Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 28
Umræða um niðurstöður mælingar á mengandi efnum frá verksmiðju Uni­ ted Silicon í Helguvík hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarna viku og þá einkum um hversu áreiðanlegar slíkar mælingar séu. Orkurannsóknir ehf. sem ábyrgðar­ aðili þessara mælinga hefur dregist inn í þá umræðu og fengið gagn­ rýni fyrir að benda á hugsanlega skekkju í niðurstöðum greininga á þungmálmum. Umfang mælinga Orkurannsóknir ehf. hafa annast umhverfismælingar í Helguvík samkvæmt samkomulagi við United Silicon. Orkurannsóknir eru óháður rannsóknaraðili sem starfar innan Keilis. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 og er samþykkt af Umhverfisstofnun en kostn­ aður við þetta tiltekna verkefni er greiddur af United Silicon. Haustið 2015 voru tekin bak­ grunnssýni af mosa, öðrum gróðri, jarðvegi og ferskvatni og í byrjun árs 2016 voru settar upp þrjár mælistöðvar í nágrenni verk­ smiðjunnar þar sem fram fara sí­ mælingar á lofttegundum og ryki. Á tveimur mælistöðvunum er einnig safnað ryk­ og úrkomusýnum. Vottað mæliferli Mælibúnaður er vottaður sam­ kvæmt alþjóðlegum stöðlum. Brennisteinsdíoxíð, köfnunar­ efnisoxíð og örfínt ryk er mælt með sjálfvirkum mælibúnaði á 10 mín­ útna fresti og eru niðurstöður birt­ ar í rauntíma á vefsíðunni www. andvari.is. Ryksöfnun fer fram með því að draga loft í gegnum síu og er safnað samfellt í sex daga í einu allt árið. Allir verkferlar eru skilgreindir samkvæmt gæðakerfi Orkurann­ sókna og rekjanleiki tryggður með skráningum á öllum stigum. Sýni eru send til rannsóknarstofu ALS í Svíþjóð sem fylgir vottuðum mæli­ aðferðum samkvæmt ISO 9001. Mælingar þungmálma Mælingar á þungmálmum í ryki frá Helguvík hófust í mars 2016 og hafa sýni verið greind mánaðarlega. Fyrsti hluti var frá mars til septem­ ber 2016, annar frá október til des­ ember 2016 og sá þriðji frá janúar til mars 2017. Á línuritinu er sýnd niðurstaða þessara mælinga. Í öðrum áfanga mældust gildin fyrir flesta málma um fimmfalt hærri heldur en í fyrsta og þriðja áfanga. Ljóst var að niðurstöður annars áfanga stóðust ekki skoðun um áreiðanleika. Verksmiðjan var ekki gangsett fyrr en um miðjan nóvember 2016 auk þess sem suðlægar áttir voru ríkjandi allt þetta tímabil og vindur því frá mælistöð til verksmiðju. Saman­ burður á styrk þungmálma í ryki frá mælistöðvum annars vegar og ryki úr útblæstri kísilverk­ smiðjunnar sýndu allt að 27­falt hærri styrk á arseni í ryki. Undir venjulegum kringstæðum hefðu þessi gildi einfaldlega verið tekin til hliðar þar til frekari mælingar lágu fyrir sem staðfestu eða úti­ lokuðu þau. Aðstæður kröfðust hins vegar skjótra viðbragða og því var tekin ákvörðun um að tilkynna Umhverfisstofnun að um hugsan­ lega skekkju væri að ræða. Hvernig er hægt að fyrirbyggja rangar niðurstöður? Það er ekkert til sem heitir „rétt“ niðurstaða í mælingum. Með endurteknum mælingum er reynt að komast sem næst því. Við mat á niðurstöðum eru núllpunkts­ skekkja, kerfisbundin mæliskekkja, mælióvissa og staðalfrávik lykil­ atriði. Orkurannsóknir fylgja viður­ kenndum ferlum við mælitækni. Þegar hlutir fara úrskeiðis skipta viðbrögðin mestu máli og því verð­ ur gripið til eftirfarandi aðgerða: l Rannsóknarstofa ALS, sem annast greiningar, hefur að beiðni Orku­ rannsókna hafið rannsókn vegna umræddrar mælingar. l Samanburðarsýni fyrir ryk verða send til annarra rannsóknarstofa. l Verkferlar Orkurannsóknar verða yfirfarnir og skráningar auknar. Samantekt Í vinnslu er ársskýrsla fyrir umhverf­ ismælingar í Helguvík fyrir árið 2016. Hún mun lýsa öllum þáttum mælinga sem farið hafa fram, þar á meðal mælingum á jarðvegs­, gróð­ ur­ og vatnssýnum sem tekin voru haustið 2015. Gerð verður grein fyrir símælingum á lofttegundum og ryki sem hófust í janúar 2016 og samanburður á gildum fyrir og eftir gangsetningu verksmiðjunnar í nóvember 2016. Þessi skýrsla mun varpa skýrara ljósi á mælanleg áhrif kísilverk­ smiðju United Silicon á nánasta umhverfi. Umhverfisstofnun hefur falið Orkurannsóknum ehf. að annast skýrslugerðina sem sýnir að fyrirtækið nýtur trausts hjá stofnun­ inni. Umhverfismælingar í Helguvík – mikilvægi óháðs mælingaaðila ✿ Þungmálmar í ryki Egill Þórir Einarsson lektor / yfirmaður rann- sóknarstofu Það er ekkert til sem heitir „rétt“ niðurstaða í mæl- ingum. Með endurteknum mælingum er reynt að komast sem næst því. 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð I ð 365.is Sími 1817 iPhone 7 Jet Black 99.990 kr. stgr Fullt verð: 134.990 kr. Það borgar sig að vera hjá 365 Á FRÁBÆRU VERÐI TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI GLÆSILEGUR KAUPAUKI AÐ VERÐMÆTI 15.000 KR. - Mánaðaráskrift af Fjölvarpi Veröld - Inngöngutilboð í GSM áskrift hjá 365 - Tvö nýjustu tímaritin Tilboðið gildir bæði í Skaftahlíð og Kringlunni. Minnum á miðnæturopnun í Kringlunni, 6. apríl. 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 E -5 F 5 8 1 C 9 E -5 E 1 C 1 C 9 E -5 C E 0 1 C 9 E -5 B A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.