Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Page 10
Helgarblað 12.–15. febrúar 201610 Fréttir
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
T
veir æðstu stjórnend-
ur Landsbankans, Stein-
þór Pálsson bankastjóri og
Tryggvi Pálsson, formað-
ur bankaráðs, voru sam-
starfsmenn Hauks Oddssonar, for-
stjóra Borgunar, í stjórnendateymi
Íslandsbanka á tíunda áratug síð-
ustu aldar. Þeir störfuðu saman hjá
bankanum í áratug og sátu um tíma
allir í framkvæmdastjórn Íslands-
bankasveitarinnar svokölluðu.
Haukur og æðstu stjórnendur Borg-
unar keyptu hlut í greiðslukorta-
fyrirtækinu í nóvember 2014 þegar
Landsbankinn seldi tæpan þriðj-
ungshlut sinn í því til stjórnenda-
hópsins og meðfjárfesta þeirra í
lokuðu söluferli þar sem öðrum
fjárfestum var ekki gefinn kostur á
að bjóða í eignina.
Stýrðu þremur sviðum
Þann 24. september 1998 birti
Morgunblaðið frétt um breytingar
á stjórnskipulagi Íslandsbanka.
Var þar vísað í fréttatilkynn-
ingu fyrirtækisins um að Íslands-
bankasveitinni, það er bankanum
og þáverandi dótturfélögum hans,
yrði stýrt af ellefu manna stjórn-
endateymi. Upplýsingatækni yrði
gerð að sérstöku stoðsviði og Hauk-
ur Oddsson, sem hafði stýrt upp-
lýsingatæknideild bankans frá
stofnun hans árið 1990, yrði fram-
kvæmdastjóri þess. Tryggvi Páls-
son, bankastjóri Íslandsbanka á
árunum 1990–1993, yrði fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bank-
ans. Steinþór Pálsson, sem hafði
áður gegnt starfi forstöðumanns
áhættustýringar og verið hluti af
stjórnendateymi bankans frá 1990,
tæki við starfi forstöðumanns fyrir-
tækjaþjónustu.
Steinþór og Tryggvi voru einnig
samstarfsmenn í Verslunar-
banka Íslands á níunda áratugn-
um. Tryggvi var ráðinn bankastjóri
1988 og gegndi lykilhlutverki í sam-
runa þeirra fjögurra banka sem
síðar mynduðu Íslandsbanka árið
1990. Steinþór var um tíma fram-
kvæmdastjóri lánasviðs Verslunar-
bankans. Haukur Oddsson var aftur
á móti forstöðumaður rafreiknis-
viðs Iðnaðarbankans sem rann inn í
nýja bankann. Hann starfaði hjá Ís-
landsbanka, síðar Glitni, til 2007 eða
þangað til hann var ráðinn forstjóri
Borgunar hf. Steinþór og Tryggvi
hættu báðir hjá Íslandsbanka alda-
mótaárið 2000. Tryggvi var kjörinn
formaður bankaráðs Landsbank-
ans í apríl 2013 þegar Steinþór hafði
gegnt stöðu bankastjóra í þrjú ár.
Seldi bréf í Borgun
Landsbanki Íslands átti 20% hlut
í Borgun í árslok 2007 en Glitn-
ir var þá stærsti hluthafinn með
55%. Haustið 2010 keypti Lands-
bankinn hluti í Borgun af Íslands-
banka þegar bankarnir tveir skiptu
á hlutabréfum í því og fyrirtækinu
Kreditkort. Vorið 2011 rann SpKef
inn í Landsbankann og fylgdu þá
með hlutabréf í Borgun. Á endan-
um átti Landsbankinn 31,2% í fyr-
irtækinu.
Þann 13. mars 2014 gerði fjár-
festahópur sem nú myndar
Eignarhaldsfélagið Borgun slf. til-
boð í alla hluti Landsbankans í
Bankastjóri og formaður bankaráðs Landsbankans unnu báðir í áratug hjá Íslandsbanka með forstjóra Borgunar
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Voru allir stjórnendur í
Íslandsbankasveitinni
Íslandsbankasveitin Árið 1998 fjallaði Morgunblaðið um breytingar
á stjórnskipulagi Íslandsbanka. Tryggvi Pálsson, bankaráðsformaður
Landsbankans, hafði þá tekið við stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs
Íslandsbanka. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, og Haukur
Oddsson, forstjóri Borgunar, stýrðu þá öðrum sviðum innan Íslandsbanka og
störfuðu báðir undir Tryggva í bankastjóratíð hans á árunum 1990–1993.