Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Blaðsíða 6
6 Fréttir Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Dekraðu við
ástina þína með
blómum frá okkur
Opið á
Valentínusardag
frá kl. 9-18
mán. - fös. 10-18
lau. 11-18
& sun. 12-16
Borgartún 23, Reykjavík - Sími: 561 1300
Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is
Þeir sem versla um helgina fara vinningspott. Glæsilegir vinningar.
Árni PÁll tætir í
sig samfylkinguna
n kallar eftir uppgjöri n allir, ekki bara sumir, þurfa að líta í eigin barm
Á
rni Páll Árnason fer mikinn
í bréfi sem hann sendi
flokksmönnum Samfylkingar
innar. Hann fer þar yfir farinn
veg, krefst uppgjörs og segir
að allir, ekki bara sumir, verði að líta í
eigin barm án þess að einstaklingum
verði fórnað fyrir málstaðinn.
Í bréfinu svarar Árni Páll kalli Ingi
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrr
verandi formanns flokksins, um að
Samfylkingin fari dýpra í innri endur
skoðun. Hún sagði vandann stærri
en bara formannsins. „Það er auðvit
að flokksfólks að meta það hvort það
vill sjá annars konar forystu í flokkn
um, það er bara mál út af fyrir sig.
Það eitt og sér mun ekki leysa vanda
Samfylkingarinnar, hann ristir miklu
dýpra en svo,“ sagði Ingibjörg í við
tali við Rás 2 í síðustu viku. Þrýst hef
ur verið á um nýtt formannskjör og
hefur verið tíðrætt að staða Árna Páls
sé veik, sérstaklega eftir óvænta at
lögu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur
að formannsembættinu í fyrra. Árni
Páll hélt embættinu á landsfundi, en
aðeins með einu atkvæði. Bæði hafa
þau setið undir ámæli, Árni Páll fyrir
að vera ekki sterkari formaður og
sameiningartákn flokksins og Sigríð
ur Ingibjörg fyrir að hafa í raun veikt
stöðu flokksins með óvæntu framboði
sínu. En vandi flokksins er mun djúp
stæðari, ef marka má bréf Árna Páls
sem segist sjálfur vera að meta stöðu
sína sem formaður.
Alvarlegur skortur á
trúverðugleika
„Við búum við alvarlegan skort á trú
verðugleika,“ segir formaðurinn og
segir flokkinn ekki hafa uppskorið eins
og hann átti að gera í síðustu alþingis
kosningum, þrátt fyrir árangur fyrri
ríkisstjórnar. Það geri hann ekki enn.
Hann segir að það sé rangt að flokk
urinn hafi ekki tekið á „stóru málun
um“ og tiltekur þónokkur þeirra. En
Árni Páll hefur einmitt setið undir
þeirri gagnrýni að hann hafi viljað fjar
lægja sig frá fyrri ríkisstjórn í síðustu
kosningum. Í bréfinu hrósar hann og
snuprar allt í senn fyrri ríkisstjórn, en
ekki má gleyma að hann var hluti af
henni, þó ekki nema til skamms tíma.
Hann segir þó að Samfylkingin
verði að líta í eigin barm og viður
kenna þennan skort á trúverðugleika.
„Öll, ekki bara sum,“ segir hann og
vísar þá væntanlega til þess að það
geti ekki aðeins verið hann sem taki
ábyrgð á vandræðum flokksins.
Byrjaði 2007
Hann tiltekur mistökin og segir vanda
flokksins hafa raunar byrjað árið 2007
þegar hann hóf ríkisstjórnarsamstarf
við Sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin
er sögð hafa gengið inn í valdakerfi
„gömlu“ flokkanna en ekki gert kröf
ur um breytingar. Þar með hafi flokk
urinn, í hruninu, verið ófær um að tak
ast á við hagsmunatengsl peninga og
stjórnmála, til dæmis styrkveitingar
til flokkanna, einstaklinga og þátt
töku einstakra stjórnmálamanna í að
draganda hrunsins.
