingu og úti-
vist á skíðum í Hlíðarfjalli, njóta góm-
sæts málsverðar á Greifanum og nota
kvöldið í ljúfa leikhúsferð. Fjölskyldu-
skíðaferðin getur ekki orðið betri.“ n
Hressleiki og hreysti í
brekkum Hlíðarfjalls
Myndir Auðunn níelSSon