Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2016, Page 40
36 Menning Helgarblað 12.–15. febrúar 2016
Uppvakningur
í óbyggðum
F
lestir vestrar gerast
undir lok 19. aldar,
þegar sexhleypur
héngu við mjaðmir
og bæir með álitlegum
börum, bönkum og gleði-
húsum voru á hverju strái.
Því er gaman að fá einu sinni mynd
sem gerist um hálfri öld fyrr, þegar
vestrið var raunverulega villt, frum-
byggjar áttu stundum í fullu tré við að-
komumenn og náttúran sjálf gat verið
skeinuhættur óvinur.
Leikstjórinn Alejandro G. Inárritu
er á miklu flugi eftir að hafa unnið
Óskarinn í fyrra fyrir Birdman. Hér
heldur hann út í óbyggðir með allan
mannskapinn, neitar að notast við
tölvutækni og voru víst margir sem
gáfust upp á volkinu. Harkið skilar sér
að mestu, landslagið er stórbrotið að
sjá, bjarnarárásin líklega sú besta sem
hefur verið fest á filmu og byrjunar-
orrustan ein sú magnaðasta síðan
Saving Private Ryan.
En eins og með þá mynd tekst ekki
fyllilega að byggja á frábærri byrjun.
Tom Hardy er orðinn eftirlætis
siðblindingi Hollywood, en
hefndin er eitt þreyttasta
þema kvikmyndanna og
þótt það sé ágætlega útfært
bætir það litlu við. Myndin
er því meira fyrir augað en
hugann. Einnig eru óþarfa
villur, svo sem að skotið sé
oft úr púður byssu án þess
að hlaða hana. Maður býst
eigin lega við meiru þegar
svo miklu er tjaldað til. Jafnframt er
atriði sem minnir mjög á Hross í oss, þó
vafalaust sé það tilviljun.
Inárritu á ekki endilega skilið að
vinna Óskarinn tvö ár í röð, þótt lík-
lega sé kominn tími á DiCaprio. En
þrátt fyrir stöku galla er þetta ein besta
tilraunin til að lífga vestraformið við
síðan Dead Man. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
The Revenant
IMDb 8,2 RottenTomatoes 82% Metacritic 76
Leikstjórn: Alejandro G. Inárritu.
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio,
Tom Hardy og Domhnall Gleason.
Byggð á bók eftir Michael Punke.
156 mínútur
Volk og háski Leonardo
DiCaprio kemst í hann
krappan í þessum nýstár-
lega vestra.
Sköpum okkar eigið samfélag
Listakonurnar Martyna Daniel og Emma Sanderson reka Listastofuna, nýtt menningarrými í JL-húsinu
Á
milli ísbúðar og hárgreiðslu-
stofu í JL-húsinu við Hring-
braut stendur Listastofan,
sjálfstætt listamannarekið
sýningar- og vinnurými.
Listastofan er hugarfóstur tveggja
erlendra listakvenna sem búsettar
eru á Íslandi, þær áttu erfitt með að
finna leiðir inn í íslenska listasenu
og ákváðu því að taka málin í eigin
hendur og skapa sjálfar sinn vett-
vang. Frá því að rýmið var opnað í
október hafa verið haldnar listsýn-
ingar, tónleikar, námskeið og vinnu-
stofur.
Opið fyrir alla
Hugmyndin að Listastofunni
fæddist síðastliðið sumar hjá
listakonunum Martynu Daniel
og Emmu Sanderson. Emma er
grafískur hönnuður og vídeólista-
kona frá Ástralíu sem kom upp-
haflega til Íslands í vinnustofu-
dvöl á vegum Sambands íslenskra
listamanna og ákvað að flytjast til
landsins í kjölfarið. Martyna er ljós-
myndari og kvikmyndagerðarkona
frá Sviss sem kynntist íslenskum
manni sínum í námi og flutti til Ís-
lands að námi loknu.