Hrósar Ingibjörgu Sólrúnu
Árni Páll hrósar Ingibjörgu Sólrúnu
sérstaklega fyrir að hafa axlað ábyrgð
og beðist afsökunar, en ætla má að
orð hennar um að flokkurinn þurfi
að horfast í augu við sjálfan sig sé að
baki bréfsins til flokksins, en ræð
ir ekkert um Jóhönnu Sigurðardóttur,
sem þó var síðasti formaður flokksins.
Hann vísar þó, leynt og ljóst, til henn
ar. „En við fórum svo með allan þenn
an vanda óuppgerðan með hraði í nýtt
samband með VG,“ segir Árni Páll. Þar
með hafi flokkurinn misst sambandið
við verkalýðshreyfinguna og atvinnu
lífið.
Hann tiltekur mun fleiri þætti, sem
vísa margir til þess að flokkurinn, þrátt
fyrir umboð frá kjósendum, hafi ekki
hlustað á samfélagið og kjósendur.
Það hafi verið bersýnilegt þegar flokk
urinn mælti gegn þjóðaratkvæða
greiðslum á ýmsum sviðum.
Hann vísar til dæmis til þess að
flokkurinn studdi samning, og raunar
samninga, um Icesave sem „vörðu
ekki ítrustu hagsmuni þjóðarinnar“.
Þá hafi flokkurinn gengið gegn því að
kosið yrði um samningana í þjóðar
atkvæðagreiðslu. Samkomulagið um
Evrópusambandið, eitt stærsta og
mesta pólitíska mál Samfylkingar
innar, var byggt á „flóknu baktjalda
samkomulagi“, sem aldrei hélt, segir
Árni Páll. Þar vantaði skýrt umboð frá
þjóðinni, sem hefði bundið alla flokka
Alþingis til þess að farið yrði í viðræð
urnar. Ætla má af orðum formanns
ins að ESBviðræðurnar hafi fyrir vik
ið verið dauðadæmdar frá upphafi, en
þó haldið til streitu.
Kannski má rekja það til slaks fylgis
flokksins og lélegs árangurs í kosning
um, viðbrögðin við ákalli þjóðarinn
ar um hjálp sem var neitað. Þegar fólk
var að drukkna í skuldafeni hafi flokk
urinn þar að auki reynt að fá fólk til að
borga skuldir sínar, en ekki tekið af
stöðu með fólkinu gegn fjármálakerf
inu, segir Árni Páll.
Ætli Samfylkingin að fara aftur í
ríkisstjórn, verði hún að gera kröfu
um grundvallarbreytingar. Í bréfinu til
flokksmanna, tætir hann í sig ákvarð
anir síðasta formanns, Jóhönnu Sig
urðardóttur, og forystu en segir þó að
það sé mikilvægt að leita ekki uppi
sökudólga, heldur að flokkurinn axli
sameiginlega ábyrgð á mistökunum.
Jóhanna Sigurðardóttir vildi ekki ræða
við DV þegar eftir því var leitað og
kvaðst ekki hafa lesið bréf Árna Páls.
Ef marka má samskipti þeirra opin
berlega á undanförnum árum er ljóst
að andað hefur köldu þeirra í milli.
Árni Páll bendir réttilega á að í
staðinn fyrir að hafa axlað ábyrgðina
hafi fólki nánast verið fórnað í staðinn
og látið standa eitt. Hann vísar til að
mynda til Steinunnar Valdísar Óskars
dóttur, og segir að henni hafi verið
fórnað fyrir framgöngu í flokkskjörum.
Þá hafi framganga flokksins í Lands
dómsmálinu, þar sem aðeins Geir H.
Haarde var sóttur til saka, skilið eftir
sig djúp sár og sáð fræjum efasemda.
