Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Qupperneq 11
Fréttir 11Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Glæsilegur bíll með
miklum aukabúnaði!
M.BENZ C 220 BLUETEC AVANTGARDE
Nýskráður 10/2014, ekinn 9 Þ.km, dísel 170hö, sjálfskiptur 7 gíra. Bakkmyndavél, lyklalaust
aðgengi og start, Íslenskt leiðsögukerfi, krómpakki, öryggispakki , LED ljósapakki, inrétting-
arpakki, rafmagnsopnun/-lokun á skottloki, USB, bluetooth og aux tengi og fleiri aukahlutir.
Verð 7.990.000. OKKAR BESTA VERÐ 6.990.000 kr.
Raðnr. 254705 á www.BILO.is
S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k . • b i l o@b i l o. i s • w w w. b i l o. i s
„Þau gera sjálf –
því þau geta það“
Börnin á Sunnuási gera sína eigin öskudagsbúninga alveg sjálf
Þ
etta eykur sjálfstæði barn-
anna, sjálfstraust og trú á
eigin getu,“ segir Candace
Alison Laque, deildarstjóri
Langasands á leikskólan-
um Sunnuási í Reykjavík. Á leik-
skólanum gera börnin sína eigin
öskudagsbúninga frá grunni. Undir-
búningurinn byrjar í janúar og þá
teikna börnin búningana sína á blöð
og ákveða hvernig þau vilja hafa þá.
Leikskólakennararnir og leiðbein-
endur skipta sér ekki af hugmynda-
vinnunni, nema til að hvetja börn-
in áfram. „Við skiptum okkur nú
bara eiginlega ekkert af þessu,“ segir
Candace og hlær.
Leikskólinn vinnur mikið með
skapandi starf og hefur það að
leiðarljósi að hvetja börn til skapandi
verk efna, til þess að hugsa og vinna
sjálfstætt. „Við erum að vinna með
lýðræði og jafnrétti í öllum náms-
þáttum. Svona er leikskólinn okkar,“
segir hún.
Hugmyndaflugið á að ráða
ferðinni og börnin geta valið sér
hvaða liti sem er, eins og sést á með-
fylgjandi myndum. „Ef barnið vill
hafa þetta svona, þá má barnið gera
það. Það er svo miklu skemmtilegra,“
segir hún.
Þegar hafist er handa við sauma-
skapinn er starfsfólk skólans börnun-
um innan handar, en þau fá snemma
að spreyta sig á að nota saumavélar
skólans. „Við reynum að hjálpa þeim
eins lítið og við getum. Það hjálp-
ar þeim kannski meira, eykur sjálfs-
traust þeirra. Þetta er ekki auðvelt
í fyrstu en verður alltaf auðveldara
og þau læra að gera þetta þegar þau
koma fyrst á leikskólann. Þetta er gott
fyrir fínhreyfingarnar þeirra. Þegar
þau útskrifast frá okkur eru þau orðin
svo flink að sauma,“ segir hún.
„Það voru tvö börn sem fluttu
úr hverfinu og skiptu um leikskóla,
en við saumuðum líka búninga fyr-
ir þau. Það hefði verið svo leiðinlegt
ef þau hefðu misst af því að fá bún-
ingana sína,“ segir Candace. Þegar
öskudagur svo rennur upp eru all-
ir spenntir fyrir deginum, máta bún-
ingana sína og börnin fá sjálf að mála
sig með andlitsmálningu.
Eitt af því mikilvægasta er að bún-
ingarnir eru barnanna frá grunni.
„Það er enginn að velta því fyrir sér
hvort eitthvað sé skakkt eða ekki í
réttum lit. Þetta er allt þeirra hug-
mynd og byggir á þeirra hugmynda-
flugi. Ef það er ekki beint, þá er það
allt í lagi. Þetta er fullkomið fyrir þau.
Það erum við fullorðna fólkið sem
erum frekar að spá í svoleiðis hluti.
Börnunum finnst þetta alltaf mjög
flott, þau eru stolt af því sem þau gera
og eiga að vera það,“ segir Candace.
