Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Blaðsíða 5
Altarisklæði frá Hólum
sennil. 15. öld.
TÍMARIT HJUKRUNARFELAGS ÍSLANDS
tum áinum
óshcir sí/um leAendu
cjfeítíegra jó/a ocj farice/dar á lomandi ári !
Ritstjórnar-
þáttur
Jafnframt því að vera jólablað 1969 þá er Tímarit Hjúkrunar-
félags íslands að þessu sinni helgað 50 ára afmæli Hjúkrunar-
félags íslands, en félagið var stofnað í nóvember 1919. Því miður
var ekki unnt að gefa blaðið út á afmælishátíðinni, enda var þess
lítt minnst við það tækifæri.
Tímarit Hjúkrunarfélags Islands er reyndar og gamalt að
árum, því þetta er 45. árgangur. Hjúkrunarkonum á Islandi var
það snemma vel ljóst, hve mikil stoð í starfi og hugsjónum eigið
málgagn er. Má til gamans geta þess að samsvarandi tímarit á
hinum Norðurlöndunum eru í Danmörku á 69. ári, í Noregi á 56.
ári, í Svíþjóð á 36. ári og í Finnlandi á 61. ári. Það er því danska
hjúkrunarblaðið, sem er elzt. Þannig voru það og danskar hjúkr-
unarkonur á Islandi, sem stóðu einkum að stofnun Hjúkrunar-
félags Islands, og voru þrír fyrstu formenn félagsins þeirrar þjóðar.
Sigríður Eiríksdóttir varð svo formaður félagsins 1924 og var
það samfleytt í 36 ár til ársins 1960. Sem að vonum lætur vann
hún mikið og merkt starf á sviði hjúkrunarmála á íslandi, og
segir hún í viðtali hér í blaðinu í lokaorði: „Vertu mannvinur og
fús til að bæta úr mannlegu böli, sem kynni að mæta þér á lífs-
leið þinni, hvort heldur er á líkamlegu eða andlegu sviði“.
Framh. á bls. 133.