Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Blaðsíða 30
26 Lífsstíll Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Gott að hugsa á
þessum nótum
Áslaug Guðrúnardóttir er höfundur bókar um mínímalískan lífsstíll
S
ífellt fleiri aðhyllast mínímal-
ískan lífsstíl. Þar á meðal
er Áslaug Guðrúnardóttir
en hún er höfundur bók-
arinnar Mínímalískur lífs-
stíll – Það munar um minna. Bjartur
gefur bókina út og Þórarinn Baldurs-
son er höfundur teikninga. Áslaug er
fyrst spurð hvað það merki að fylgja
mínímalískum lífsstíl. „Mínímalískur
lífsstíll snýst um það að fara yfir líf
sitt, skoða það sem maður á og spyrja
sig hvort það sé það sem maður þarf,“
segir hún. „Við eigum yfirleitt svo
margt sem við notum ekki. Mínímal-
ískur lífsstíll snýst um að losa sig við
það sem er kannski bara að þvælast
fyrir manni. Þetta á ekki bara við um
hluti heldur einnig margar athafnir
og það hvernig maður lifir lífinu. Það
er hægt að laga svo margt.“
Hvenær uppgötvaðir þú mínímal-
ískan lífsstíl?
„Þegar því var stungið að mér hvort
ég vildi ekki skrifa bók um mínímal-
ískan lífsstíl þá áttaði ég mig á því að
ég hef á vissan hátt alltaf lifað sam-
kvæmt honum, þótt ég hefði ekki
verið meðvituð um að það væri sér-
stakur lífsstíll. Ég er enn að. Um
daginn var ég að taka til í skáp þar
sem ég geymi rúmföt fjölskyldunnar
og hann var svo troðinn að það var
varla hægt að koma nokkru þar inn.
Það sem ég sá að við notum ekki fór
ég með í Rauða krossinn og um leið
kemur það að gagni annars staðar .
Stærsta skrefið í mínímalíska lífs-
stílnum var þegar við fjölskyldan
fluttum úr risastóru húsi í hús sem er
þrisvar sinnum minna. Við þurftum
að minnka ansi mikið við okkur og
seldum bækur, föt og húsgögn og gáf-
um Barnaspítala Hringsins ágóðann.
Það sem seldist ekki sótti Samhjálp
og seldi á nytjamarkaði.“
Lítið pláss fyrir óþarfa
Áslaug segir að það hafi verið hið
besta mál að flytja í mun minna hús-
næði. „Það hentaði mér betur og
það er auðveldara að halda því við
og þrífa. Í minna húsi er lítið pláss
fyrir óþarfa og maður er fljótari að
losa sig við það sem er ónauðsynlegt.
Mér fannst húsið sem við fluttum
úr vera alltof stórt. Ef einhver annar
var heima vissi maður stundum ekki
af því vegna þess að hann var á ein-
hverri annarri hæð. Ég kann betur
við að hafa fólkið
mitt nær mér og
við höfum alveg
nóg pláss.“
Hún segir að
fólk sé að verða æ
meðvitaðra um mínímalískan lífs-
stíl. „Það er alveg sama hvert ég
kem, fólk vill tala um þetta við mig.
Það eru allir með eitthvað sem þeir
vilja gjarnan losna við og þegar þeir
kynnast mínímalíska lífsstílnum átta
þeir sig á því að það er hægt án þess
að setja allt á annan endann.“
Ólst upp við nægjusemi
Áslaug segist gera skýran mun á
mínímalisma og nægjusemi. „Ég
ólst upp við nægjusemi á frekar fá-
tæku heimili í Breiðholti og þar
þurfti maður að sætta sig við að eiga
það sem maður átti, það var ekkert
annað í boði. Nú er svo margt í boði.
Fólk sankar að sér alls konar hlutum
í hugsunarleysi án þess að hafa
sérstaka þörf fyrir þá eða ánægju af
þeim. Áður en fólk
veit af er það komið
með fulla skápa og
skúffur af dóti sem
það hefur ekki not
fyrir. Um leið og
maður fer að íhuga
hvort maður þurfi á öllu þessu að
halda fer maður að velta fyrir sér um-
hverfisvernd og til dæmis því hvort
ódýru fötin manns séu framleidd við
mannsæmandi aðstæður. Það gerir
manni bara gott að hugsa á þessum
nótum.“
Í nýju starfi
Áslaug, sem vann í mörg ár sem
fréttakona á RÚV, er komin í nýtt starf
sem kynningarstjóri hjá Listasafni
Reykjavíkur. „Þetta nýja starf á mjög
vel við mig og það er óskaplega
skemmtilegt,“ segir hún og bætir við:
„Samstarfsfólkið er frábært og það
er líf og fjör á vinnustaðnum og ég
hef miklu meira að gera en ég hefði
nokkru sinni getað ímyndað mér.“ n
10 ástæður fyrir því að tileinka
sér mínímalískan lífsstíl
Af bloggsíðu hjónanna Tico og Tinu (www.ticoandtina.com)
1 Minni óreiða, meira pláss, betra skipulag
2 Minni þvottur, minna uppvask, auðveldara að
halda í horfinu
3 Sparar peninga
4 Betri hlutir
5 Meiri tími
6 Betri einbeiting og skýrari markmið
7 Færri áhyggjur og minna stress – meiri
ánægja
8 Maður gefur meira af sér
9 Aukinn sveigjanleiki
10 Meira sjálfstraust og minni samkeppni
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Um leið og maður
fer að íhuga hvort
maður þurfi á öllu þessu
að halda fer maður að
velta fyrir sér umhverfis-
vernd og til dæmis
því hvort ódýru fötin
manns séu framleidd við
mannsæmandi aðstæður.
Áslaug Guðrúnardóttir
„Mínímalískur lífsstíll snýst
um að losa sig við það sem er
kannski bara að þvælast fyrir
manni.“ Mynd ÞorMAr ViGnir GunnArSSon
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR