Fréttablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 68
Undanfarnar fjórar vikur hafa vinnufélagar hjá Novomatic Lottery Sol-utions í Kópavogi nýtt hádegishléin til þess
að spila borðspilið Mega Civ. Spilið
hefur haft talsverð áhrif á andann á
vinnustaðnum.
„Reglan er sú að við förum
snemma í mat, setjumst yfir spilið,
stillum vekjaraklukku og spilum þar
til hún hringir. Þá standa allir upp
og fara aftur að vinna,“ segir Rúnar
Þór Þórarinsson.
Mega Civ kom út árið 2015 og
byggir á grunni Civilization-spila,
sem síðar urðu að tölvuleikjum,
nema spilið er allt miklu miklu
stærra. Spilið er fyrir fimm til átján
leikmenn og er gert ráð fyrir því
að hvert spil taki minnst um tólf
klukkustundir. Pantað að utan
Allir á tánum vegna risaborðspils
Hópurinn hittist síðastliðið sunnudagskvöld til að ljúka spilinu þar sem spennan var orðin óbærileg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Undanfarið hefur
hópur samstarfs
manna nýtt hádegis
hléið til að spila
borðspil sem snýst
meðal annars um að
gera bandalög og það
er lítið annað sem
kemst að.
kostar spilið um 40 þúsund krónur
komið til landsins.
„Það eru átta þjóðir sem spila
hjá okkur en síðan eru þrír vara-
menn sem hlaupa inn í spilið ef svo
óheppilega vill til að fundur hitti á
matarhléið,“ segir Rúnar Þór.
Áður en hafist var handa við að
spila þekktust ekki allir leikmenn
innbyrðis. Sumir voru svo að kalla
nýbyrjaðir að vinna hjá fyrirtækinu
og segja að leikurinn hafi verið fyrir-
taksleið til að kynnast vinnufélög-
unum.
Líkt og þeir sem hafa spilað Civil-
ization vita snýst leikurinn um að
byggja upp veldi með því að reisa
borgir og þróa þær. Maður getur
þó ekki gert það einn síns liðs því
maður verður alltaf að vera á varð-
bergi fyrir mögulegum árásum ann-
arra leikmanna sem horfa öfundar-
augum á heimsveldi þitt.
„Við höfum gert bandalög til
varnar og viðskipta og venjulega eru
slík bandalög í mesta lagi til einnar
eða tveggja umferða. Nú hafa hand-
söluð bandalög hins vegar haldist
allt spilið,“ segir Rúnar. „Í vinnunni
er maður alltaf tortrygginn. Það eru
margar hópspjallrásir í gangi fyrir
hvert og eitt bandalag og það er
mjög óþægilegt að ganga fram hjá
tölvuskjá hjá einhverjum og sjá að
hann er í hópspjalli sem þú ert ekki
í sjálfur.
Þetta hefur breytt vinnudeginum
svolítið. Öll samtöl hafa einhvern
undirliggjandi tón sem tengist
spilinu,“ segir Rúnar. „En þetta
hefur orðið til að bæta andann. Við
munum klárlega spila þetta aftur
með svipuðum hætti.“
johannoli@frettabladid.is
ÞAð eru mArgAr
hópspjAllrásir í
gAngi fyrir hvert og eitt
bAndAlAg og ÞAð er mjög
óÞægilegt Að gAngA frAm
hjá tölvuskjá hjá ein-
hverjum og sjá Að hAnn er í
hópspjAlli sem Þú ert ekki í
sjálfur.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fimm flokkum
Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að bæta íslenskt samfélag.
Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingar vott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir
einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun,
með tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt:
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík.
Dómnefnd tekur allar innsendar tillögur til skoðunar.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í apríl.
Hefur þú orðið vitni að góðverki?
Óskað er eftir tilnefningum til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins 2017
Frestur til
að senda til
nefningar
er til miðnæ
ttis í kvöld
6. apríl
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
1 HvunndagsHetjan
Einstaklingur sEm sýnt hEfur sérstaka óEigingirni Eða hugrEkki, hvort sEm Er í tEngslum við Einn atburð
Eða mEð vinnu að ákvEðnum málaflokki í lEngri tíma.
2 Frá kynslóð til kynslóðar
hér koma til grEina kEnnarar, lEiðbEinEndur, þjálfarar Eða aðrir uppfræðarar sEm skarað hafa fram úr á
EinhvErn hátt. Einnig koma til grEina félagasamtök sEm sinna börnum af sérstökum mEtnaði og alúð.
3 til atlögu gegn Fordómum
Einstaklingur Eða félagasamtök sEm hafa unnið ötullEga að því að Eyða fordómum í samfélaginu.
4 Heiðursverðlaun
Einstaklingur sEm mEð ævistarfi sínu hEfur stuðlað að bEtra samfélagi.
5 samFélagsverðlaunin
félagasamtök sEm hafa unnið framúrskarandi mannúðar- Eða náttúruvErndarstarf og lagt sitt af mörkum
til að gEra íslEnskt samfélag bEtra fyrir okkur öll. vErðlaunafé 1,2 milljónir.
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r52 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-2
9
0
8
1
C
9
E
-2
7
C
C
1
C
9
E
-2
6
9
0
1
C
9
E
-2
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K