Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Blaðsíða 34
Nemendur gagnfrœðaskóla horfa á frceöslumynd
Krabbameinsfélagsins um skadsemi sígarettureykinga
Frótlir frá KrnbbamriiiNfélaiíl Íslnnds.
Jón Oddgeir Jónsson, sem landskunnur er m. a. fyrir
námskeið sín í „Hjálp í viðlögum" o. fl. og sem einnig við
hjúkrunarkonur þekkjum frá kennslu hans í forskóla í
Hjúkrunarskólanum, sendi Tímiriti HFl fréttabréf frá
Krabbameinsfélaginu, en þar á Jón mikinn þátt í almennri
fræðslu um krabbameinsvarnir.
Við þökkum Jóni fyrir og einnig Bjarna Bjarnasyni,
lækni, formanni Krabbameinsfélags íslands, fyrir hlýjar
kveður á 50 ára afmæli HFÍ.
Myndin er af nýju sýningartæki, sem líkist sjón-
varpi, en er sýningarvél fyrir 8 mm. tilluktar film-
ur. Krabbameinsfélagið aflaði sér þess tækis fyrir
nokkru og lánar það, ásamt fræðslumynd um skað-
semi tóbaks, til allra skóla, sem óska þess og hafa
allmargir skólar, bæði úti á landi og i Reykjavik,
notið þess. Tækið er ætlað til notkunar í kennslu-
stofum og er unnt að sýna á það í björtu. Auk þess
lánar Krabbameinsfélagið skólum og þeim félögum
sem þess óska, þrenns konar 16 mm. fræðslumyndir
um skaðsemi sígarettureykinga, allar með islenzku
tali. Þeim 10 eintökum sem til eru hjá félaginu hafa
félög og skólar notið góðs af á undanförnum 6 ár-
um, auk þess sem þær eru notaðar á fræðslufund-
um Krabbameinsfélaganna fyrir almenning.
Erlendur læknir og heilbrigðismálafulltrúi, sem
nýlega var á ferð hér á landi, lét hafa þetta eftir
sér í blaðaviðtali:
„Almenningsfræðsla er víðasthvar fyrir neðan
allar hellur. Tökum reykingar sem dæmi. Það eru
helzt lungnasérfræðingar sem nú eru að reyna að
hætta að reykja, aðrir segjast heldur vilja lifa nokkr-
um árum skemur, en láta þetta ekki á móti sér. Þetta
eru orðin tóm, því almenningur gerir sér raunveru-
lega ekki grein fyrir hættunni. Ég held því fram að of
seint sé að kenna gömlum hundi að sitja og því verð-
um við að einbeita okkur að því að fræða börnin,
áður en þau byrja að reykja. Hinir fullorðnu eru
vonlausir“.
124 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS