Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Qupperneq 13
Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
hundafóður
80% kjöt
20% jurtir,
grænmeti og ávextir
0% kornmeti
Nýjar
vörur
Streyma iNN
Sjáðu úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir
38-54
Fréttir Erlent 13
„Við drepum þá samt“
hringinn n Veiðiþjófum er engin miskunn sýnd í Kenía
sem eltast við nashyrninga, eða
bjóða þeim að leggja niður vopn-
in, skjóta þeir þá einfaldlega. Fram
kemur á BBC að í fæstum tilvik-
um viti veiðiþjófarnir hvaðan á þá
stendur veðrið, en 19 veiðiþjófar
hafa eins og áður segir fallið. Haft
er eftir Dyer að þetta sé öruggasta
leiðin til að eiga við veiðiþjófana,
sem annars yrðu dæmdir í 25 ára
fangelsi. „Tæknilega séð eigum við
að bjóða þeim að gefast upp, en
það gerist yfirleitt ekki fyrr en þeir
eru orðnir óvígir.“
Hver á að vernda þá?
Eftir miklu er að slægjast. Fyrir níu
kílóa horn fær veiðiþjófur 2,1 millj-
ón króna. Í Hanoi í Víetnam er
götuverðið 57 milljónir króna. Þeir
hafa því ekki gefist upp þrátt fyrir
að í fyrra hafi enginn nashyrning-
ur í Lewa verið felldur. Í Borana var
einn skotinn, í júlí.
Blaðamaður spyr hvort það
sé siðferðilega verjandi að skjóta
veiðiþjófa til bana – og hvort það sé
löglegt. Dyer gefur lítið fyrir spurn-
inguna. „Nashyrningarnir hafa
verið á þessari jörð í fimm milljónir
ára. Hver á að vernda þá, ef ekki
við?“
Blaðamaður segir að samfélagið
virðist taka undir með Dyer. „Veiði-
þjófar eru vondar manneskjur,“
hefur hann eftir fjárhirði. „Við sjáum
þá stundum í bænum. Fátækir menn
sem verða skyndilega ríkir. Þeir fá
ekki að eyða peningunum sínum hér
heldur eru flæmdir á brott.“
Veiðiþjófarnir hopa
Sums staðar í heiminum, svo sem
í Asíu, trúir fólk því – þvert á stað-
reyndir - að efnið í hornunum hafi
lækningamátt. Það geti læknað allt
frá þynnku til krabbameins. Það að
eiga nashyrningshorn er auk þess
nokkurs konar stöðutákn. Skot-
ið sem felldi nashyrninginn í júlí
situr enn í sveitinni. „Við heyrðum
skotið,“ segir liðþjálfinn. „En við
vissum ekki hvaðan það kom. Þegar
við fundum hræið voru þeir horfn-
ir á braut.“ Hann segir þó að ekki sé
víst að fleiri skotum verði hleypt af
í átt að nashyrningum á svæðinu.
„Veiðiþjófarnir eru farnir að læra.
Núna eru þeir farnir að nota boga
og eitraðar örvar.“ Blaðamaður spyr
hvort það þýði að auðveldara sé að
handtaka veiðiþjófana. Liðþjálfinn
hristir höfuðið. „Við drepum þá
samt.“ n
„Ef hann er hér til
að drepa nas
hyrning er hann að ræna
samfélagið. Og þá skýt
ég hann til bana.
Hart mætir hörðu Heimamenn hafa sagt veiðiþjófum stríð á hendur og skjóta þá
miskunnarlaust, ef þeir eltast við nashyrninga. Það er kostnaðarsamt en ber sýnilegan
árangur. Mynd EPA