Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Síða 22
Sigrún Gisladóttir, hjúk'runarkona:
Hlutverk gjörgæzludeilda
Á öld geimvísinda og örrar
tækniþróunar hefur gjörbylt-
ing orðið í læknavísindum. Og
þar af leiðandi mikil og marg-
vísleg breyting á sviði hjúkr-
unar.
Á vaktstofu hjúkrunarkvenna
er svipað umhorfs og í stjórn-
klefa síldarleitarbáts, fannst
einum gömlum skipstjóra, er
hann leit inn á vakstofu III-
deildar C Landsspítalans og sá
hj artarafs j ártækin.
Hvað merkir þá orðið gjör-
gæzla, sem er nýtt orð í íslenzkri
tungu. Gjörgæzludeild er það
heiti, sem við ennþá notum yfir
sj úkradeild, sem kallast á enskri
tungu intensive care unit, en á
norðurlandamálum intensivbe-
handlingsavdeling.
Islenzkufræðingar hafa ekki
lagt blessun sína yfir þessa þýð-
ingu og því síður sett hana inn
í orðabækur. I orðinu gjörgæzla
á að felast skilgreining á starf-
semi deildarinnar. Hér á sér
ætíð stað erfið hjúkrun, þar sem
sjúklingarnir fá intensivmeð-
ferð. Það er hægt að segja, að
intensivmeðferð sé endurlífgun-
araðgerðir með lyfjum og öllum
hugsanlegum h j álpartæk j um,
t. d. öndunarvél. Þessu fylgir,
að deildin verður að geta veitt
intensivhjúkrun og jafnframt
intensivobservation, þ. e. a. s.
hárnákvæma aðgæzlu á líðan
sjúklinga, sem geta þurft á int-
ensivmeðferð að halda hvenær
sem er. öll fyrrnefnd atriði
eiga að felast í heitunum gjör-
gæzludeild og gjörgæzla og
verða þau notuð í þessari grein
þó aðrar uppástungur hafi kom-
ið fram um heiti deilda af þess-
ari tegund.
Þróun gjörgæzludeilda getur
maður sagt að hafi orðið fyrst
vart í seinni heimsstyrjöldinni,
þar sem fljótt var séð ávinn-
ingurinn í því að hafa saman
þungt haldna sjúklinga.
Verulegur skriður kemur á
í þessum málum í Evrópu og
U.S.A. um árið 1960, og þar frá
hefur orðið mjög ör þróun. I
dag er talið sjálfsagt, að hafa
gjörgæzludeild á hverju sjúkra-
húsi og á stærri sjúkrahúsum
eru yfirleitt sérhæfar gjör-
gæzludeildir, jafnt á handlækn-
is- sem lyflæknisdeildum.
I sambandi við handlæknis-
deild mætti nefna:
Almenn postoperativ deild,
Thorax postoperativ deild,
N evrokir urgisk postoperativ
deild.
Við lyflæknisdeild:
Almenn lyflæknis gjörgæzlu-
deild,
Infektion gjörgæzludeild,
H j artagj örgæzludeild.
I Evrópu er umsjón á þess-
um deildum oftast í höndum
svæfingarlækna, er hafa sam-
starf við sérfræðinga sjúkra-
hússins, en á sérhæfum gjör-
gæzludeildum hefur viðkomandi
sérfræðingur yfirumsjón. Hver
er ávinningurinn af að hafa
gjörgæzludeild á sjúkrahúsi?
a) Betri nýting á hjúkrunar-
starfskrafti og læknirinn
er einnig í betri og örugg-
ari aðstöðu.
b) Nauðsynleg hjálpargögn
eru á einum stað og í hönd-
um starfsliðs, sem þekkir
þau og kann notkun
þeirra.
Því er það, að þó stofnkostn-
aður gjörgæzludeilda sé ákaf-
lega mikill, launar hann sig
fljótt.
í England er sparsemi dyggð
og eru þeir félitlir og hafa víða
ekki eins fullkomnar gjörgæzlu-
deildir og á Norðurlöndum. En
þeir hafa þó skapað aðstöðu til
gjörgæzluhjúkrunar á mjög
hagkvæman hátt og eiga hjúkr-
unarkonur stóran þátt í því.
Gjörgæzliideilil fyrir
lijartasjúklinga.
Dánartíðni af völdum hjarta-
sjúkdóma er efst á lista í vel-
megunar þjóðfélögum og fer sí-
fellt vaxandi. Mikil og viðtæk
barátta gegn sjúkdómnum á sér
einnig stað. Starfræksla gjör-
gæzludeilda fyrir þessa sjúkl-
inga er nú orðin veigamikill
þáttur í þeirri baráttu. Þar er
baráttan háð í hinum acuta fasa,
þar sem hættur eru mestar á
alvarlegum complikationum við
infarctus myocardi, sem leiða
til dauða ef ekkert er að gert.
Aðalatriðið er að koma í veg
fyrir, að complikationir komist
á hættulegt stig. Þær gera boð
á undan sér í flestum tilfellum,
og er þá hægt að upphefja þær
eða koma algerlega í veg fyrir
þær á hinu hættulega tímabili,
ef gripið er inn í nógu fljótt.
Á þessum deildum eru jafn-
framt meðhöndlaðir aðrir
hjartasjúkdómar, m. a. hinar
112 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS