Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 10

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Side 10
ust kollegar á Norðurlöndum með gleði þessa fundar, og ís- lenzku hjúkrunarkvennanna er stóðu að því. Mörgum árum seinna sóttum við 5 íslenzkar hjúkrunarkonur þing í Róma- borg. Leiðir skildu, en Sigríður og Valgerður Helgadóttir héldu norður á bóginn með lest. Mad- dama Sigríður var orðin þreytt, breiddi fyrir andlit og vildi fá sér hænublund. Inn vappar sænsk hjúkrunarkona, og lét auðvitað ekki Valgerði í íriði, sem láðst hafði að einangra sig. Og er hún vissi þjóðerni sam- ferðamannanna, spurði hún áköf: ,,Hur már den gamla ord- föranden?" Þá svipti Sigríður Eiríksdóttir blæjunni frá og svaraði spræk og hlæjandi: ,,Jag er den gamla ordföranden". Vegna þess hvað Sigríður hef- ur verið fyrir okkar félag og stétt, ákváðum við að gefa okk- ur sjálfum málverk af henni, og vil ég biðja Sigrúnu Magn- úsdóttur að afhjúpa verk lista- mannsins Sigurðar Sigurðs- sonar. Við erum í þakkarskuld við marga innan félags og utan, og þ. á. m. eru margir viðstaddir eiginmenn hjúkrunarkvenna, sem hafa verið fyrir okkur bíl- stjórar, iðnaðarmenn, endur- skoðendur, söngstjórar, og margt fleira, eiginkonum sín- um til aðstoðar fyrir félagið, og mesta furða að þeir skuli ekki enn hafa stofnað eigið félag. Margir félagsmenn okkar eiga líka skilið þakklæti fyrir góð og mikil störf í þágu félags- ins, en sú hjúkrunarkona, sem unnið hefur lengst að félags- málum næst Sigríði Eiríksdótt- ur, er Bjarney Samúelsdóttir. Okkur er því sérstök ánægja að gera hana að heiðursfélaga Hjúkrunarfélags Islands, á þess- um merku tímamótum, fyrir margra áratuga dygga og góða þjónustu í þágu hjúkrunarmál- anna. Eins og Sigríður Eiríks- dóttirð brautskráðist hún hj úkr- unarkona frá Kommunehospit- al, en þó 2 árum fyrr, sama ár og félagið okkar var stofnað. Hún starfaði fyrst hjá Hjúkr- unarfélagi Reykjavíkur, síðan Líkn og síðast Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur, þar til árs- ins 1964 að hún hætti störfum, þótt hún sé ennþá ávallt reiðu- búin að hlaupa undir bagga, ef þess gerist þörf. Gjaldkeri Hjúkrunarfélags íslands var hún í 23 ár til ársins 1943, og hefur ævinlega sýnt mikinn áhuga á félagsstarfinu, sótt alla fundi og fræðsluerindi nær und- antekningarlaust þessa hálfa öld, og væri æskilegast að fá sem flesta henni líka félaginu til styrktar og þjóðfélaginu til heilla. Er einhver áhugasamur reið- hj ólafélagsmaður er hér inni, vil ég leyfa mér að benda á það að Bjarney verðskuldar að vera heiðursfélagi þar líka, öðrum til fyrirmyndar, en hún hefur hjólað áratugum saman og hjól- ar enn 76 ára. Þegar ég einu sinni sagði henni, að pabbi minn væri hjólandi á sama apparat- inu, sem hann keypti árið 1930, fannst henni fátt um, hennar hjól væri svo sem eldra en það. Á síðasta félagsfundi mætti Bjarney að vanda og hafði það fram yfir flestar okkar hinna, að geta rifjað upp endurminn- ingar frá 50 ára hjúkrunarferli sínum. Við höfðum orð á því við hópinn, sem þá innritaðist í félag okkar, að gaman væri ef við gætum líka skyggnst fram í tímann og séð þennan sama hóp eftir önnur 50 ár, árið 2019, er þau hittast aftur til að halda upp á aldarafmæli félagsins og hálfrar aldar afmæli þeirra sjálfra sem hjúkrunarkvenna. Þótt miklar breytingar hafi átt sér stað í hjúkrunarmálum á liðnum 50 árum, varðandi líf og starf hjúkrunarkvenna, er þó sennilegt að þær verði stór- um meiri á komandi tímum. Við horfum glöð og þakklát um öxl yfir lönd góðra minn- inga og vonglöð og hugrökk til framtíðarinnar. Þökkum góða samfylgd og samstarf. /------------------------------------------------------ HJÚKRUNARKVENNATAL með œviágripi u. þ. b. 1000 hjúkrunarkvenna er komið út. ÓSKABÓK OKKAR ALLRA Bókin fœst á skrifstofu félagsins, hjá hjúkrunarkvennatals- nefnd og í bókaverzlunum. _____________________________________________________/ 100 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.