„Okkur langaði að búa til rými
þar sem við gætum skipulagt þá
viðburði sem við vildum sjá, og
þróa menningarlífið í borginni
áfram. Fyrst þegar ég fluttist hingað
fannst mér magnað hvað tónlistar-
senan var virk, það voru alls kon-
ar tónleikar úti um allt. Aftur á
móti fannst mér vanta upp á þetta í
öðrum listgreinum,“ segir Martyna.
„Kannski er það bara tungumálið
sem er hindrunin, en listasenan
virðist ekkert sérstaklega aðgengileg
fyrir utanaðkomandi,“ skýtur Emma
inn í.
Þær segja erfitt fyrir aðflutta
listamenn sem eru hvorki nafn-
kunnir né hluti af félagsskap lista-
háskólans að fá aðgang að rýmum,
stofnunum og samfélagi listaheims-
ins. „Við vildum því hafa þetta rými
opið fyrir alla, líka áhugalistamenn,“
segir Martyna
„Þar sem erfitt var fyrir okk-
ur að komast inn í listasamfélagið
ákváðum við að skapa okkar eigið
samfélag og bjóða öðrum að koma
inn í það,“ segir Emma.
Vertu ungur og haltu kjafti
Hinu nýja listasamfélagi í Vestur-
bænum hefur verið vel tekið og
margir mætt á viðburði og nám-
skeið. Auk listsýninga og tónleika
hefur verið boðið upp á vikulega
módelteikningu, alþjóðlega prjóna-
tíma á íslensku og upplestrarkvöld
þar sem skúffuskáld jafnt sem
lengra komnir höfundar lesa upp úr
verkum sínum.
Samfélagið sem er að verða til
í Listastofunni er alþjóðlegt, en
um helmingur listamannanna
sem starfa í rýminu er erlendur.
Nemendur úr Myndlistarskóla
Reykjavíkur, sem staðsettur er í sama
húsi, hafa þá tekið Listastofunni
fagnandi og nokkrir þeirra leigt
rýmið undir sýningar. Þær segja
áhugann vera mikinn og forvitnir
Vesturbæingar kíki ósjaldan inn
þegar þeir eru á leið í bakaríið eða
apótekið.
Slagorð Listastofunnar, sem fest er
í letur á skilti fyrir ofan innganginn,
er gamalt slagorð „Situation istanna“
úr mótmælunum í París 1968: „Be
young and shut up“, eða „Vertu
ungur og haltu kjafti“, sem þær segja
vera eins konar mani festó rýmisins.
„Þetta snýst um að fólk eigi að vera
óhrætt við að framkvæma, að gera
hluti án þess að ritskoða sig,“ segir
Emma. „En þetta snýst ekki um ald-
ur, heldur viðhorf,“ segir Martyna og
bendir á að margir af elstu notendum
rýmisins séu yngstir í anda.
Martyna og Emma stefna á að
gera rýmið sjálfbært og vonast til
þess að þær geti náð að lifa af rekstri
þess, á sama tíma og þær auðgi sam-
félagið í kringum sig. Þær hafa ekki
sóst eftir styrkjum en rukka fyrir
þátttöku í námskeiðum og vinnu-
stofum, notkun á myrkraherbergi,
auk þess sem þær leigja rýmið út
undir sýningar og önnur tilefni.
Næsta sýning í Listastofunni er
Wheel of senses, eftir listahópinn Art
Gamers, sem verður opnuð í kvöld,
föstudag 12. febrúar, og stendur í
tvær vikur. n
Martyna og
Emma Starf-
rækja lista- og
sýningarrýmið
Listastofuna við
Hringbraut.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Þar sem erfitt
var fyrir okkur að
komast inn í listasam-
félagið ákváðum við að
skapa okkar eigið sam-
félag og bjóða öðrum að
koma inn í það.
MynD ÞORMAR VIGnIR GunnARSSOn