„Þau gera sjálf – því þau geta það.“ n
Ljón Hér má sjá hana Guðrúnu Von Þormarsdóttur sem var ljón á öskudaginn. Búninginn gerði hún alveg sjálf. Börnin á Langasandi eru í
bakgrunni, en það var mikið fjör hjá þeim allan miðvikudaginn. Mynd ÞorMar Vignir gunnarsson
Faglega gert Hér má sjá búninga barnanna. Mynd ÞorMar Vignir gunnarssonBorgun. Haukur Oddsson er hlut-
hafi í félaginu, sem keypti á endan-
um 24,96% í Borgun af Landsbank-
anum í nóvember 2014, og félag í
eigu eiginkonu hans er skráð fyrir
öðrum hlut í fyrirtækinu sem einka-
hlutafélagið BPS, sem er í eigu tólf
æðstu stjórnenda Borgunar, eign-
aðist í sama söluferli.
Bankaráð Landsbankans fjallaði
um tilboðið í apríl 2014 eða tveim-
ur vikum eftir að starfsmenn Lands-
bankans höfðu fundað með fjár-
festahópnum. Ráðið ræddi söluna
á hlutnum í Borgun aftur í júní
sama ár. Mánuði síðar gerði hópur-
inn tilboð í hlut Landsbankans ein-
göngu en hann hafði áður einnig
gert tilboð í 62,2% hlut Íslands-
banka í Borgun. Tilboðið nam 2.184
milljónum króna og í lok júlí 2014
var undirrituð viljayfirlýsing milli
Landsbankans og fjárfestahóps-
ins um samningaviðræður. Þá ósk-
uðu tilboðsgjafar og Landsbankinn
sameiginlega eftir því við Borgun að
stjórnendur félagsins kynntu félag-
ið fyrir þeim í því skyni að gera þeim
kleift að taka afstöðu til verðmætis
hlutafjár Borgunar. Þær kynningar,
sem helstu stjórnendur Borgun-
ar stóðu fyrir, fóru fram þann 22.
og 26. ágúst 2014. Í október kynnti
Steinþór fyrirhugaða sölu á hlut
bankans í Borgun á fundi banka-
ráðsins. Engar athugasemdir voru
þar gerðar við að haldið yrði áfram
með söluna en kauptilboðið var
síðan samþykkt af Landsbankanum
í lok október með fyrirvara um sam-
þykki ráðsins. Það fékkst 6. nóvem-
ber 2014.
Harðlega gagnrýndir
Salan var gerð opinber með frétta-
tilkynningu Landsbankans þann
25. nóvember 2014. Eignarhaldsfé-
lagið Borgun, sem er meðal annars í
eigu Stálskipa og fjárfestisins Einars
Sveinssonar, föðurbróður Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og efna-
hagsráðherra, hafði þá greitt 1.751
milljón króna fyrir rétt tæp 25% í
fyrirtækinu og BPS 433 milljón-
ir fyrir 6,2%. Tveimur dögum síð-
ar greindi vefmiðillinn Kjarninn frá
hluta fjárfestahópsins og að kaup-
in hefðu farið fram á bak við lukt-
ar dyr. Stjórnendur bankans, sem
íslenska ríkið á 98% í, voru í kjöl-
farið harðlega gagnrýndir fyrir að
hafa ekki boðið eignina út í opnu
og gegnsæju söluferli. Um það leyti
buðu æðstu stjórnendur Borgunar
öllu sínu starfsfólki að kaupa hluta
af eign BPS í fyrirtækinu. Á endan-
um ákváðu 33 að taka boðinu og á
aðalfundi Borgunar í febrúar 2015
var ákveðið að greiða 800 milljónir
króna í arð til hluthafa félagsins.
Tryggvi Pálsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, sagði
í ræðu á aðalfundi fyrirtækisins
þann 18. mars 2015, að Lands-
bankinn hefði betur selt hluti sína
í Borgun og samkeppnisaðilan-
um Valitor í opnu söluferli „forms-
ins og ásýndarinnar vegna“. Bank-
anum hefði verið vandi á höndum
við söluna þar sem aðkoma hans að
fyrirtækjunum tveimur hefði verið
takmörkuð og helstu keppinautar
hans eigendur þeirra.
„Bankinn gat ekki tryggt að upp-
lýsingagjöf til hugsanlegra kaup-
enda yrði nægjanleg og taldi því
óhjákvæmilegt að selja hlutina
til aðila sem höfðu mikla innsýn
í starfsemi fyrirtækjanna,“ sagði
Tryggvi í ræðunni.
Milljarðagreiðslan
Borgun mun eins og komið hef-
ur fram fá um 6,5 milljarða króna
auk afkomutengdrar greiðslu árið
2020 vegna yfirtöku Visa Inc. á Visa
Europe. Ástæðan er hlutdeild Borg-
unar í valréttarsamningi á milli
Visa Inc og Visa Europe sem tryggir
félaginu rétt til greiðslna vegna
sölunnar á síðarnefnda fyrirtækinu.
Stjórnendum og eigendum Borg-
unar var tilkynnt um upphæðirnar
sem um ræðir þann 21. desember
síðastliðinn. Stjórn Borgunar hafði
tveimur mánuðum áður fengið
KPMG til að verðmeta fyrirtækið og
var niðurstaðan 19 til 26 milljarðar
króna. Hluturinn sem Landsbank-
inn seldi í nóvember 2014 hafði þá
rúmlega þrefaldast að virði. Eins og
áður segir tók virðismat KPMG ekki
tillit til milljarðanna sem koma til
með að renna til Borgunar vegna
Visa Europe.
Borgun greindi frá upphæð val-
réttargreiðslnanna í yfirlýsingu síð-
asta þriðjudag. Landsbankinn hafði
þá beint spurningum til fyrirtækis-
ins í kjölfar þeirrar miklu gagnrýni
sem upp kom eftir að í ljós kom að
Borgun ætti von á greiðslum vegna
Visa Europe og að Landsbankinn
hefði ekki gert neina fyrirvara um
hlutdeild. Í svari Borgunar segir að
fyrirtækið hafi aldrei haft ástæðu
til að ætla að Landsbankinn væri
grandalaus um valréttarsamn-
inginn enda hafi bankaráðið rætt
hann á fundi sínum 7. mars 2013.
Landsbankinn hefur ítrekað full-
yrt að stjórnendur fyrirtækisins hafi
enga vitneskju haft um að Borg-
un ætti rétt til greiðslna vegna Visa
Europe. Bankaráðið hafnar alfarið
ásökunum um að það eða starfs-
menn Landsbankans hafi unnið
að sölunni í Borgun af óheilind-
um. Þess vegna hafi bankinn birt
ítarlegar upplýsingar um söluferl-
ið þar enda hafi hann ekkert að
fela. Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, hefur sagt að bank-
inn muni leita réttar síns komi í ljós
að stjórnendur Borgunar hafi búið
yfir vitneskju um að kortafyrirtækið
ætti rétt á greiðslum vegna valrétt-
arins. n
„Ekki haldið
neinu sambandi“
DV óskaði eftir viðtali
við Steinþór Pálsson,
bankastjóra Lands-
bankans, en fékk þau
svör að hann væri
upptekinn í allan gær-
dag, fimmtudag, við að
svara bréfi Bankasýslu
ríkisins, sem fer með
eignarhluti ríkisins í
fjármálafyrirtækjum.
Ekki náðist í Tryggva
Pálsson, formann
bankaráðs Landsbankans, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Haukur Oddsson, forstjóri
Borgunar, segir í samtali við DV það af og frá að samstarf hans, Steinþórs og Tryggva hafi
haft áhrif á söluferli greiðslukortafyrirtækisins.
„Ég hef ekki haft nein samskipti við þá Steinþór og Tryggva, hvorki fyrir, á meðan né
eftir söluna á Borgun. Þegar Steinþór hringdi í mig í síðustu viku voru það okkar fyrstu
samskipti í 16-20 ár, eða síðan þeir Tryggvi hættu hjá Íslandsbanka hinum eldri. Við
höfum því ekki haldið neinu sambandi,“ segir Haukur.„Bankinn gat ekki
tryggt að upplýs-
ingagjöf til hugsanlegra
kaupenda yrði nægjanleg
og taldi því óhjákvæmi-
legt að selja hlutina til
aðila sem höfðu mikla
innsýn í starfsemi fyrir-
tækjanna.
steinþór
Pálsson
Tryggvi
Pálsson
Haukur
oddsson