Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Blaðsíða 11
Kveðjur frá Vestmannaeyjum og Akureyri á
50 ára afmælishátíð H.F.Í.
Aðalheiður Steina Scheving, Vestm.
Ljósm. Sveinn Þormóðsson.
Veizlustjóri, formaður, virðu-
lega samkoma.
Mér var falið að flytja hér
kveðjur að norðan — kveðjur
frá Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri sendir Hjúkrunarfélagi
Islands hugheilar hamingjuósk-
ir í tilefni hálfrar aldar afmælis.
öllum þeim mörgu hjúkrunar-
konum, sem þar hafa starfað á
iiðnum árum, færum við beztu
þakkir fyrir vel unnin störf og
óskum þeim heilla og hamingju
í lífi og starfi.
Akureyrar deild Hjúkrunar-
félagsins sendir félögum sínum
hér innilegar árnaðaróskir. Þær
voru margar, sem vildu vera
rneð okkur hér í kvöld, en komu
Því ekki við. Þær senda félags-
kveðjur og óskir um, að stund-
Kæru veizlugestir!
Ég vildi aðeins gera grein
fyrir þessari gjöf, sem við höf-
um fært félaginu og segja ykk-
ur sögu steinsins.
Þann lJj. nóvember 1963 árla
dags gerðust þau undur að sköp-
un heimsins var fram haldið, og
úr hafi reis nýtt land.
Menn töldu þá að hér væri
aðeins um stundarfyrirbrigði að
ræða og að fljótlega mundi Æg-
ir konungur útþurrka og afmá
þessa gjallhrúgu, sem gerði sig
líklega til að hasla sér völl í
veldi hans, enda gerði hann
fljótlega harða árás á nýgræð-
inginn og bilti yfir hann stór-
brimi, svo sauð og kraumaði í
eldum þeim, er uppi báru hið
nýja land úr iðrum jarðar.
Lengi vel mátti ekki á milli sjá
hvor færi með sigur af hólmi
in verði ánægjuleg — þær eru
með okkur í anda.
Þessum kveðjum okkar að
norðan fylgir svolítill vinarvott-
ur, sem ég vil leyfa mér að biðja
formann félagsins að veita við-
töku.
Fjórðungssjúkrahúsið sendii’
vasa með blómakveðju, en Ak-
ureyrardeildin sendir fána með
skjaldarmerki Akureyrarkaup-
staðar og fánastöng, sem á er
letrað: Hjúkrunarfélag fslands
50 ára — Kveðja frá Akureyr-
ardeildinni.
Megi Hjúkrunarfélag íslands
eflast og vaxa. Megi Hjúkrun-
arskóli fslands — óskabarn okk-
ar allra — bera gæfu til að
brautskrá sem flestar vel mennt-
aðar hjúkrunarkonur- og menn
landi og lýð til gagns og bless-
unar.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir.
— nýsköpunin eða niðurrifs-
öflin!
Þá tóku menn að freista þess
að ganga á land í hina nýju
eyju og taka sýnishorn af land-
inu til áþreifanlegrar sönnunar
um atburð þennan, og hættu þá
gjarnan lífi og limum í dirfsku-
fullum landgöngum sínum.
í einni slíkri ferð var þessi
steinn sóttur, eða í janúar 1964.
Þrátt fyrir hin kröftugu mót-
mæli hafsins fullgerði skapar-
inn þarna „Töfraland“, sem í
dag heitir Surtsey.
Þennan stein, frumburð hins
nýja lands, færum við Hjúkr-
unarfélagi íslands með beztu
kveðjum og árnaðaróskum á 50
ára afmæli þess.
Hjúkrunarkonur,
V estmannaeyjum.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, Akureyri.
Ljósm. Sveinn Þormóðsson.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 101