Fréttablaðið - 06.04.2017, Page 58

Fréttablaðið - 06.04.2017, Page 58
KviKmyndir Ghost in the Shell HHHHH Leikstjóri: rupert Sanders Framleiðendur: Steven Paul, Avi Arad Handrit: Jamie Moss, William Wheeler Kvikmyndataka: Jess Hall Aðalhlutverk: Scarlett Johansson, Pilou Asbæk, Takeshi Kitano Unnendur japanskra manga-mynda- sagna og „anime“ þekkja flestir til fyrirbærisins Ghost in the Shell, sem getið hefur af sér fjölmarga þætti, bækur og nokkrar bíómyndir. Upp- runalega bíómyndin frá 1995 var ein dýrasta teiknimynd síns tíma og sóp- aði til sín lofi fyrir sínar margbrotnu hugmyndir og ekki síður þrælflottan teiknistíl. Skemmst er frá því að segja að Hollywood-útgáfan, sem er lausleg endurgerð á '95 myndinni, er strípuð af megni innihaldsins og einkennum þessara sagna og er matreidd sem fátt meira en dýr og tilkomumikill stíl- grautur. Ef sami metnaður og fylgir útlitinu hefði verið lagður í handritið, væri útkoman hágæðamynd umhugs- unarlaust, því útlitið er algjörlega meiriháttar. Scarlett Johansson hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir að vera af röngu þjóðerni fyrir aðalhlutverkið, en í myndinni er gerð að minnsta kosti tilraun til þess að svara þeirri umræðu, þrátt fyrir að hún virki svo- lítið hálfbökuð. Johansson er hins vegar – ótengt þjóðerninu – hvorki góð né slæm í hlutverkinu, fyrir utan það að vera í hörkuformi og hörð í hasarsenum. Annars er það svo sem í eðli persónunnar að vera stíf og svipbrigðalaus, í ljósi þess að hún er nánast meiri vél en manneskja. Það skrifast líka á leikstjórnina og hand- ritið hvað karakterinn nær litlu sam- bandi við áhorfandann. Leikhópurinn er almennt fjöl- breyttur og fínn, þó gjarnan hefði mátt gera miklu meira við flesta. Franska leikkonan Juliette Binoche setur nauðsynlegan mannúðleika í blönduna, danski leikarinn Pilou Asbæk er þokkaleg viðbót sem sér- sveitarlöggan Batou og japanski snill- ingurinn Takeshi Kitano fær nokkur tækifæri til þess að sýna hversu mikill töffari hann getur verið, þrátt fyrir að hann líti varla út fyrir að nenna þessu. En að skrautinu aftur, peningurinn sem hefur farið í framleiðsluna sést svo sannarlega á skjánum. Þetta er önnur mynd leikstjórans Ruperts Sanders og sást það síðast hversu gott auga hann hefur í hinni bragð- lausu Snow White and the Hunts- man. Heimurinn í Ghost in the Shell er allavega vel uppstilltur; stórborgin grípandi, litrík og lifandi. Brellur eru til fyrirmyndar og leik- stjórinn tvinnar glæsilega saman þetta svokallaða „cyber-punk“ andrúmsloft með úthugsaðri kvik- myndatöku (sem afritar fullt af römmum beint frá upprunalegu teiknimyndinni) og dýnamískri tónlist frá fagfólkinu Clint Mansell og Lorne Balfe. Það er auðvelt að sjá að hér er efni- viður sem hefur verið margunninn áður. Strax má sjá að myndin kemur út eins og útþynnt blanda af Blade Runner og The Matrix (þó svo að sú mynd hafi sótt heilmikinn innblást- ur í upprunalegu Ghost in the Shell teiknimyndina). Það sem aðskilur annars vegar góða, langlífa „sci-fi“ spennusögu frá tómri hasarveislu er einfaldlega framsetning á þessum þemum sem fylgja sögum um vél- menni sem velta fyrir sér mannlega þættinum eða eðli sálarinnar. Í Ghost in the Shell endurgerðinni hafa aðstandendur aðeins dýft tánni í þunna speki sem er líkari predikun heldur en marglaga krufningu á athyglisverðum hugmyndum. Það hefði líka munað miklu ef sögu- þráðurinn væri aðeins hnitmiðaðri og breiðari. Hann trekkir upp litla spennu og allar tilraunir til þess að gefa sögunni einhverja sál og per- sónum dýpt skilar litlum árangri. Til lengdar verður ómögulegt að standa ekki á sama um fólkið - vélrænt eða ekki - þegar „kúlið“ er það helsta sem skiptir máli. Með væntingar í lágmarki er þó ágæt afþreying í þessu og erfitt er að finna flottara þrívíddarbíó um þessar mundir. Að minnsta kosti má alltaf leita til teiknimyndarinnar ef viðkomandi er í leit að einhverju bitastæðara. Tómas Valgeirsson niðurStaða: Útlitslega er myndin svo flott að hún er næstum því aðgangseyrisins virði fyrir það eitt. Verst er að efniviðurinn býður upp á svo margt meira en bara stílíseraða hasarmynd. Þunn vofa í glæsilegum hjúp Ghost in the Shell fær þrjár stjörnur af fimm. NORDICPHOTOS/AFP Scarlett Johansson er hvorki góð né slæm í hlutverki sínu í Ghost in the Shell. NORDICPHOTOS/AFP Í apríl mánuði renna 100 krónur af hverri seldri dós til stuðnings Bláa naglans Curcumin „Gullkryddið“ er margfalt áhrifameira en Túrmerik! HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ CURCUMIN? Gullkryddið sem hefur reynst þúsundum Íslendinga vel. Bætiefnin innihalda hvorki rotvarnarefni né fylliefni og eru án allra aukaefna. „Ég mæli tvímæla- laust með vörunum frá Natural Health Labs.“ Helga Lind – Pilateskennari og einkaþjálfari Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórverslana. www.balsam.is Fæst í FK og Hagkaup Frábært bragð JÓLAGJÖFIN í ár? við kynnum arc-tic Retro með keðju Fyrir DÖMUR og HERRA VERÐ AÐEINS: 34.900,- VERÐ FRá: 29.900,- FERMINGARGJÖFIN í ár? arc-tic Retro 6 . a p r í L 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r42 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -2 D F 8 1 C 9 E -2 C B C 1 C 9 E -2 B 8 0 1 C 9 E -2 A 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.