Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 66

Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 66
Júlí 2015 – White iver­ son skekur heiminn Það eru einungis tæp tvö ár síðan Post Malone, þá algjörlega óþekktur, setti myndband við lag sitt White Iverson á YouTube þar sem það halaði inn áhorfum og er með yfir 250 milljón spilanir í dag. Ágúst 2015 – Fær plötu­ samning eFtir 10 mín­ útur Aðein mánuði eftir að Post Malone vakti athygli fyrir White Iverson var plötusamningur við Republic Re- cords kominn í hús hjá drengnum. Republic Records er með slatta af stórum nöfnum á sínum snærum, en fyrirtækið er undirdeild Uni- versal. mars 2016 – Blessaður aF konungi poppsins Í mars 2016 tilkynnti popp- goðið Justin Bieber að Post Malone myndi ferðast með sér á Norður-Ameríkulegg Purpose-tón- leikaferðalagsins. Justin og Post Malone eru víst góðir vinir, en Bieber er árinu eldri en Post Malone. Það sem var kannski helst að frétta af þessu ferðalagi var ljósmynd þar sem Post Malone virtist vera að kyrkja Justin en um fífla- gang var víst að ræða. hratt ris hins hvíta iverson Hinn 21 árs gamli Post Malone ætlar að spila á Íslandi í sumar. Ferill hans hefur ekki verið ýkja langur en þó hefur hann verið ákaflega stormasamur og leið hans á toppinn á popp- fjallinu var ekki löng. Hér verður stiklað á stóru í gegnum tónlistarferil Post Malone. Post Malone skipti næstum yfir í rokkið enda lærði hann að spila á gítar í tölvuleiknum Guitar Hero. NORDICPHOTOS/AFP Poppkóngurinn Justin Bieber er góðvinur og lærifaðir Post Malone. NORDICPHOTOS/GETTY maí 2016 – loFað upp í ermina Mixteipið August 26th kom út í maí í fyrra – titill þess vísaði til útgáfu- dags fyrstu plötu Post Malone sem átti að koma út, nema hvað, 26. ágúst. Júní 2016 – Fyrsta sinn í sJónvarpi Post Malone kom fyrst fram í sjón- varpi sumarið 2016 þar sem hann flutti smellinn sinn Go Flex í þætti Jimmys Kimmel. Júní 2016 – misskilning­ urinn mikli Í sama mánuði var það gefið í skyn að Post Malone ætti að vera í Fresh- men-hefti rapptímaritsins XXL, en það þykir talsverður gæðastimpill. Blaðið gefur árlega út svokallaðan Freshmen-lista yfir þá ungu rappara sem talið er að muni verða næstu stórstjörnur rappheimsins. Hins- vegar varð ekkert úr því að Post Malone prýddi forsíðu þessa ágæta tímarits en það var vegna einhvers misskilnings á milli ritstjórnar XXL og útgáfufyrirtækis Post Malone sem hafði gefið það út að Post Malone ætlaði að setja hiphop-tónlist á hilluna og fókusera á einhvers konar rokk/poppferil frekar. Post Malone neitaði þessu og sagði að Sto- ney, væntanleg breiðskífa hans, yrði rappplata. Ágúst 2016 – hvar er stoney? 26. ágúst rennur upp en hvergi bólar á Stoney. Degi síðar biðst Post Malone afsökunar á töfinni og lofar því að platan komi út bráðlega. DesemBer 2016 – stoney kemur út Þremur mánuðum síðar rennur dagurinn loksins upp og Stoney lendir í hillum plötuverslana. mars 2017 – Congratula­ tions Fær platínu­ plötu Smellurinn af Stoney, Congra- tulations, fær platínu- plötu í mars. Í laginu eru engir aukvisar með Post Malone en gestur er Quavo úr hljómsveitinni Migos og á tökkunum er Metro Boomin, súper-pródú- serinn sem hefur til að mynda gert smelli með Drake, Future og fleirum. Júlí 2017 – post malone spilar í hörpunni Í sumar kemur svo vafalaust lang- stærsta augnablikið á ferli Post Malone þegar hann stígur inn í sjálfa Hörpu okkar Íslendinga og telur í White Iverson fyrir æsta aðdáendur. stefanthor@frettabladid.is post malone er FæDDur Árið 1995, einu Ári Á eFtir Justin BieBer. post malone skýst upp Á stJörnuhimin­ inn Árið 2015. lagið Congratu­ lations nÁði platínu­ sölu í mars 2017. Metro Boomin er meðal þeirra pródúsenta sem hafa varðað veg Post Malone á topp poppísjakans. NOR- DICPHOTOS/ GETTY Quavo kom fram í smellinum Congra- tulations sem hlaut platínuplötu í síðasta mánuði. NORDICPHOTOS/AFP Nýjasta kvikmynd Shia LaBeouf fór í sýningar í Bretlandi um helgina. Myndin ber heitið Man Down og er stríðsmynd sem fjallar um fótgöngu- liða sem snýr aftur frá Afganistan og þarf að leita að syni sínum við heim- komuna. Þetta væri nú ekki í frásögur fær- andi ef það væri ekki fyrir þá stað- reynd að samkvæmt ComScore, fyrirtæki sem mælir meðal annars aðsóknartölur, þá rakaði myndin inn heilum sjö pundum – jafngildi eins aðgöngumiða. Reyndar var myndin einungis sýnd á einum stað í öllu Bretlandi – en það var í kvikmyndmyndahúsinu Reel Cinema í Burnley á Englandi. Þannig að myndinni var ekki dreift neitt sérstaklega víða. Myndin var sýnd í takmörkuðum fjölda kvikmyndahúsa í Bandaríkj- unum í desember í fyrra en engum sögum fer um hversu margir miðar seldust þar – en það má reikna með að þeir hafi verið aðeins fleiri en einn. Man Down fær einkunnina 5,9 á kvikmyndavefnum IMDb, sem er ekkert sérstök einkunn, en á Rotten Tomatoes fær hún einungis 15% og er þar með dæmd rotin. Dito Montiel er leikstjóri mynd- arinnar en hann hefur ekki komið nálægt neitt sérstaklega þekktum myndum – hans þekktasta mynd er A Guide to Recognizing Your Saints með Robert Downey Jr., Rosario Dawson og Shia LaBeuf í aðalhlut- verkum. – sþh shia laBeouf seldi einn heilan miða í Bretlandi Shia LaBeouf seldi ekki marga miða í Bretlandi um helgina. NORDICPHOTOS/AFP shia selDi miða Fyrir heil 7 punD í Bret­ lanDi um helgina. 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r50 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -3 C C 8 1 C 9 E -3 B 8 C 1 C 9 E -3 A 5 0 1 C 9 E -3 9 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.