Þetta leiddi til þess að flokkurinn var
ekki álitinn samheldin sveit. „Við þurf
um að tala betur hvert um annað,
verja hvert annað og sýna að við séum
gott og eftirsóknarvert samfélag.“
Verjast
Vandi flokksins hefur einmitt ekki
síst verið sá að þegar að flokksfor
ystan hefur setið undir gagnrýni hef
ur enginn stigið upp henni til varnar.
Ásakanir hafa verið lagðar fram bæði
á fundum og umræðusvæðum innan
Samfylkingarinnar, en einnig á opin
berum vettvangi.
Nú síðast benti Ólína Þorvarðar
dóttir varaþingmaður á að hrun Sam
fylkingarinnar í skoðanakönnunum
benti til þess að flokkurinn myndi
þurrkast út fyrir haustið. Hún gagn
rýndi formanninn einnig harðlega eft
ir síðustu alþingis kosningar, en hún
náði ekki inn á þing.
Þá lögðu þau Sigríður Ingi
björg Ingadóttir og Helgi Hjörv
ar fram frumvarp um afnám verð
tryggingar á neytendalánum og
gagnrýndi Árni Páll frumvarp
ið sem virtist þar að auki ekki njóta
stuðnings meirihluta þingflokksins.
Ímynd Samfylkingarinnar hefur ver
ið sú að flokkurinn sé sundurlaus og
innanflokks átök sem þessi bæta ekki
ímynd hans. Þetta frumvarp endur
speglar vel hversu mikill ágreining
ur er innan þingflokksins, en Helgi
Hjörvar er þingflokksformaður. Í bréf
inu vísar Árni Páll leynt og ljóst til
þessa upphlaups og segir: „Ef sótt er
að forystufólki í flokki og enginn kem
ur því til varnar, upplifir þjóðin það
sem skilaboð um sundurlausan flokk
sem ekki sé treystandi.“
Breiðfylking?
Fyrir síðustu alþingi og sveitarstjórnar
kosningar varð Árna Páli tíðrætt um
mikilvægi þess að Samfylkingin sé
breiðfylking sem rúmi ólíkar skoð
anir. Í bréfi sínu vísar hann einmitt
til þess en lætur að því liggja að inn
anflokks séu einstaklingar sem ekki
eru jafn tilbúnir til að takast á við slík
verkefni. „Samfylkingin þarf nefni
lega líka að svara þeirri spurningu af
heiðarleika hvort hún er tilbúin að
vera breið fjöldahreyfing,“ skrifar hann
og bætir við: „Vill hún vera framtíðar
flokkur, sem tekur sér stöðu í sam
félaginu miðju og fagnar samvinnu
við verkalýðshreyfingu og atvinnulíf,
þekkingarsamfélagið og frjáls félaga
samtök? Er Samfylkingin tilbúin að
rúma ólíkar skoðanir en sameinast
um meginlínur félagslegs réttlætis og
jafnra tækifæra, eða er gerð krafa um
eina skoðun og eina leið í öllum mál
um? Fyrri leiðin er leið fjöldahreyf
ingar jafnaðarmanna. Seinni leiðin
er leið hefðbundins vinstri flokks. Við
verðum að velja þar á milli.“
Árni Páll segir að flokkurinn verði
að eiga samtal. Á gullöld hans hafi
fundarsetur verið fram eftir nóttu þar
sem farið var yfir málin og línurnar
lagðar, en nú virðist samtalið fara
fram í skúmaskotum einstakra hópa
sem tali illa saman. Það verði flokkn
um ekki til framdráttar. „Við þurfum
núna að eiga samtal um þetta allt, til
að skapa sátt og traust,“ segir hann. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Hefur ekki gert
upp hug sinn Árni
Páll segist enn eiga
eftir að ákveða hvað
hann gerir varðandi
formannsembættið.
Mynd SIgtryggur ArI
„Við
búum
við alvarlegan
skort á trú-
verðugleika